Víkurfréttir


Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 02.11.2022, Blaðsíða 16
Afmælisþættir skólans í Vogum, birtast vikulega í Víkurfréttum og vf.is á afmælisárinu. Þorvaldur Örn Árnason, áður kennari við skólann, tekur saman með góðra manna hjálp. 41. ÞÁTTUR ERLEND MÁL OG TENGSL VIÐ ÚTLÖND Erlend tungumál eru lykill að sam- skiptum fólks milli landa. Með bættum samgöngum og fjarskiptum verður æ mikilvægara að sem flestir læri erlend mál og kynnist um leið erlendum siðum og menningu. Þegar skóli var stofnaður á Vatns- leysuströnd voru Íslendingar enn í mestum samskiptum við Danmörku og danskan afar mikilvæg en vægi ensku jókst með með auknum sam- skiptum við Bretland og með flótta margra Íslendinga til Ameríku um það leyti. Auk þess varð enskan æ meira að heimsmáli. Danska og enska urðu hluti af almenningsfræðslu á Íslandi með stofnun unglingaskóla upp úr 1930 en þó ekki skyldunámsgreinar fyrr en líða tók á 20. öld og þjóðin hafði öðlast fullt sjálfstæði. Eins og segir í síðasta þætti var tungumálanám við upphaf okkar skóla ekki fyrir öll börn en veita mátti fermdum unglingum „sér- staka kennslu“, þar á meðal dönsku og ensku. Veturinn 1903–1904 var danska námsgrein í eldri deild og hugsanlega oftar þó ekki séu um það heimildir. Erlend mál voru ekki til fullnaðarprófs í okkar skóla 1914– 1932, árin sem prófabók skólans nær til. Á fjórða áratugnum voru víða komnir upp héraðsskólar og nám fyrir unglinga. Þá gekkst ungmenna- félagið Þróttur í fáein ár fyrir nokk- urra vikna námskeiði fyrir unglinga í nýbyggðu samkomuhúsinu Kirkju- hvoli og var þar kennd danska og jafnvel enska. Svo virðast þessi tungumál ekki hafi verið kennd í Brunnastaðaskóla þar til 1. og 2. bekkur miðskóla koma þar til sög- unnar 1961. Löngu síðar er einnig farið að kenna þessi tungumál yngri börnum. Lengst af byrjaði dönskukennslan u.þ.b. tveimur árum fyrr en enskan. Það breyttist svo upp úr alda- mótunum 2000 þegar farið var að kenna ensku strax í 1. bekk, fyrst í til- raunaskyni, en danskan byrjaði eftir sem áður í 5. bekk. Vorið 1994 fóru kennarar skólans í kynnisferð til Danmerkur, segir nánar frá því síðar. Í skólaráði 12. mars 1997 lagði Helgi Hólm kennari til að heimilað yrði að 9. bekkur efndi til samskipta við danskan skóla með gagnkvæm nemendaskipti í huga en fyrir lægi munnlegt sam- þykki nemenda og flestra foreldra. Haldinn var danskur dagur 28. maí það vor fyrir 7. bekki á Suðurnesjum. Halla Jóna Guðmundsdóttir og Inger Christensen fóru með nokkra nemendur úr 5.–7. bekk í vikuferð til Danmerkur vorið 1999. Foreldrar reyndust duglegir að safna fyrir ferð- inni og Snæbjörn skólastjóri greiddi götu þeirra. Nemendur gistu á dönskum heimilum og sóttu danskan skóla þar sem Halla þekkti kennara og skrifuðu dagbók á dönsku. Dönsku nemendurnir skrifuðu, undir leiðsögn kennara sinna, bók á ensku um Ísland og náttúru þess, sem kom sér vel þegar þau komu í heimsókn árið eftir. Þau gistu á heimilum og fóru ásamt íslenskum nemendum í þriggja daga ferð um Suðurland og gróðursettu trjáplöntur á Ströndinni. Halla telur að þetta verkefni hafi aukið áhuga barnanna á dönsku og að þetta sé heppilegri aldur heldur en 10. bekkur, sem er að yfirgefa skólann. Stundum á síðari árum hefur verið boðið upp á fleiri erlend mál sem val- grein í efstu bekkjum, ýmist frönsku, þýsku eða spænsku. Heimild er um þýsku sem valgrein árið 1985. Skólinn hefur tekið þátt í Esasmus+ og eTwinning verk- efnum Evrópusambandsins í meira en áratug. Marc Portal kennari er þar frumkvöðull en annar kennari, Hannes Birgir Hjálmarsson, kom þar fljótlega með. Skólastjórnendur hafa stutt verkefnið frá upphafi. Kennurum gefst þarna tækifæri til að sækja nám og samstarfsfundi er- lendis, að mestu kostað af mennta- sjóðum Evrópusambandsins. Covid setti strik í reikninginn en nú er allt komið á fulla ferð. Í Erasmus+ vinna skólar og nem- endur í ólíkum löndum saman að námsverkefnum, oft eru einnig gagn- kvæmar heimsóknir. Fyrir ári síðan náði Stóru-Vogaskóli þar inngildingu (accreditation) með vinnu nemenda og kennara og getur þar með án flók- inna umsókna sent kennara í samtals tíu ferðir á ári og u.