Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 14

Fjarðarfréttir - 04.05.2022, Qupperneq 14
14 www.fjardarfrettir.is FJARÐARFRÉTTIR | MIÐVIKUDAGUR 4. MAÍ 2022 Hafnarfjörður er íþrótta­ og tóm­ stunda bær og það má fullyrða að fá bæjarfélög státa af jafn fjölskrúðugri menn ingu í mála­ flokknum. Bæjar­ félag ið styður við ung menni með nið­ ur greiðslum á þátt­ töku í íþróttum og tóm stundum í formi frístunda styrkja. Það voru jafnaðarmenn í Hafnarfirði sem komu á þessu kerfi í Hafnarfirði árið 2002 og þar með varð Hafnarfjörður fyrsta sveitarfélagið til að byrja með frístundastyrki. En við getum gert betur og aukið þátttökuna meira. Þátttaka í íþróttum og tómstundum er besta forvörnin sem völ er á og afar mikil­ vægt að börn og ungmenni taki þátt. BJÓÐUM YNGRI BÖRNUM UPP Á FRÍSTUNDASTYRK Samfylkingin vill ýta undir heilsu sam­ lega lífshætti með því að auðvelda fólki á öllum aldri hreyfingu og hollt mataræði og stuðla að virkri þátttöku allra í sam­ félaginu. Það er stefna Samfylkingarinnar að lækka aldur þeirra sem njóta frístunda­ styrkja og færa aldurinn niður í fimm ár. Kostnaðurinn af því er óverulegur fyrir bæjarfélagið og í raun fjárfesting til fram­ tíðar í unga fólkinu okkar. Félögin sem bjóða upp á skipu­ lagðar tómstundir og íþróttir hafa lagt mikinn metnað síð­ ustu ár í að bjóða börnum á leikskóla­ aldri upp á fjölbreytt val og um helgar streyma for eldr ar í mannvirki bæjarins til að taka þátt. GRUNNURINN AÐ RÉTT LÁTU SAMFÉLAGI ER JÖFNÐUR OG GÓÐ VELFERÐARÞJÓNUSTA Bæjarfélagið státar af íþrótta­ mannvirkjum sem eiga vart sinn líka í öðrum bæjarfélögum og af því getum við verið stolt og að fylla þessi mannvirki ungum börnum og foreldrum þeirra stuðlar að heilsusamlegra samfélagi. Það er ljóst að hægt er að efla þessa þátttöku með því að lækka aldur barna sem njóta frístundatyrkja niður í fimm ár en margar fjölskyldur myndu taka því fagnandi, einkum og sér í lagi efnaminni fjölskyldur. Jöfnuður og góð velferðarþjónusta fyrir alla er grunnurinn að réttlátu samfélagi og lækkun aldurs þeirra sem njóta frí­ stundatyrkja er hluti af þeirri stefnu. Höfundar skipar 2. sæti og 21. sæti á lista Samfylkingarinnar. Aukum þátttöku barna og ungmenna í frístundastarfi Sigrún Sverrisdóttir Steinn Jóhannsson Velkomin vertu Sunna er yfirskriftin á vortónleikum Gaflarakórsins í Víði­ staðakirkju kl. 20 í kvöld, miðvikudag. Gaflarakórinn kór eldri borgara hefur verið starfandi síðan 1994 og er síungur kór á aldrinum 65­92 ára. Nú er blásið til vortónleika og koma góðir gestir í heimsókn. Það eru Vor­ boðar úr Mosfellsbæ sem er kór eldri borgara þar í bæ og Álftaneskórinn af Álftanesi. Munu kórarnir bæði syngja einir sér og síðan allir þrír kórarnir saman. „Lítið var um kórastarf á tíma kóvid en sönggleðin var mikil þegar hægt var að koma saman og æfa á nýjan leik,“ segir Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir stjórnandi Gaflarakósins. „Kórinn æfir tvisvar í viku á mánudögum og mið­ vikudögum og eru nýir félagar ávallt