Verktækni - 2021, Side 36

Verktækni - 2021, Side 36
 Icelandic Journal of Engineering // Verktækni (2021) 27 1 Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 36 Mynd 16 Vatnshæð. Vatnshæð undir austurálmu þegar norðausturhluti grunnsins var djúp-þjappaður. Meginsveiflurnar endurspegla flóð og fjöru. Við þjöppun reis vatnshæð hratt í borholum þegar staurinn var rekinn, en féll hratt aftur. Yfirþrýstingur sem myndast við titringinn jafnaðist þannig hratt út og náði hvergi að byggjast upp svo nokkru nemi á hlutfallslega stóru svæði. Tæknilegar upplýsingar um framkvæmdirnar i. Helstu tæki Valtarinn Volvo SD 135B sem er 12.7 tonn. Tromlan er 2,134 m á breidd , en 1,510 m að þvermáli. Í djúpþjöppun voru valtararnir stilltir á 32 Hz en á púða og yfirborði voru þeir stilltir á 24 Hz. Við þjöppun bögglabergs (grús) í efsta lag undir hús var notuð tíðnin 26 Hz (hefðbundin í bögglabergi). Djúpþjöppun Hamarinn er af gerðinni PVE 38E og vegur 7.5 tonn uppsettur. „Eccentric moment“ (hjámiðjuvægi/miðflóttaafl): 38 kgm. Max. centrifugal force (útsláttur): 1200 kN. Biti í hamarinn (H-biti) Bitinn sem var notaður er 30x30 að ummáli og fyrsti vængur 0, 60 m frá neðri enda. Byrjað var að nota bitann 12 m langan og hann lengdur í 18 m þar sem grunnurinn er dýpstur. Bitinn var svo styttur í 14 m þegar þjappað var vestar þar sem grynnra er á fast. Á bitanum er 4 vængir (2x2 í hvorri hæð) uppsettir hornrétt á H-bitann. Verklýsing í djúpþjöppun Bitinn var rekinn niður með um 2 m millibili. „Gígarnir“ sem mynduðust við þjöppun voru um 2 m í þvermál og um 0,5 m djúpir. Þjöppun í hverri holu tók að meðaltali um 40 mín. Icelandic Journal of Engineering // Verktækni Verkfræðing félag Íslands // Asso iation of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 36 AÐRAR GREINAR2021- 27- (1)

x

Verktækni

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Verktækni
https://timarit.is/publication/957

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.