Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Page 48

Veiðimaðurinn - 01.11.1970, Page 48
Önnur tæki eru vogin og púðurskammtari. Slík tæki kostuðu s. 1. sumar hér á landi nálægt 7000 kr. og aukahlutir fyrir hvert kaliber ca. 1500 kr. Þessum tækjum fylgja venjulega góðar leiðbein- ingar um notkun, en í stuttu máli fer hleðslan fram á þennan hátt. Fyrst eru allar patrónurnar athugaðar hvort þær hafi á nokkurn hátt skemmst eða séu gallaðar og er shkum patrónum fleygt. Því næst er þrenging- arhólkurinn skrúfaður í pressuna og botn hans og úrrekið stillt rétt samkvæmt leiðbeiningunum. Patrónan síðan smurð í sérstakri feiti, sett í gripkló pressusleðans og þrýst inn í þrengingarhólkinn með vogarafli handsveifarinnar. Þá gerist tvennt í senn, patrónan þrengist og notuðu hvellhettunni er ýtt úr. Ný hvellhetta er sett í um leið og patrón- an er dregin út úr hólknum og er þá fyrri umferð pressunnar lokið. Þannig er haldið áfram þar til búið er að þrengja og skipta um hvellhettu í öll- um þeim patrónum sem hlaða á í það sinn. Því næst er skipt um stykki í pressunni, kúluísetning- artækið skrúfað í. Ef notaður er púðurskammtari þarf að stilla hann á rétt magn og síðan eru patrónurnar einfaldlega fvlltar með réttum púð- urskammti, látnar í sömu gripkló og áður, kúlunni haldið við hálsopið og patrónuni síðan ýtt með gætni upp í hólkinn. Við það þrýstist kúlan á sinn stað og fer hvorki of langt né skammt. Öll feiti er síðan þurrkuð af skothylkinu og hleðslunni er lokið. Æfður maður getur hlaðið um 100 skothylki á klst. í góðri pressu, en hraðinn er sjaldan höfuð- atriði heldur hitt að vanda sig og með natni er auðvelt að fá jafngóð eða betri skotfæri en fram- leidd eru í hinum sjálfvirku verksmiðjum. Hvað verði viðvíkur, hefur svo háttað til hér að ennþá hefur verið hægt að fá hleðsluefni fyrir tæplega helming verðs nýrra skothylkja. Þegar þetta er ritað kosta Hvellhettur í 222 Rem. kr. 80.00 í 100 skothylki Púður ca — 170.00 -----— Kúlur — 275.00 -----— Samtals kr. 525.00 Ný verksmiðjuhlaðin skotfæri kosta hinsvegar kr. 11,00—15,00 og sést þá hver hagur er af því að hlaða sjálfur. Hyggilegast er fyrir allmarga félaga sem áhuga hafa á skotfimi að kaupa sér í sameiningu vönduð tæki. Ef þeir nota mismunandi rifflakaliber þurfa þeir aðeins aukalega sett af „dies“ fyrir hvert kaliber. Þar sem verð á skot- færum fyrir hinar stærri gerðir riffla s. s. 243 Win. /30/06, 7 mm Mauser o. s. frv. er nú einhvers- staðar milli 15—40 kr. stykkið sést hve fljótt kostnaðarverð, jafnvel mjög vandaðra hleðslu- tækja, næst inn með því að hlaða sjálfur. Athuga ber vandlega að fylgja jafnan þeim reglum sem gefnar eru af þeim sem framleiða efni til endurhleðslu. Leiðbeiningar um púður- magn geta venjulega um minnstu hleðslu og mestu hleðslu fyrir hverja tegund púðurs og segja til um í hvaða kaliber skuli nota hana. Mjög áríð- andi er að gera engar tilraunir utan þessara marka. 46 VEIÐIMAÐURI N N

x

Veiðimaðurinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.