Fréttablaðið - 25.01.2023, Síða 9
Ástand heimsins
Sara kom upp úr
Óskarshattinum í
borg englanna
Indverjar fagna lýðveldisdegi sínum á morgun en undirbúningur er nú í fullum gangi fyrir hátíðarhöldin. Hér má sjá
hermann æfa stórhættulegt áhættuatriði; að bruna á mótorhjóli í gegnum eldhringi.
Íslendingar munu eiga einn fulltrúa á Óskarsverðlaununum
en það var tilkynnt í gær. Indverjar halda upp á lýðveldisdag
sinn á morgun og undirbúningur stendur sem hæst. Elton John
tryllti lýðinn á Nýja-Sjálandi og sápuóperustjarna fékk viður-
kenningu frá Vilhjálmi Bretaprinsi. Myndavélalinsur Getty-
veitunnar eru alltaf að störfum – hvar sem er í heiminum.
Elton John
geislaði á svið-
inu í Christch-
urch en um 30
þúsund manns
fylltu leikvang-
inn og sungu
duglega með.
Eðlilega, enda
var stórstjarnan
að spila í fyrsta
sinn á Nýja-Sjá-
landi í hartnær
þrjátíu ár.
Belgísku konungshjónin, drottningin Matthildur og konungurinn Filip, hittu Othmar Karas á
nýársfagnaði hallarinnar sem haldinn var í gær fyrir fastafulltrúa hjá Evrópusambandinu.
Þau Riz Ahmed og Allison Williams tilkynntu hverjir hefðu verið tilnefndir til Óskarsverðlaun-
anna. Þar eigum við Íslendingar einn fulltrúa, Söru Gunnarsdóttur.
Leikmenn Real
Madrid gera
sig tilbúna fyrir
komandi átök.
Þjóðverjinn Ant-
onio Rudiger,
Brasilíumaður-
inn Vinicius
Junior og
Frakkinn Karim
Benzema hoppa
og skoppa undir
vökulu auga
sjúkraþjálfara.
Leikkonan Helen Worth fékk orðu frá prinsinum af Wales, Vilhjálmi. Worth
hefur leikið Gail Platt í Coronation Street síðan 1974. fréttablaðið/getty
1
1
2
2
3
3
4
4
5
5
6
6
Fréttablaðið fréttir 925. janúar 2023
MiÐViKUDAGUr