Rökkur - 01.01.1941, Side 12
12
R Ö K K U R
ingar um olíuþörf Ítalíu og þær
upplýsingar liefi eg fengið hjá
fulltrúum Standard Oil-félaginu
í Italíu og Rúmeníu.
Olíunotkun Italíu er um 1500
smál. daglega á venjulegum
tímum. Hún getur að eins flutt
.100 smál. á dag og sá innflutn-
ingur fer næstum allur eftir
hinni löngu og ógreiðfæru leið
frá Rúmeníu.
Á matvælasviðinu er ástandið
engu betra. Maccaroni er jafn-
vel skamintað og skammturinn
er að eins tvö kíló á mánuði.
Hver miðlungs Neapelbúi etur
áttunda hluta þessa skammts í
mál. h'ólkið getur valið milli
maccarónis, korns og hrís-
grjóna.
í nóvember sendi Mússólíni
legáta sína út á meðal fólksins,
sem stóð í biðröðunum fyrir ut-
an húðirnar. Þessir menn áttu
að kanna hug popolino, eins og
alþýða manna er nefnd. Árang-
urinn var sá, að fólk sagði:
„Við þurfum ekki að kvarta".
En þetta bar að skilja svo: „ Við
þorum ekki að kvarta.“
En nú er þjóðin liætt að taka
þessu á þenna hátt. Síðan frétt-
imar um ósigrana hafa borist
til Ítalíu má heyra reiðióp og
óónægjuraddir meðal fólksins í
biðröðunum.
Þjónninn minn beið í fjórar
klukkustundir eftir að fá kol af-
greidd. Þegar liann fékk þau
voru það að eins 12 pund, sem
átiu að endast í hálfan mánuð.
Konur fátæklinga, sem þurfa
að gæta stórra barnahópa, geta
ekki eytt tíma sinum i að standa
í biðröðunum og þess vegna fer
oft svo, að þær fá engan eldivið.
Af þessu leiðir svo, að þegar
kalt er í veðri, þjáist þetta fólk
mjög.
*
Badoglio var í öndverðu mót-
fallinn þátttöku ítala í
stríðinu. Hann var líka andvíg-
ur stríðinu við Grikki og í
Egiptalandi, og varaði il Duce
við þvi að háðar myndu fara
út um þúfur. Þegar Mússólíni
sagði Badoglio að kippa þvi i
lag, sem aflaga var farið, sagði
hann:: „Hvað sagði eg yður?“
og bætti því við, að eklci væri
hægt að bjarga því við.
Margir herforingjar sögðu af
sér að dæmi Badoglios, fremur
en heyja vonlausa baráttu. Eft-
irmaður Badoglios stóð sig að
vísu vel i Heimsstyrjöldinni, en
hann liefir ekki hrifið huga
fjöldans, sem nefnir hann „ó-
Jiekta hermanninn“.
Umberto, krónprins, og'
Badoglio eru nú J>eir menn, sem
allra augu mæna á. Staða
Mussolini er orðin ótrygg og
allir harma það, að honuin var
fengin i hendur æðsta stjórn