Víkurfréttir - 02.11.2022, Qupperneq 18
Skemmtilegur
og hugmyndaríkur
Helstu kostir Frosta Kjartans eru að hann er fyndinn, skemmtilegur og
hugmyndaríkur. Frosti er í 9. bekk Njarðvíkurskóla, æfir fótbolta og er í
unglingaráði Fjörheima sem og nemendaráði skólans.
Hvert er skemmtilegasta fagið? Enska
er uppáhaldsfagið mitt því kennarinn er
skemmtilegur og ég er góður í ensku.
Hver í skólanum þínum er líklegur til að
verða frægur og hvers vegna?
Annað hvort Patrik Joe eða Freysteinn Ingi,
báðir vegna íþrótta.
Skemmtilegasta saga úr skólanum:
Gummi samfó að segja „hoyyjaa“ upp úr
þurru.
Hver er fyndnastur í skólanum? Ég.
Hvert er uppáhaldslagið þitt? Uppáhalds-
lagið mitt er Lítill drengur með Villa Vill.
Hver er uppáhaldsmaturinn þinn?
Einkennisrétturinn hennar Heru frænku að
nafni Herupasta.
Hver er uppáhaldsbíómyndin þín? Cars 2.
Hvaða þrjá hluti myndir þú taka með þér
á eyðieyju og hvers vegna? Símann minn,
hleðslutæki og risastóran hleðslubanka,
svo ég gæti verið í símanum lengi og
mögulega beðið um aðstoð.
Hver er þinn helsti kostur?
Ég er fyndinn, skemmtilegur og hug-
myndaríkur (að eigin mati).
Ef þú gætir valið þér einn ofurkraft til að
vera með restina af ævinni, hvað myndir
þú velja? Ég myndi vilja geta flogið.
Hvaða eiginleiki finnst þér bestur í fari
fólks? Hreinskilni.
Hvað langar þig að gera eftir grunnskóla?
Mig langar að verða rafvirki.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það? Sætastur.
Alltaf hress
„Ég vinn í Krambúðinni, fer á Súper-
formæfingar, baka stundum og hitti
vini og kærasta,“ segir Birgitta Rós,
aðspurð hvað hún geri utan skólatíma.
Hún ákvað að fara í FS vegna þess að
vinir hennar fóru í skóla á höfuðborgar-
svæðinu og hún sá það sem tækifæri
til að kynnast nýju fólki. Birgitta er FS-
ingur vikunnar.
Hvers saknar þú mest við grunnskóla?
Það eru alveg þrjú ár síðan ég var í grunn-
skóla en sakna mest Danielu kennara og
jólastemmningarinnar.
Hvers vegna ákvaðst þú að fara í FS?
Ég ákvað að fara í FS því mig langaði að
læra hárgreiðslu og kynnast nýju fóki í
mínu umhverfi, flestir vinir mínir voru að
fara í bæinn í skóla þannig þetta var frá-
bært tækifæri til að kynnast nýju fólki.
Hver er helsti kosturinn við FS?
Þú eignast vini sem búa í nærumhverfi
þínu og fjölbreytileiki á fólki, frá starfsfólki
til nemenda.
Hvað finnst þér um félagslífið í skólanum?
Mín upplifun er góð, ég byrjaði í hár-
greiðslu sem er bara eins og lítill bekkur
á fyrsta árinu mínu og eignaðist vinkonur
þar. Ég skipti svo um braut og var mikið í
matsalnum og eignaðist einn af mínum
nánustu vinum þar.
Hvaða FS-ingur er líklegur til að verða
frægur og hvers vegna? Ég held að það
verði Logi Þór, formaður nemendafélagsins.
Ég held að hann verði pólitíkus.
Hver er fyndnastur í skólanum? Mér finnst
Helena Mjöll fyndnasti FS-ingurinn.
Hvað hræðist þú mest?
Ég hræðist mest að missa fólkið mitt,
myrkrið og anda/drauga.
Hvað er heitt og hvað er kalt þessa
stundina? Heitt akkúrat núna eru jólalög
að mínu mati og kalt er alltaf sömu LUX
djömmin.
Hvert er uppáhaldslagið þitt?
Akkúrat núna er það Let’s hear it for the
boy úr Footloose og Underneath the tree
sem er jólalag.
Hver er þinn helsti kostur?
Úff, erfið spurning. Ég held að minn helsti
kostur sé að ég er eiginlega alltaf hress og
opin fyrir öllu.
Hvaða forrit eru mest notuð í símanum
þínum? Tiktok.
Hver er stefnan fyrir framtíðina?
