Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 32

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Blaðsíða 32
Nýja Englandi voru veiðimenn oft búnir að búa um sig, áður en raunverulegir landnemar komu á vettvang. Arið 1628, aðeins átta árum eftir að menn fluttust vestur um haf, var lax orðinn út- flutningsvara við Merrymeeting-flóa, í Mainríki. Þá komst Thomast nokkur Purchase svo að orði: „. . . gerði sér bústað við Pejepscot-fossa . . . Sagt er, að hann hafi selt skinn, og lax, til útlanda. Skrár sýna, að á þremur vikum hafði verið saltað niður í 39 laxatunnur, og um 90 hálftunnur af öðrum göngufiski, og er þá ekki talið það, sem eyðilagðist af saltskorti. Menn, sem betur hefðu kunnað til verka, hefðu veitt miklu meira.“ Um 1800 var lax horfinn úr mörgum ám í Nýja- Englandi, og þegar komið var fram yfir 1860, var aðeins hægt að stunda netaveiðar á laxi í at- vinnuskyni í ánum í Maine. Ástæðurnar fyrir því, hvernig komið var, má lesa í skýrslu veiðimála- stjórans í Maine, frá árinu 1867: Stíflur, sem fisk- ur kemst ekki yfir, rányrkja og vatnsmengun. Þessar eru meginástæðurnar til þess, að lax hvarf úr mörgum vötnum nýja heimsins, og þær réðu því einnig, hver urðu örlög Rínarlaxins, nafntog- aða. En hve oft látum við ekki viðvaranir fortíðar- innar eins og vind um eyrun þjóta. Sú reynsla, sem fékkst í þessum efnum, fyrir hundrað árum, er enn í fullu gildi. Sem betur fer, voru þá, eins og nú, til einstakl- ingar, sem höfðu þungar áhyggjur af því, hvemig farið var með göngufiskana. Þegar á árinu 1856 bárust tilboð frá áhugasömum borgurum um að kosta nýræktun laxánna í Nýja-Englandi, og reyndar öðrum ríkjum. Þessir einstaklingar fylgd- ust af áhuga með fiskiræktartilraunum, sem gerðar voru á meginlandi Evrópu, og á Bretlandseyjum, svo og tilraunum, sem verið var að gera í Kanada. Árið 1867 hófust tilraunir með flutning hrogna frá Miramichi-á, í Kanada, til New Hampshire. í grein, sem nefnist „Ritgerð um hagkvæma laxarækt“, eftir Thomas Ashworth, í Bath, í Eng- landi, og gefin var út 1866, var að finna atriði, sem vöktu þegar mikla athygli í Nýja Englandi, og á greinin sennilega mestan þátt í því, að fyrsta opinbera laxræktarstöðin var reist nærri Bucks- port, í Maine, árið 1870. Telja má víst, að fyrsti yfirmaður stöðvarinnar, Charles G. Atkins, taldi ritgerð Ashworths merki- legt framlag. Atkins er sennilega þekktastur fyrir laxamerkin, sem báru nafn hans, og fyrir merk- ingartilraunir þær, sem hann hóf árið 1873 á nið- urgöngulaxi. Margar af aðferðum Atkins eru í fullu gildi, enn þann dag í dag. Áhuginn fyrir fiskirækt dó vissulega ekki út, en hann nægði ekki. Laxinn hélt áfram að hverfa úr á eftir á á austurströnd Bandaríkjanna. í ör- væntingu sinni til þess að bæta upp fiskleysið, reyndu menn að rækta í ánum aðrar fiskitegundir, sem líktust laxi; urriða, Kyrrahafslax, sjógenginn regnbogasilung og ýmsar óæðri fisktegundir, en það kom ekki að neinu haldi. Grundvallarvanda- málin voru óleyst, og því voru allar þessar til- raunir fyrirfram dauðadæmdar. Netaveiði á laxi fór hraðminnkandi í Maine, úr 152.700 pundum, árið 1899, í 20.600, árið 1919; og veiðin hélt áfram að minnka, og 1945 var hún að- eins tæp 11.000 pund. Að lokinni heimsstyrjöldinni síðari, fór athygli manna að beinast að náttúruauðæfum, og þar kom sennilega einnig til aukinn frítími fólks; það vildi fara að endurnýja kynni sín við móður náttúru. Stangaveiði fór svo ört vaxandi, að einstætt var, og í landi, þar sem menn hrósa sér af því, að rétt- Gönguseiðin, sem sleppt er, eru ojt rúmlega 100 grömm, og alin í 2 ár. 30 VEIÐIMAÐURINN
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.