Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Síða 21
ingur, því að séu vatnsgæðin orðin það lítil, að
fiskur eigi þar erfitt uppdráttar, virðist ekki með
góðu móti hægt að sjá, að alifiskur muni standa
sig betur. Hægt er að vísu að gefa sér hugmynda-
eða stærðfræðilega forsendu þess, að ákveðið stig
mengunar drepi ákveðið hlutfall fiskistofnsins,
sem aftur megi bæta. Hins vegar hlýtur almennri
heilbrigði fiskistofnsins að fara aftur með hrak-
andi lífsskilyrðum, og fiskurinn þá meðal annars
að verða verri, eða óhæfur, til neyzlu.
Reynslan erlendis var sú, að fyrstu viðbrögð
manna við þverrandi fiskistofnum (t. d. göngu-
fiskastofnum), voru þau að reyna að fylla í skarð-
ið með ræktun (sömu fiska), en er ræktaði fiskur-
inn hafðist ekki heldur við, þá var reynt að gripa
til ræktunar annarra, skyldra fiska. Brátt kom þó
í ljós, að æðri fisktegundum varð ekki við haldið,
og ástæðan var að sjálfsögðu sú, að sjálf grund-
vallarvandamálin voru óleyst, eftir sem áður. Fyrri
lífsskilyrði voru ekki lengur fyrir hendi, og þau
gat ræktun ekki endurheimt. Smám saman náðu
þannig nytjalausar, óæðri fisktegundir, sem oft
og tíðum má reyndar nefna skólpfiska, undirtök-
unum, en það var greinilega ekki það, sem stefnt
var að með umræddum ræktunartilraunum.
Ekki skal hér haldið áfram að ræða ágæti ein-
stakra liða löggjafarinnar, þó benda megi á, að
4. málsgrein 83. greinar felur í sér sjálfsagðan ráð-
stöfunarrétt.
Tilgangur þessara skrifa er ekki að kryfja ein-
staka liði þessara lagaákvæða til mergjar; aðeins
að vekja menn til umhugsunar um löggjöf, sem
stenzt greinilega ekki lengur kröfur tímans. Ljóst
er þó, að lagasetningin byggir helzt á þeirri for-
sendu, að mengunar í vatni sé helzt að vænta frá
iðjuverum. Þaðan kemur að vísu oftast hættuleg-
asta mengunin, þótt ekki sé það einhlítt. Af-
rennsli frá mannabústöðum og skepnuhúsum get-
ur þannig orðið hættulegt, svo og hvers kyns önn-
ur lífræn efni, sem taka til sín súrefni vatnsins,
en kunna jafnframt að reynast góður áburður á
óheppilegan og súrefnisfrekan botngróður, sem
raskar jafnvæginu enn frekar.
Þótt X. kafli vatnalaganna fjalli að nokkru um
heimildir bæjarstjórna til þess að leggja holræsi
til þess að taka við skólpi, þá fjallar IX. kaflinn,
„Um óhreinkun vatna“, ekki um mengun af völd-
um skólps eða klóaks. Þó er ljóst, að klóak er leitt
í íslenzkar ár, eða í sjóinn við ósa þeirra, og nokk-
ur iðjuver leiða frá sér úrgangsefni, á sama hátt.
Meginatriðið, eins og nú stendur, er alls ekki
að hvetja til málssóknar á hendur þeim, sem
kunna að hafa gerzt brotlegir við lögin frá 1923,
sem hefur sennilega aldrei verið beitt af alvöru.
Höfuðatriðið er að hefjast handa um úrbætur;
að gera skipulagt átak til þess að leiða burtu
óhreinindin. Grundvöllur þess átaks verður að
vera gagngerð könnun vatnanna, og þá fyrst og
fremst þar, sem vitað er nú þegar, að pottur er
brotinn. Ekki að hefja deilur. Ekki að sakast við
þá menn, sem nú stjórna þeim iðjuverum og kaup-
túnum, sem hér eiga hlut að máli, heldur að fá þá
til samstarfs, og með góðum hug og vilja á ríkis-
valdið að leggja grundvöllinn að sameiginlegri
samstarfsáætlun um að útrýma menguninni; og
hví ætti það ekki að vera hægt?
Mál af þessu tagi má ekki fara af stað með ill-
indum og deilum, heldur með það í huga, af allra
hálfu, að útgjöldin, á þessu stigi málsins, eru við-
ráðanleg, og vel það, og það skiptir höfuðmáli.
Þá er tækniþekkingin fyrir hendi. Hins vegar virð-
ist óhætt að fullyrða, að svo þægilegt úrlauSnar
verði vandamálið ekki, ef lengra líður, án þess,
að nokkuð sé að gert.
Margt er óljóst um framkvæmd IX. greinar
vatnalaganna, og mun jafnvel ekki liggja fyrir,
hver fer með framkvæmdavaldið, í hverju ein-
stöku tilfelli.
Hér þarf að kveða nánar á um, með nýrri lög-
gjöf, eins og reyndar fjölmargt annað um vatns-
mengunarmálin, í ljósi aukinnar þekkingar síð-
ustu fimm áratuga.
Undirbúningur slíkrar löggjafar er vissulega
tímabær. Hér er um að ræða þjóðþrifa og alvöru-
mál, sem togstreita má ekki hefjast um, hvorki
á þingi né annars staðar. Því verður að vona, að
pólitísk tortryggni og eigingirni verði látin víkja
fyrir framgangi framsýnna sjónarmiða; að menn
úr öllum flokkum taki saman höndum, því að
fáir munu þeir þingmenn, sem óska þess ekki í
hjarta sínu, að hreinleiki íslenzkra vatna verði
varðveittur. Ásgeir Ingólfsson.
VEIÐIMAÐURINN
19