Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Side 46

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Side 46
Hleðslutœki jyrir rijflapatrónur. Til vinstri sést þegar skothylkið er þrengt og hvellhettunni ýtt úr um leið. T. h. er kúlunni stungið í ejtir að púðrið hejur verið skammtað eða vegið. Vilji menn búa til ajar nákvæm skotjæri, t. d. jyrir keppni á mótum, þarj að vega nákvœmlega skammtinn í hvert skot. talsvert lægra verð, en það er mjög auðvelt að fá betri skotfæri fyrir riffla með heimahleðslu fyrir h. u. b. helmingi minna verð en þau fást í buðum. Lausnin liggur í því að við hleðslu riffil- skothylkja er mest komið undir því að púðrið sé vegið nákvæmlega og kúluþyngd sé sú sem hentar rifflinum bezt, einnig hitt að meir en helmingur verðs skothylkja í stærri riffla en kal. 22 liggur í hinu dýrmæta messingefni patrónunnar sem hægt er að nota aftur og aftur til heimahleðslu. Endurhleðsla riffilskothylkja. Hún er fólgin í því að nema burtu notuðu hvell- hettuna, setja nýja í staðinn, þrengja alla patrón- una eða hluta af henni, setja nýja púðurhleðslu í skothylkið og loks kúlu. Allt þetta er hægt að gera með einföldustu tækjum en auðvitað er betra og fljótlegra að nota fullkomin, vönduð tæki. Þegar hleypt er af riffilskoti, þrútnar allt skot- hvlkið við sprenginguna og leggst límfast að patrónuhúsi byssunnar, en um leið og skotið er riðið af og gasþrýstingurinn fellur, kólnar skot- hylkið og skreppur saman örlítið, en nægilega, til þess að auðvelt sé að draga það út úr hlaupinu. Skothylki eru búin til úr málmblöndu, messing, og gæði skothylkjanna er mjög undir því komin hve stælt málmblandan er og hve vel hylkið tekur sig aftur eftir hinn gríðarmikla hita sem myndast inni í því við skotið. Gömul herskot eru t. d. oftast úr mjög lélegu efni og borgar sig vart að reyna að endurhlaða þau. Amerísk skothylki hafa á síð- ustu árum verið frábærlega vönduð, enda flest ætluð til endurhleðslu. Sömu sögu er að segja um flest skothylki frá Vestur-Evrópu, enda eru þau oft ætluð öðrum þræði fyrir Ameríkumarkað. Þrátt fyrir nákvæma smíði eru patrónuhús riffla þó af sömu tegund og kaliber sé, sjaldan alveg nákvæmlega eins, og sérstaklega er þetta dálítið breytilegt hjá hinum ýmsu verksmiðjum. Þannig verða notuð skothylki úr tveim rifflum sjaldan alveg eins ef þau eru sett undir mikrómetríska mælingu. Patrónuhálsinn hefur ætíð víkkað svo að kúla myndi ekki sitja föst í honum nema hann væri þrengdur fyrst. Þetta er því frumatriði 44 VEIÐIMAÐURINN

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.