Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Side 8
8 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022
Af hverju að kjósa VG?
Við viljum
Raunverulega umhverfis-
og náttúruvernd
1. sæti
Jafnari tækifæri fyrir alla
2. sæti
Vera leiðandi í skapandi
skólastarfi
3. sæti
Verk- og nýsköpunar–
miðstöð fyrir ungt fólk
4. sæti
XV
14. maí
Kynntu þér málin okkar: x22.vg.is
Vertu með: @vg_hafnarfirdi
facebook.com/vinstrid
Í næstum tvo áratugi hefur
svokölluð SMT stefna verið
við lýði í skólum Hafnar
fjarðar. Hún er byggð á kenn
ing um atferlismótunar þar sem
hrós í formi miða er veitt fyrir
æskilega hegðun og umbun
því gerð að útgangs punkti í
hegðun barna.
Öll getum við verið sam
mála um mátt hróss og styrk
ingar já kvæðrar hegðunar en hins vegar
má setja stórt spurningarmerki við að
notast við atferlismótandi kerfi sem
byggt er á hugmyndafræði þar sem
útgangs punkturinn er að börn kunni
ekki að haga sér. Síðan má setja spurn
ingar merki við svo mikla miðstýringu á
heilu sveitarfélagi sem gerir kennurum
og skólastarfi sjálfu erfitt fyrir að vera
skapandi og sjálfstætt og hverjum skóla
fyrir sig að marka sér eigin stefnu.
Það er klárlega kominn tími til að
afnema SMT stefnuna í Hafnarfirði og
taka upp annars konar kerfi sem sátt ríkir
um meðal kennara, barna og foreldra.
Á skólaþingi sveitarfélaganna sem fór
fram fyrr í vetur kom skýrt fram hvar
pottur er brotinn hjá sveitar
félögum í geðheilbrigðismálum
barna og aðgangi þeirra að
sér fræðingum. Það vantar sár
lega fræðslu til nemenda um
geðheilbrigði og stórauka þarf
aðgengi kennara og nemenda
að sérfræðingum innan skól
ans og nú enn frekar eftir þau
áhrif sem Covid hefur haft á
mörg börn.
Við Vinstri græn í Hafnar firði viljum
gera Hafnarfjörð að sveitar félagi sem
tekur forystu í mennta og geðheil
brigðismálum barna með því að innleiða
forvarnarstarf í skólakerfið og tryggja
sálfræðinga við hvern skóla til að sinna
geðheilbrigði nemenda og styðja betur
við starfsfólk í sínum störf um. Við
viljum aukna áherslu á skapandi skóla
starf sem og innleiða núvitund í
skólastarfið þar sem það hefur sýnt sig
bæði hérlendis og er lendis að það
stórbætir líðan nem enda.
Höfundur skipar 3. sæti á
framboðslista Vinstri grænna í
Hafnarfirði.
Göngum lengra í
skólamálum
Treystum sjálfsákvörðunarrétt skóla, tryggjum forvarnarstarf í
geðheil brigðis málum og aukum áherslu á skapandi skólastarf
Anna Sigríður
Sigurðardóttir
Píratar í Hafnarfirði hafa tekið saman
11 áherslur fyrir komandi sveitar stjórn ar
kosningar og eru þær sundurliðaðar í að
gerða punkta sem finna má á heimasíðu
Pírata. Áherslurnar eru aðgengilegar á
þremur algengustu tungumálum lands ins,
sem er í samræmi við við áherslur Pírata
á fjölmenningu og lýðræði.
Píratar leggja mikið upp úr samráði við
íbúa og aðgengi íbúa að upplýsingum og
ákvarðanatöku. Þetta á við á öllum svið
um, svo sem hvað varðar skipulag,
almanna þjónustu og umhverfismál. Því
verða öflug hverfisráð og umboðsmaður
bæjarbúa hryggjarstykkið í lýðræðis
bænum Hafnarfirði.
Leikskólastarf er ómetanlegur þáttur
samfélagsins og ber að launa sem slíkan.
Píratar vilja brúa bil milli fæðingarorlofs
og leikskóla en einnig viljum við koma á
sveigjanlegum vistunartíma og styðja enn
frekar við styttingu vinnuvikunnar. Þann
ig tryggjum við grunninn að fjöl skyldu
vænu velferðarsamfélagi. Píratar vita að
fjölbreytt tómstundastarf er mikilvægt
öllum aldurshópum, en and legt og líkam
legt heilbrigði hefur afger andi áhrif á lífs
gæði fólks á öllum aldri. Píratar tala fyrir
því að ávallt skuli standa vörð um
mannlega reisn, friðhelgi einka lífs og
sjálfs ákvörð unarrétt. Þetta á sérstaklega
við hjá eldra fólki og ýmsum hópum fólks
í viðkvæmri stöðu. Og það verður aldrei
of oft sagt að Píratar hafna alfarið ofbeldi,
rasisma og fordómum í öllum myndum.
Píratar leggja mikla áherslu á að vinna
að skipulagsmálum og innviðaupp bygg
ingu í samstarfi við nágrannasveitarfélögin.
Píratar vilja að Hafnarfjörður skipi sér í
forystu hvað umhverfismál varðar, með
verndun útivistarsvæða og fjölgun raf
hleðslu stöðva, með því að efla örflæði og
almenningssamgöngur og stefni ótrauður
á hringrásarhagkerfi og þéttingu byggðar.
Áherslur Pírata eru byggðar á faglegum
grunni með velferð allra núver andi og
fram tíðar íbúa að leiðar ljósi. Píratar
standa fyrir gagnsæi, heiðarleika og lýð
ræðisleg stjórnmál. Kjósum Pírata.
Höfundar eru frambjóðendur í 1. og
2. sæti fyrir Pírata í Hafnarfirði
Áherslur sem
skipta máli
Haraldur R.
Ingvason
Hildur Björg
Vilhjálmsdóttir