Verktækni - 2021, Page 7

Verktækni - 2021, Page 7
 Icelandic Journal of Engineering // Verktækni Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 7 Staða þekkingar Ritrýndar greinar voru lesnar til að bera kennsl á þætti sem fullyrt er að hafi áhrif á frammistöðu teymisins. Þessir þættir voru síðan flokkaðir í rökrétta hópa til að auðvelda framsetningu þeirra. Eftirfarandi er niðurstaða heimildarýninnar á þeim 45 greinum sem voru viðeigandi og eru niðurstöðurnar kynntar í hópunum sem þættirnir tilheyra. Liðsmeðlimir (e. team members) Að mæla eiginleika liðsmanna og nota sem mælikerfi hefur verið gert út frá mismunandi aðferðum. Notuð hafa verið persónuleikapróf (e. Big five personality test) (Kichuk & Wiesner, 1997), Myers- Briggs flokkun (e. Myers-Briggs Type indicator) (Culp & Smith, 2001), Kolb reynslunám (e. the Kolb experiential learning theory) (Lau, Beckman, & Agogino, 2012), lærdómsstílslíkan Felder og Silverman (e. the Felder and Silverman learning style model) (Goswami, Walia, & Singh, 2015) og sjálfsskynjunarlíkan Belbins (e. the Belbins’ Self-Perception inventory) (Nukic, Galic, & Dolacek- Alduk, 2015). Þessi mælikerfi hafa verið notuð til að reyna að tengja frammistöðu liðs við ákveðna eiginleika innan hvers líkans. Aðrir liðaárangursþættir (eiginleiki meðlima) eru hvatning (e. motivation) (Salas, Cooke og Rosen, 2008), menningarlegir þættir (e. cultural factors) (Salas o.fl., 2008), færni (e. skills) (Driskell, Salas og Hughes, 2010), viðhorf (e. attitudes) (Driskell o.fl. , 2010) og vitrænir þættir (e. cognitive factors). Vitrænir þættir eins og vitrænir fjölbreytileikar (e. cognitive diversity) (Sauer, Felsing, Franke og Ruttinger, 2006), örvitrænir þættir (micro-cognitive factors) mannshugans (eins og athyglisstjórnun (e. attention management), minni osfrv.) (Palmqvist, Bergstrom og Henriqson, 2012) og vitræn geta (e. cognitive ability) (Salas et al., 2008). Hegðun liðsmanna, eins og frumkvæðis félagsleg hegðun (e. proactive socialization) (Pennaforte, 2017) getur haft áhrif á frammistöðu. Samskipti (e. communication) Líta má á samskipti sem innri eða ytri samskipti (Sivasubramaniam, Liebowitz, & Lackman, 2012). Hægt er að meta innri samskipti út frá samskiptatíðni (Patrashkova-Volzdoska, McComb, Green, & Compton, 2003), verkfærum sem veitt eru til að auðvelda samskipti, eðli samskipta og stig samskipta (DeFranco, Neill, & Clariana, 2011). Líta má á munnleg samskipti sem eina gerð samskipta eða safn orðaskipta (e. verbal episodes) (Menekse, Purzer, & Heo, 2019). Til eru þrjár gerðir af þáttum: spurningar, átök og rökhugsunarskipti (e. reasoning episodes) (Menekse et al., 2019). Munnleg samskipti má magntaka t.d. með: fjölda framsagna (e. utterance), fjölda orða í framsögn eða lengd framsagna en ekki sem tónfall eða líkamsmál (Macht & Nembhard, 2015). Ekki eru öll samskipti gagnleg og misskilningur kemur ítrekað fram. Misræmi í samskiptum má flokka í 6 stig, frá I til VI. Stig I er að yfirfærsla merkingar er í eðli sínu gölluð (e. meaning-transfer inherently flawed), stig II er minni háttar misskilningur eða mistúlkun venja (e. minor misunderstandings or misreadings routine), stig III er álitnir persónulegir annmarkar (e. presumed personal deficiencies), stig IV er markmiðatenging (stjórn, tengsl, sjálfsmynd, verkfærni) (e. Goal-referenced (control, affiliation, identity, instrumentality)), stig V er menningarlegur munur á tungumáli og samskiptamynstri (e. Group/cultural norm differences in language and communication) og að lokum er stig VI hugmyndafræðilegur rammi samskipta; félags-menningarlegt valdaójafnvægi (e. Ideological framings of talk; socio-cultural power imbalances) (Brewer & Holmes, 2016). Innri samskiptin er einnig hægt að meta með samstarfsgæðum (e. Collaboration Quality) sem bjóða upp á heildstætt mat sem sameinar: umfang umræðna, dýpt sameiginlegs framlags sem byggir á hugmyndum liðsmanna, útfærslu hugmynda liðsmanna, notkun á hvernig/ hvers vegna spurningum við að kanna hugmyndir liðsmanna og sameiginlegt eðli ákvarðana (Menekse, Higashi, Schunn, & Baehr, 2017). Með ytri samskiptum er átt við samskipti utan teymisins, til skipuheildarinnar eða viðskiptavina. Forysta getur haft mikil áhrif á samskipti innan hópsins og er t.d. umbreytingarforysta (e. Transformational leadership) með persónulegri viðurkenningu, RITRÝNDAR FRÆÐIGREINAR 2021- 27- (1)

x

Verktækni

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.