Rökkur - 01.06.1945, Page 9

Rökkur - 01.06.1945, Page 9
RÖKKUR 169 ríkisráðuneytinu, þar sem svo var að orði komizt, að þar sem þjzka stjórnin hefði algerlega neitað að verða við kröfum brezku stjórnarinnar um að virða hlutleysi Belgíu, hal'i brezki sendiherrann í Berlín beðið um vegabréf sitt, og brezka stjórnin tilkynnt þýzku stjórninni, að Bretland eigi i styrj- öld við Þýzkaland frá klukkan 11 að kveldi þess 4. ágúst. Mannfjöldinn laust upp fagnaðarópum. Mikill mannfjöldi var i Downingstræti og i nánd við helztu stjórnarbyggingar. Það var þá svo komið, að Evrópu-styrjöld var skollin á. 1 byrjun kom þannig þegar hin örlaga- ríka tala 11 til sögunnar. Ekki óraði menn fyrir þvi þá, að styrjöldinni mundi verða lokið á elleftu stund ellefta dags ellefta mánaðar (1918). Gripnir stríðsæsingu létu menn fögnuð sinn í ljós á ýmsan bátt. Georg konungur sendi sjóliðinu sérstaka orðsend- ingu, stílaða til Jellicoe flotaforingja, sem bafði á bendi yfirstjórn flotans. Kvað konungur svo að orði, að hann væri þess fullviss, að brezki flotinn mundi nú sem æ fyrrum halda hátt á lofti heiðri Bretlands og reýnast Bretaveldi „öruggur skjöldur á hinum miklu reynslutimum, sem framundan eru“. Þann 5. ágúst gerðist margt annað en það, sem bér hefur verið rakið. Kitchener lávarður var skip- aður hermálaráðherra. Asquitli fór fram á að þing- ið veitti eitt hundrað milljónir sterlingspunda til styrjaldarþarfa. Það var mesta fjárveiting, sem þingið noklcurn tíma hafði afgreitt vegna styrjald- ar. Fjármálaráðherrann hvatti menn til þess að safna ekki gulli. Hafizt var handa um fjársöfnun handa þeim, sem urðu hart úti af völdum styrj- aldarinnar. Prinsinn af Wales og Mary drottning hirtu hvatningarávörp. Á tíu dögum safnaðist cin milljón og 200 þúsund sterlingspund. Þann 6. ágúst réðust Þjóðverjar á virkin við

x

Rökkur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Rökkur
https://timarit.is/publication/1770

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.