Mig langar í lögregluna og vonandi læra
eitthvað tengt fjölbreyttu starfi, t.d. fjöl-
miðlafræði.
Hver er þinn stærsti draumur?
Að eiga fjölskyldu og heilbrigt líf.
Ef þú ættir að lýsa sjálfum þér í einu orði
hvaða orð væri það og af hverju?
Orðið væri skammstafirnir ADHD ... af því
ég er mjög virk og er skólabókadæmi um
manneskju með lesblindu og ADHD (og já,
er með greiningu).
FS-ingur vikunnar:
Nafn: Birgitta Rós Jónsdóttir
Aldur: 19 ára
Námsbraut: Fjölgreinabraut
Áhugamál: Líkamsrækt, félags-
störf og að vera með vinum
Ungmenni vikunnar
Nafn: Frosti Kjartan Rúnarsson
Aldur: 13 ára
Skóli: Njarðvíkurskóli
Bekkur: 9. bekk
Áhugamál: Fótbolti, félagsstörf
og vera með vinum
Thelma Hrund Hermannsdóttir
thelma@vf.is
Fjölbrautaskólinn þátttakandi
í alþjóðlegu menningarverkefni
Fjölbrautaskóli Suðurnesja er þátt-
takandi í Erasmus+ verkefninu
Cultural Heritage in a European
Context en verkefnið er samstarf
skóla frá Finnlandi, Ungverjalandi
og Spáni. Markmið verkefnisins er
að efla menningarlæsi nemenda
og auka víðsýni og umburðarlyndi
gagnvart öðrum menningarheimum.
Nemendur fræðast um siði, menn-
ingu og markverða staði í samstarfs-
löndunum. Þau þjálfa einnig tungu-
mála- og samskiptafærni auk þess
sem þau þjálfast í tölvunotkun og
samvinnu.
Hugmyndin að samstarfinu spratt
upp úr fyrra samstarfi við Ungverja-
land og má líta á verkefnið sem
nokkurs konar framhald af National
Prides in a European Context-verk-
efninu sem var í gangi 2018–2021.
Hvert land tekur að sér að vera
gestgjafi einu sinni á tímabilinu sem
verkefnið stendur og skipuleggur
þá dagskrá í eina viku þar sem gest-
irnir fá að kynnast menningu gest-
gjafanna og markverðum stöðum
í nánasta umhverfi. Fyrir hverja
heimsókn vinna nemendur mynd-
bönd um ýmsa þætti sem tengjast
menningu sinni eða tungumáli. Í lok
hverrar ferðar vinna nemendur raf-
rænt tímarit sem verður aðgengilegt
á heimasíðum skólanna. Eftir hverja
heimsókn heldur hver skóli menn-
ingardaga til heiðurs því landi sem
heimsótt var.
Á vorönn 2022 voru farnar tvær
ferðir, önnur til Spánar en hin til
Finnlands. Fimm nemendur ásamt
tveimur kennurum fóru í hvora ferð.
Á vorönn 2023 munu svo fimm
nemendur í viðbót og tveir kennarar
ferðast til Ungverjalands.
Nýverið var komið að FS að vera
gestgjafar í verkefninu og komu
hingað hópar nemenda frá Spáni,
Finnlandi og Ungverjalandi ásamt
kennurum sínum. Í allt voru það
sautján nemendur og níu kennarar
sem komu hingað í heimsókn. Nem-
endur gistu hjá fjölskyldum nem-
enda sem taka þátt í verkefninu og
fengu þannig tækifæri til að kynnast
nánar heimilislífi hér á landi.
Dagarnir voru viðburðarríkir og
margt var skoðað. Meðal annars
fór hópurinn á Rokksafnið, í Vík-
ingaheima og ferðaðist um helstu
náttúruperlur Reykjaness. Förinni
var einnig heitið að skoða náttúru-
perlur á Suðurlandi eins og Þingvelli,
Gullfoss, Geysi og komið var við á
orkusýningunni í Ljósafossvirkjun.
Einn dagur var nýttur í að kynnast
höfuðborginni og þá var m.a. farið í
Flyover Iceland, Perluna og komið
við í hesthúsum þar sem hægt var
að prófa að fara aðeins á bak. Dag-
skránni lauk með glæsilegu loka-
hófi á sal FS þar sem snæddur var
ljúffengur matur, nemendur sýndu
skemmtiatriði og veitt voru viður-
kenningarskjöl fyrir þátttöku.
Hópurinn fór um að gosstöðvum
við Fagradalsfjall.
Dagarnir voru viðburðarríkir og margt var skoðað og gert.
Við húsakynni Fjölbrautaskóla Suðurnesja.
18 // vÍkurFrÉttir á SuðurneSJuM