velkomnir og því tækifæri að koma á tónleikana og hlýða á falleg lög og kynnast því starfi sem þar fer fram,“ segir Kristjana sem hefur stjórnað kórnum í 17 ár. Vorboðum stjórnar Hrönn Helgadóttir og Ástvaldur Traustason stýrir Álftanes­ kórnum. Undirleikari til margra ára er Arngerður María Árnadóttir. Frítt er inn á tónleikana. Velkomin vertu Sunna Vortónleikar Gaflarakórsins í kvöld GAFLARAKÓR INN Kór Félags eldri borgara í Hafnarfirði VELKOMIN VERTU SUNNA Frítt er inn á tónleikana Víðistaðakirkju 4. maí kl. 20 Gestir: Álftaneskórinn Vorðboðar úr Mosfellsbæ Stjórnendur: Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir Hrönn Helgadóttir Ástvaldur Traustason Undirleikur: Arngerður María Árnadóttir Vortónle kar Gaflarakó sins Fyrir fjórum árum ákvað hópur fólks að bjóða fram óháðan lista í bæjar stjórn­ ar kosningum í Hafnarfirði. Sum voru að stíga sín fyrstu skref en önnur með reynslu af flokkum. Sameiginlegt öllum var metnaður til góðra verka í bland við lítinn áhuga á flokkakerfinu. Menning stjórnmála flokk­ anna hefur ekki alltaf gagnast Hafnarfirði vel. Löng hefð þrá­ látra átaka með tilheyrandi togstreitu og neikvæðni veldur því að góð mál missa marks ef þau koma „úr rangri átt“ og illvíg ásýnd bæjarmálanna fælir íbúa frá þátttöku í eigin málum. Bæjarlistinn fékk fulltrúa kjörinn 2018 og hefur starfað á vettvangi bæjarins síðan. HÖRÐ Á MÁLUM EN MJÚK Á MANNINN Við höfum lagt okkur fram um málefnalega nálgun út frá hagsmunum íbúanna, enda starfar Bæjarlistinn ein­ ungis fyrir Hafnfirðinga. Við andmæltum sölunni á hlut bæjar­ búa í HS Veitum kröftuglega og gerðum athugasemdir við framkvæmd og undir­ búning þess ferlis. Salan var hvorki nauð­ synleg né nægilega rökstudd enda er í dag ekki hægt að sjá skýrt hvert fjármunirnir sem fengust fyrir hlut bæjarins fóru. Þeir virðast hafa farið í hítina. Bæjarlistinn hefur ekki bara veitt aðhald, heldur líka lagt fram fjölda tillagna sem sumar hlutu brautargengi. Við and­ mæltum þrengdum reglum NPA þjónustu og gerðum fjöl­ margar úrbótatillögur á þeim sem því miður voru allar huns­ aðar. Tillögu um heild stæða stefnumótun í búsetumálum fatlaðs fólks var vel tekið en síðan ekki fylgt eftir. Ánægjulegt var hins vegar að sjá tillögu okkar um iðjuþjálfun í skóla rata í fjárhagsáætlun og mikilvægt að vel takist. ÉG VILDI AÐ ÉG GÆTI BARA KOSIÐ FÓLK.. Þetta heyrist oft þegar kosningar nálg­ ast. Áherslur Bæjarlistans ráðast af fólk­ inu sem hann skipar og einkennast af heilsu eflingu, fjölskylduvænu samfélagi, ábyrgu skipulagi, umhverfisáherslum og íbúasamráði. Hafnfirðingar geta kosið fólk í stað flokka. Ég þakka fyrir minn tíma í bæjarstjórn og treysti nýrri forystu Bæjarlistans til allra góðra verka. Höfundur er bæjarfulltrúi og skipar 4. sæti Bæjarlistans. Bæjarlistinn – bara fyrir Hafnarfjörð Guðlaug Svala Kristjánsdóttir

x

Fjarðarfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fjarðarfréttir
https://timarit.is/publication/1526

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.