Ægir - 01.09.2022, Síða 8
8
Stólpi Gámar óska
viðskiptavinum sínum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ár
Arthur Bogason, formaður Lands-
sambands smábátaeigenda, er ekki
bjartsýnn á að vinna við endur-
skoðun á fiskveiðistjórnunarkerf-
inu, hvar hann á sjálfur sæti í
nefnd, skili miklu. Hann segir hins-
vegar að aflabrögð smábáta um allt
land á árinu endurspegli gott
ástand þorskstofnsins, þrátt fyrir
ráðgjöf Hafró.
Skerðing þorskkvótans
óskiljanleg
„Það var afar ánægjulegt að sjá hve
vel smábátasjómönnum gekk í heildina
við veiðar í sumar og hversu hátt verð
þeir fengu fyrir aflann,“ segir Arthur
þegar hann er beðinn að gera upp al-
manaksárið. Hann segir að upp úr
standi hve gott ástand sé á þorsk-
stofninum. Um það vitni sjómenn um
allt land, studdir tölum um veiðar.
Á hinn bóginn segir hann óskiljan-
legt að Hafrannsóknastofnun skuli
leggja til sex prósenta samdrátt á út-
gefnu aflamarki í þorski. „Við búum
við þann veruleika að pólitíkin hlustar
aðeins á þá sem slá tölur inn í Excel-
skjöl. Hún tekur ekkert mark á sjó-
mönnum,“ segir hann ákveðinn. Arth-
ur vísar þarna meðal annars til þess
að meðal dagsafli smábáta í strand-
veiðikerfinu, sem róa allt landið um
kring, hefur aldrei verið meiri en í
sumar. Svipaða sögu er að segja af
stærri skipum; aflabrögð hafa verið
með allra besta móti. „Á sama tíma eru
aðrar tölfræðilegar breytur sem eng-
inn veit hvaða áhrif hafa. Það mót-
mælir því enginn sem til þekkir að
töluverðum afla er kastað á Íslands-
miðum. Ef menn hefðu réttar upplýs-
ingar um brottkast þá kæmi í ljós að
stofninn væri stærri en menn halda.
Gögnin sem ráðgjöfin byggir á eru
skökk.“
Reyna enn að ná sáttum
Svandís Svavarsdóttir, matvælaráð-
herra, hefur skipað fjóra starfshópa til
að greina áskoranir og tækifæri í sjáv-
arútvegi. Samhliða hefur verið sett
saman fjölmenn samráðsnefnd sem
hefur yfirsýn yfir vinnu hópanna fjög-
urra. Sæti í þeirri nefnd á Arthur, sem
hefur setið þrjá fundi af fjórum. Hann
er sannast sagna hóflega bjartsýnn á
útkomuna. „Ég ætla að bíða með stór-
yrtar yfirlýsingar en ég lýsti strax í
upphafi yfir efasemdum. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem menn hafa ætlað að
ná sátt um sjávarútveginn. Skoðana-
kannanir benda enn til að 70 til 80%
þjóðarinnar séu óhress með hvernig
fyrirkomulagið er.“
Arthur bendir á að niðurstöður eigi
að liggja fyrir skömmu fyrir næstu
kosningar. Reynslan segi honum hins
vegar að stórar ákvarðanir séu aldrei
teknar rétt fyrir kosningar. Hann
Skortir algjörlega
pólitískan kjark
Arthur Bogason, formaður Landssambands smábátaeigenda.
Smábátar