þ.b. tuttugu nem- endur í eina ferð árlega í sex ár. Vet- urinn 2020–2021 unnu nemendur í 10. bekk verkefni á netinu með skóla í Frakklandi og öðrum á Ítalíu. Þeir unnu að gerð myndasögu á netinu um sögu Jules Verne um ferðina að miðju jarðar. Þeirri vinnu lauk með gagnkvæmum heimsóknum. Nem- endur fóru í fylgd kennara til þessara landa þar sem gist var á heimilum nemenda. Meðfylgjand mynd er tekin í Pornic í Frakklandi. Á þessu skólaári vinnur 10. bekkur með frönskum og ítölskum bekk að umhverfisborðspili sem hópurinn hannar, semur og prufukeyrir og lýkur með gagnkvæmum heim- sóknum næsta vor. Þarna læra nem- endur tungumál, landa-, umhverfis- og samfélagsfræði og kynnast lífi fólks í fjarlægum löndum. Öll sam- kiptin eru á ensku og eru allir með ensku sem annað mál. eTwinning er skólasamfélag á netinu þar sem hægt er að komast í samband við evrópska kennara og skólafólk, taka þátt í einföldum sam- starfsverkefnum og sækja sér endur- menntun á vinnustofum og nám- skeiðum á netinu. Guðrún Kristín Ragnarsdóttir, náttúrufræðikennari, er nú með 5. bekk í eTwinning-verk- efni þar sem nemendur skóla frá öðrum löndum læra um eldfjöll og líf fólks í eldfjallandi, bæði á Íslandi og á eyjunni Reunion í Indlandshafi. Eld- fjallaeyja þessi tilheyrir Frakklandi, Hún er innan við 1% af stærð Íslands en þar búa þó hátt í milljón manns. Heimildir m.a.: Reglugerðin frá 1872. Gjörðabók skólanefndar. Prófabók fyrir Suðurkots- barnaskóla 1914–1932. Upplýsingar á netinu um Erasmus+, accreditation, eTwinning, eyjuna Reunion o.fl. Almenningsfræðslsa á Íslandi. Viðtöl við Höllu Jónu, Marc Portal, Hannes Hjálmarsson, Jóhann Sævar, Helga Guðmundsson o.fl. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga vísaði umsókn um framkvæmda- leyfi vegna Suðurnesjalínu 2 aftur til skipulagsnefndar sveitar- félagsins vegna nýrra gagna í málinu. Nefndinni var falið að yfir- fara tillögu sína að afgreiðslu með hliðsjón af þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir. Afgreiðsla skipulagsnefndar er að nefndin leggur til við bæjarstjórn að fenginn verði verkefnastjóri til að afla upplýsinga og leggja mat á ný gögn í málinu. Afgreiðsla bæjar- stjórnar er að bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar. Samþykkt samhljóða með sjö atkvæðum. Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga hefur samþykkt tillögu skipulags- nefndar með sex atkvæðum um að svæðið við Hafnargötu 101 verði þróunarreitur. Greint var frá af- greiðslu skipulagsnefndar í síðasta tölublaði Víkurfrétta. Lögð voru fram drög að kynn- ingargögnum vegna uppbyggingar og þróunar á lóð Hafnargötu 101. Um þróunarreit er að ræða þar sem miklir möguleikar eru fyrir hendi. Áður en málið var tekið til um- fjöllunar lýsti Birgir Örn Ólafsson, bæjarfulltrúi, yfir vanhæfi sínu við afgreiðslu málsins og tók ekki þátt í afgreiðslu þess. Dagskrárgerðarfólk og hugmyndir að þáttum í Hlaðvarp Víkurfrétta Hlaðvarp Víkurfrétta — Leggðu við hlustir Ertu til í að vinna við dagskrárgerð og taka upp einn þátt í viku eða kannski bara einn þátt í mánuði? Ertu til í að ganga til liðs við okkur í vetur og sjá um hlaðvarpsþátt? Ertu kannski bara með hugmyndir að áhugaverðu efni til umfjöllunar og ert til í að deila því með hlaðvarpsstjórnendum? Við erum að leggja lokahönd á nýtt stúdíó þar sem verður aðstaða til að taka á móti gestum og ræða við þá á bak við hljóðnemann og/eða framan við myndavélina. Ef þú hefur áhuga á að taka þátt, þá máttu endilega senda okkur línu á vf@vf.is VOGAR Hilmar Bragi Bárðarson hilmar@vf.is Samþykkja að fá verkefnastjóra vegna Suðurnesjalínu 2 Bæjarstjórn samþykkir áform um svæðið við Hafnargötu 101 Svæðið við Hafnargötu 101 í Vogum verður þróunarreitur samkvæmt ákvörðun bæjarstjórnar í Vogum. VF-mynd: Hilmar Bragi Við hjá Víkurfréttum erum alltaf að reyna að gera betur og viljum efla fréttaþjónustu okkar við samfélagið í Vogum og á Vatnsleysuströnd. Ábend- ingar um áhugavert efni og viðmælendur má senda á ritstjórn Víkurfrétta á póstfangið vf@vf.is. 16 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.