Rökkur - 01.06.1945, Blaðsíða 7

Rökkur - 01.06.1945, Blaðsíða 7
RÖKKUR 167 í veg fyrir styrjöld. Námumenn í Suður-Wales lýstu sig andvíga styrjöldum. Á fundi fulltrúa Sambands námufélaganna í Cardiff var stjórnin hvött til þess að veru hlutlaus, og námumenn Evrópu voru hvatt- ir til þess að knýja stjórnir þeirra landa, sem í deil- unni áttu, til að taka tillit til skoðana þeirra. Kl. 7 á sunnudagskvöld afhentu Þjóðverjar Belgíu- mönnum úrslitakosti. Því var lofað, að ef Belgiu- stjórn leyfði Þjóðverjum herflutninga um landið, skyldi sjálfstæði landsins haldast, er friður væri saminn. Ef úrslitakostunum væri hafnað yrði lit- ið á Belgíumenn sem fjandmenn. Tólf klukkustunda l'restur var gefinn til að svara orðsendingunni. Belgiumenn hikuðu ekki. Þeir lýstu yfir því skýrt og skilmerkilega, að þeir væru hlutlaus þjóð, og árás á hlutleysi þeirra væri bert brot á rétti þjóð- anna. Ef fallizt væri á úrslitakostina væri þjóðar- lieiðri Belgíu kastað á glæ. Hlutleysi Belgíu var * viðurkennt með samningunum frá árinu 1839, og Þjóðverjar viðurkenndu hlutleysi Belgíu 1870. Á bankafrídeginum 2. ágúst óku brezku konungs- 'hjónin frá Buckinghamhöll í opnum vagni. Múgur manna hyllti þau. Fólk fór í hópum um göturnar og margir báru samveldisfánann brezka og franska fánann. Mikill mannfjöldi safnaðist saman fyrir utan kon- «mgshöllina um.kvöldið. Konungshjónin og prins- inn af Wales gengu fram á hallarsvalirnar. I neðri málstofunni ríkti alger kyrrð, er Sir Ed- ward Grey utanríkisráðherra las upp skeyti, sem Georgi konungi hafði borizt frá Albert Belgíu- konungi. Skeytið var svo hljóðandi: „Minnugur þess hve mörgum sinnum Yðar Há- tign og lyrirrennari Yðar Hátignar auðsýnduð Belgíumönnum vinsemd — og minnugur vinsam- legrar afstöðu Englands 1870 — og vinsemdar og samúðar, sem nú hefur enn verið í ljós látin, bið

x

Rökkur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.