Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2022, Side 10

Ægir - 01.09.2022, Side 10
Hátíðarkveðja Við sendum landsmönnum öllum, til sjávar og sveita, hátíðarkveðjur með þökk fyrir samstarfið á árinu sem er að líða. bendir á að nefndinni sé uppálagt að leggja drög að nýjum heildarlögum um stjórn fiskveiða „eða“ setja ný lög um auðlindir hafsins og aðrar lagabreyt- ingar. Á þann fyrirvara líst Arthuri ekki. „Það skortir algjörlega pólitískan kjark stjórnmálamanna í þessu landi.“ Hugnast ekki boðaðar breytingar Formaður smábátaeigenda geldur var- hug við ýmsum tillögum sem komið hafa frá matvælaráðuneytinu. Hann nefnir fyrst strandveiðar en ráðherra hefur boðað að aflapottinum verði á nýjan leik skipt á milli landshluta. Arthur segir að það sé engin lausn. Löngu sé tímabært að tryggja smábát- um 48 daga án þess að stöðva veiðar þegar tilteknum aflaheimildum sé náð. Við það yrði öll togstreita manna og landshluta á milli úr sögunni. Stjórn- völd skorti hins vegar kjark til að taka þá pólitísku ákvörðun að veiðarnar geti á einhverjum tímapunkti orðið umfram veiðiráðgjöf. Hann bendir á að umræddum handfæraveiðum sé snið- inn mjög þröngur stakkur, bæði hvað varðar tímasetningu og afla í hverri veiðiferð en ekki síður veðurfar. Við blasi að þessar veiðar myndu ætíð endurspegla ástand þorskstofnsins við Íslandsstrendur. Hættan sé því engin. Fleiri áform stjórnvalda valda for- manni LS áhyggjum. Hann bendir á að til standi að leyfa enn frekari stækkun skipa í krókaaflamarkskerfinu. Þau áform muni leiða til þess að kvótinn verði á endanum fluttur á togara í eigu sömu útgerða og að kerfið renni þannig saman við aflamarkskerfið. Af þessu má ráða að Arthur, sem hefur lengst af verið formaður LS frá stofnun þess árið 1985, er mátulega bjartsýnn á framhaldið fyrir hönd smábátaeigenda. „Maður upplifir satt að segja blendnar tilfinningar þegar maður horfir yfir sviðið,“ segir hann. „Við búum við þann veruleika að pólitíkin hlustar aðeins á þá sem slá tölur inn í Excelskjöl. Hún tekur ekkert mark á sjómönnum.“  Smábátar í Sandgerði. 10  Strandveiðiaflanum landað í Norðurfirði. Formanni LS líst illa á hugmyndir um að skipta á nýjan leik aflapottinum í strandveiðum milli skilgreindra svæða.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.