Rökkur - 01.06.1945, Blaðsíða 3

Rökkur - 01.06.1945, Blaðsíða 3
RÖKKUR 163 Skotið var á múginn. Þrír menn biðu bana, en margir særðust. Þetta var upphaf og endir borgarastyrjald- arinnar í Irlandi, sem fjandmenn Bretlands höfðu gert sér svo miklar vonir um. En miklir viðburðir voru í aðsigi. Daginn eftir stakk Sir Edward Grey, utanríkis- ráðherra Bretlands, upp á því, að haldin væri ráð- stefna í London, til þess að koma í veg fyrir, að styrjöld brytist út á meginlandinu. Hann bauð rík- isstjói'num Þýzkalands, Frakklands og Italíu að ræða við fulltrúa brezku stjórnarinnar. Þau þrjú lönd, sem að framan greinir, voru ekki þátttakendur í deilunum, sem gerðu horfurnar svo ískyggilegar sem raun bar vitni, en Grey kvað augljóst, að ef ekki væri hægt að jafna ágreininginn milli Austurríkis- manna og Serba fljótlega, myndi Evrójia verða fyrir meira áfalli en nokkurn tíma áður, með svo hörmu- legum afleiðingum, að ekki yrði með orðum lýst. Frakkar og Italir tóku boðinu. Þjóðverjar hikuðu — færðust undan. Það var augljóst, að þeir höfðu vitneskju um eitthvað, sem þeir héldu leyndu. Fréttir bárust nú dræmt frá Vínarborg. Og eng- fnn virtist vita með neinni vissu hvað var að gerast. i Englandi féllu verðbréf og ókyrrð var meðal kaup- sýslumanna. Verðlag á matvörum, t. d. hveiti, hækk- aði í Englandi. Og fregnir bárust frá Berlín, að menn hópuðust í bankana til þess að taka út sparifé sitt. 1 Englandi voru ýmsar varúðarráðstafanir gerðar af her- og flotastjórninni. Konungurinn hafði nýlega verið viðstaddur flotasýningu nálægt Spithead. Þar voru samankomin í einu fleiri herskip en dæmi voru til áður. Vegna Irlandsmálanna tafðist konungur í London, en hann kom í tæka tíð til þess að vera við- staddur flotasýninguna. Hann fór á vettvang í kon- unglegu snekkjunni, snekkjunni Victoria and Albert. — Við hlið konungs á stjórnpalli var prinsinn af Wales, síðar Játvarður VIII., og eftir valdaafsalið hertogi af Windsor. — Ennfremur stóð við hlið kon-

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.