Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 6

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 6
þessum fiski, og tekið var að veiða lax í þorskanet. 1959 veiddist lítið af þorski, og þá sneru Græn- lendingarnir sér að laxinum. Það ár veiddu þeir 4000 fiska. Síðan hefur fjöldinn farið vaxandi. í fyrra, 1969, veiddust við Grænland 667.000 laxar. Veiðarnar hófust fyrir alvöru 1963, en síðan þá hefur veiðin farið vaxandi, þegar á heildina er litið, og varð mest í fyrra. Er þeirri vertíð lýk- ur, sem nú stendur yfir, má telja, að á sex síðustu vertíðum við Grænland hafi veiðzt hátt á fjórðu milljón laxa. Nær allur laxinn, sem veiðist, vegur um sjö pund, að meðaltali, þegar hann hefur verið slægður. Allur er fiskurinn um það bil að hefja aðra vetrardvöl sína í sjónum. Næði hann eðli- legri stærð, myndu laxamir vega um 10—14 pund að vori, er þeir legðu leið sína heim á leið; en dauður lax er dauður lax. fslenzkur lax hefur veiðzt við Grænland. Hvort þar er um tilviljun að ræða, eða ekki, getur eng- inn fullyrt, að svo stöddu, en ljóst má vera, að sama lögmál myndi í þessu tilliti gilda um íslenzka laxinn og þann erlenda, að aðeins sá lax, sem dvelst tvo vetur í sjó, eða lengur, veiðist við Græn- land; ekki einn vetur, eins og meginið af okkar laxi mun nú gera. Framkvæmdastjóri „Atlantic Salmon Associa- tion“, í Kanada, T. B. Frazer, hefur þó látið eftir sér hafa, að þótt aðeins eitt íslenzkt merki hafi komið til skila frá Grænlandi, sé það ekki sönnun Línuveiðarar í norskri höfn. þess, að íslenzki laxinn veiðist ekki þar. Frazer bendir á, að íslendingar hafi ekki merkt ýkja mikið af laxi. Hins vegar hafa merkingar leitt í ljós, að Græn- landsveiðarnar taka mestan toll af laxi, sem á heimkynni sín í Kanada, Maine-ríki, í Bandaríkj- unum, og á Bretlandseyjum. Þótt miðað sé við árið 1963, þegar rætt er um upphaf veiðanna í stórum stíl, þá var árið 1965 ekki síður örlagaríkt. Þá hófust rekneta- og línu- veiðar á laxi á sundinu milli Grænlands og Kanada. Þessar veiðar, úthafsveiðar, stundaðar ut- an grænlenzkrar fiskveiðilögsögu, hafa tekið mik- inn toll. Fyrir rúmum tveimur árum hófst svo nýr þátt- ur sjávarveiðanna á laxi, við Noreg. Norski laxinn virðist halda sig að mestu undan norðurströnd- inni norsku. Fyrsta árið veiddust um 150.000 lax- ar, sumir mjög smáir, eða aðeins um eitt pund, og margir vart flokkaðir undir neyzluhæfa vöru. 1969 var veiðin 300.000 laxar, eða um þrír fjórðu af því, sem áður hefur veiðzt árlega í Noregi, í net og á stöng. í ár hurfu margir bátanna af miðunum við Noreg, vegna ónógrar veiði, enda kom svo í ljós í sumar, að árnar voru að mestu laxlausar, miðað við það, sem áður hefur verið. Brezkur lax hefur verið meðal þess, sem veiðzt hefur við Noreg, svo og Færeyjar, þar sem þriðji meginþáttur sjávar- veiðanna hefur farið fram. Við Færeyjar hefur einnig veiðzt lax, merktur á íslandi. 4 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.