Rökkur - 01.01.1941, Síða 15

Rökkur - 01.01.1941, Síða 15
r ö k k u rr 15 reiðai'. Það varð að fjórfalda starfsmannafjölda upplýsinga- skrifstofunnar, til þess að hún gæti svarað öllum fyrirspurn- unum. * \ ★ T3 íkisstjórnin hefir útbúið langan lista vfir matvörur Jiær, sem fólkinu er náðlagt, að nota í stað maccaronis og spag- liettis. Jafnframt hafa verið gefnir úl pésar, sem kenna fólki hvernig hezt sé að matreiða þessar nýju fæðutegundir. í stað sykurs er fólki ráðlagt að sjóða eplaskræling. Þá ráð- leggur stjórnin konum að þvo þvott sinn úr vatni, sem baunir hafa verið soðnar í. Til þess að þvo leirtau er ráðlagt að nota appelsínuskræling'. Vinur minn, sem verið hefir í Neapel, hefir sagt mér, að þangað komi í sífellu skip með særða menn frá Albaníu. Fólk þjáist af kuldunum, sem komu fyrir nokkuru. Það er ekki Iiægt að hita íbúðarhús, verzl- anir og opinberar byggingar vegna kolaskorts. Afgreiðslu- fólk í verzlunum vinnur störf sin í yfirhöfnum til þess að halda á sér hita. í Rómaborg, Feneyjum, Nea- pel og Triest hafa komið kvart- anir fra konum, sem hafa orðið. að híða timunum saman í kulda, eftir að fá afgreidd hrauð og ó- lífur. Það kemur meira að segja oft fyrir, að þegar þær hafa beð- ið langan tíma, verða þær að fara án þess að hafa fengið neitt. Konur eru óragari við að sýna andúð sína en karlmenn vegna þess, að refsingar þeirra eru vægari. Jafnvel ítalskir embættis- menn láta i ljós aðdáun sína á þvi, hversu hæfnir hrezku flug- mennirnir séu, er þeir varpa niður sprengjum sínum og því, hversu þeir foi’ðist að verða ó- hreyttum borgurum að bana. TViJeim verða svo oft varir við fjandskap í garð Þjóð- verja, að eg' lét það herast í tal við meðlim þýzku sendisveitar- innar í Rómahorg. Eg sagðí honum hlátt áfram, að eg teldi, að 90% af hverjum hundrað ítölum hötuðu Þjóðverja. Hann svaraði: „Eg get svarað því til, að 100 af hverjum hundrað Þjóðverjum fyrirlíta ítali.“ Margir Italir eru þeirrar skoðunar, að loftárás á Róma- horg myndi flýta fyrir því, að ítalir hættu striðinu. Róm hefir ekki ennþá orðið fyrir árás, en loftárásarmerki liafa verið gef- in og loftvarnahyssur teknar í notkun. Sprengjubrotin skemmdu byggingar við Yia

x

Rökkur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.