Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Qupperneq 24

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Qupperneq 24
Hvað er á? Á er ekki aðeins fallegur, rennandi vökvi, sem taka má til neyzlu, hvenær sem er, og í hvaða mæli sem er. Á er í eðli sínu miklu flóknara fyr- irbæri. Hún er margbrotin lífvera, sem hefur eigin sérkenni og lýtur ákveðnum lögmálum, og því geta aðstæðumar verið breytilegar frá einni á til annarrar. Árvatnið hefur að geyma málmsölt og lofttegundir, sem ráða mestu um sjálf vatns- gæðin; magn þessara efna ræðst aftur að miklu leyti af gróðri á árbökkunum og á árbotninum, svo og af áhrifum sólarljóssins. í hverja á berast óhreinindi úr nærliggjandi jarðvegi, frá landbún- aði, dýram og fuglum, en oft er einnig um að ræða afrennsli mannabústaða og mengun frá iðju- verum; við allt þetta getur áin ráðið, en aðeins upp að vissu marki. Lífræn efni verða uppleystu súrefni vatnsins að bráð, fyrir tilverknað ýmissa örsmárra lífvera, sem eiga tilveru sína undir ýmsum lofttegundum vatnsins, og gróðrinum í því. Straumhraði, dýpi og önnur sérkenni ánna hafa einnig sín áhrif, og því er hver óspillt á í raun og veru lífræn vera, sem er í fullkomnu jafnvægi. Sé þessu jafnvægi náttúrunnar raskað, annað hvort með því að hleypa í ána meiri úrgangsefn- um en hún getur ráðið við, eða með því að leiða úr henni of mikið vatn, eða leiða vatn úr henni á röngum stað, þá verður áin „veik“. Hún mun ekki ráða við mengunina, og ástandið fer sífellt versnandi, svo að vatnið verður ónothæft, bæði til margvíslegrar hagnýtingar í landbúnaði og iðn- aði, og þá að sjálfsögðu til drykkjar, nemi til komi mjög dýrar hreinsunaraðgerðir. Hvort mengað vatn, sem þannig er hreinsað til neyzlu, nægir til þess að halda við heilbrigði mannsins, mun sagan leiða í Ijós. Þegar maðurinn veikist, gerir það vart við sig með sjúkdómseinkennum, til dæmis háum hita; en hvemig á að fylgjast með heilsu árinnar? Nátt- úran hefur gefið okkur góðan mælikvarða — óspillt á hefur að geyma heilbrigðan fiskistofn. Taki fiskunum að fækka, eða heilsufari þeirra að hraka, þá er það óbrigðult merki þess, að eitthvað sé að. Fiskurinn er öryggisvörður okkar, og hann er ómetanlegur í því hlutverki. „The Salmon & Trout Magazine“. minnsta móti, ekki nema 6.13 pund. Stærsti lax- inn vóg 17 pund, og veiddist hann 19. júlí í Ár- mótum. Stærsti flugulaxinn var 10 pund, veiddur í Grjóthyl 22. ágúst á Sweep nr. 8. Tölumar um laxveiðina í Miðfjarðará sumarið 1970 eru ískyggilegar, ekki sízt þegar haft er í huga, að í flestum ám veiddist afbragðsvel þetta sumar. Miðfjarðará má muna tímana tvenna, því að árin 1957—1964 var meðalveiðin 1571 lax á sumri, og 1958—1963 veiddist árlega meira í Mið- fjarðará en nokkurri annarri stangveiðiá á landinu. Árin 1965—1970 er meðalveiðin aftur á móti að- eins 717 laxar á sumri. Þetta hlýtur að vera alvar- Iegt umhugsunarefni öllum þeim, sem hlut eiga að máli, Magnús Ólafsson. 22 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.