Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Síða 20

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Síða 20
um töluliðum 83. greinar, eða 84. grein. Að öðru leyti virðist ljóst, að lögin þarfnast verulegra við- auka, og ekki sízt ákvæða um framkvæmd, en lítum á IX. kafla laganna, eins og hann er nú. 83. grein. 1. Bannað er að láta í vötn frá iðjuverum, eða sleppa um vötn í skurði eða aðrar veitur, nokkra þá hluti, fasta, fljótandi eða loftkennda, sem spilla mundu botni vatns eða bakka eða vatninu sjálfu, svo að hættulegt sé mönnum eða búpeningi eða spilli veiði í vatninu. Bannað er og að láta slík efni á ís eða svo nærri vatni, að hætt sé við að þau berist í það. 2. Báðherra getur þó veitt undanþágu frá þessu banni með þeim skilyrðum, er hér segir: a. Ef neyzluvatni er spillt, skal leyfið bundið því skilyrði, að iðjuhöldur leggi til annað jafngott vatnsból, eða greiði kostnað af að koma upp öðru vatnsbóli jafngóðu. b. Ef veiði er spillt, skal skylda iðjuhöld til að láta viðeldi í vatnið, sem nægi til þess að veiði haldist eigi minni en var, ella bæta veiðispjöllin fullum bótum. c. Iðjuhöldur skal að öðru leyti bæta það tjón, sem hljótast kann af framfærslu óhreinindanna frá iðjuveri hans. 3. Bætur skal greiða eftir mati, nema um semji. 4. Leyfi skv. öðrum lið má taka aftur bótalaust hvenær sem er eða breyta skilyrðum, ef nauðsyn þykir til bera vegna hagsmuna almennings eða einstakra manna. 5. Nýtt leyfi þarf til hverrar þeirrar breytingar, sem frekari spjöll geta af hlotizt, þótt áður hafi verði veitt leyfi samkvæmt 2. lið. 84. grein. Bannað er annars að sleppa í vötn um skurði eða með öðrum hætti að henda í þau, á ís eða svo nærri þeim, að hætt er við að í þau berist, þeim efnum, sem í 83. grein segir, ef hætt er við að þau spilli vatni, botni þess eða bakka, flóðhæð eða framrás. 85. grein. Ráðherra eða sá, er hann veitir heimild til þess, getur sett reglur til verndar gegn skaðlegri ó- hreinkun vatns, þó eigi verði af völdum iðjuvera, þegar vatn er óhreinkað í annarri sveit en þeirri, sem hætta stendur af því, enda geti sveitarstjórnir þær, sem hlut eiga að máli, ekki orðið ásáttar, hvað gera skuli. Áður en slíku máli er til lykta ráðið, skal leita álits þeirra heilbrigðisnefnda eða hreppsnefnda, sem málið varðar. Laxveiðiánum fer fœkkandi. 1. málsgrein 83. greinar er mjög athyglisverð. Hún virðist taka af allan vafa um, hver er réttur iðjuvera til þess að leiða frá sér skaðleg efni í ár og vötn. Virðist sá réttur nánast enginn. Dæmi eru þó til þess, að úrgangsefni, sem teljast verða skað- leg, séu leidd í ár, án þess, að umræddri lagasetn- ingu hafi verið beitt. Tilgangur þessara skrifa er þó síður en svo að hvetja til málaferla, eins og síðar verður vikið að. Um undanþágur þær, sem kveðið er á um í 2. málsgrein, a-lið, er helzt að benda á, að hæpið er, að á okkar dögum verði veitt heimild til meng- unar vatnsbóla, jafnvel þótt völ sé á öðrum. Um b-lið virðist ljóst, að hann muni erfiður í framkvæmd, enda sennilega byggður að hluta á misskilningi, sem algengur var fyrrum. Lengi var það trú manna, að bæta mætti fyrir skaðlega mengun veiðivatna með ræktun, svo að allt yrði eins og áður var. Þetta er að sjálfsögðu misskiln- 18 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.