Verktækni - 2021, Side 37
Icelandic Journal of Engineering // Verktækni
Verkfræðingafélag Íslands // Association of Chartered Engineers in Iceland - https://www.ije.is 37
ii. Tækjaskrá
Eftirtalin tæki voru í meira og minna mæli notuð við grunninn:
• Valtari: tveir Volvo SD135B.
• Dísilhamar: PVE 38E og með honum glussadæla sem telst með (eitt sett frá framleiðanda).
• „Búkollur“: BELL 30D og BELL 30E.
• Borun: Sérlega útbúin tæki frá Vatnsborun Árna Kópssonar.
• Vörubílar: tveir Volvo FH 13 "trailerar", tveir 4 öxla vörubílar Volvo FM 12 og Volvo FH 12 og
nokkrir fleiri eftir atvikum.
• Gröfur: Volvo EW 160E (hjólagrafa), NEW HOLLAND 3.6 (hjólagrafa), HITACHI ZX 280
(beltagrafa), VOLVO EC 480 (beltagrafa).
• Mælitæki frá Verkís og Wolfram (gps, alstöð o.fl.).
• Mobile krani: Grove 5220 (220 tonna krani).
• Honda rafstöð, Top Con laserar, Ammann 700 kg þjappa, Atlas Copco 700 kg þjappa,
Ammann 230 kg Þjappa og Ammann 110 kg þjappa ásamt nokkrum fleiri smátækjum.
Samantekt
Í grein þessari eru dregnar saman upplýsingar um það helsta sem fram hefur farið á lóðinni
Naustavör 52-58 sem vegna margháttaðra aðstæðna ríkjandi á lóðinni, einkum jarðfræðilegra og
jarðtæknilegra krafðist býsna ítarlegra og umfangsmikilla kannana svo fyllsta öryggis væri gætt í
hvívetna.
Mjög góð samvinna hefur verið með þeim sem að framkvæmdunum hafa komið, þ.e:
starfsmönnum BYGG og starfsliði VERKÍSS, verkfræðilegra raðgjafa við aðgerðir á svæðinu.
Segja má að flest við framkvæmdir í grunninum hafi gengið snuðrulaust fyrir sig, þótt aðstæður
þar séu um margt frábrugðnar t.d. þeim sem eru austar á Naustavararsvæðinu. Klapparyfirborði í
grunninum hallar mest til austurs og er á um 8 til 18 m dýpt. Á klöppinni, sem er
Reykjavíkurgrágrýti, er víða 1-2 m þykkt jökulruðningslag og ofan á því a.m.k. á hluta lóðarinnar
laus, allt upp í um 10 m þykk, mis-skeljarík botnsetslög, einkum sylti og fínsandur.
Að öllu samanlögðu verður a.m.k. enn ekki annað séð en að vel hafi tekist til með flest við grunn
húsaraðarinnar Naustavör 52 – 58 í Kópavogi.
AÐRAR GREINAR 2021- 27- (1)