Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2022, Síða 12

Ægir - 01.09.2022, Síða 12
12 „Þetta er magnað félag og mikill heiður fyrir mig að taka við for- mennskunni í því. Ég hlakka til að leggja mitt af mörkum til að efla fé- lagið enn frekar en það hefur verið ánægjulegt að sjá vöxtinn undan- farin ár. Félagskonum hefur fjölgað umtalsvert og við sjáum fyrir okkur að félagið eflist enn á komandi ár- um,“ segir Margrét Kristín Péturs- dóttir sem tók nú í haust við stjórn- artaumum í félaginu Konur í sjávar- útvegi, KIS. Ríflega 300 konur eru í félaginu sem stofnað var árið 2013 og fagnar því 10 ára afmæli á næsta ári. Þeirra tímamóta verður minnst með margvíslegum hætti. Lifir og hrærist í sjávarútvegi Margrét ólst upp í Grindavík, hún starfar sem forstöðumaður gæðamála hjá Vísi hf. sem var stofnað af fjöl- skyldu hennar. „Ég hef verið með teng- ingu við sjávarútveginn frá blautu barnsbeini, mín fjölskylda lifir og hrær- ist í þessari atvinnugrein. Við tölum sjaldan talað um annað þegar við kom- um saman, hvort heldur er við eldhús- borðið heima eða í jólaboðum. Sjávar- útveginn er alltaf fyrirferðamesta um- ræðuefnið,“ segir hún. Sjálf byrjaði hún ung að starfa hjá fyrirtækinu. Hún var til að byrja með í léttum störfum í vinnlunni, vann í humrinum og svo við saltfiskverkun og segir það hafa gert sér gott að taka til hendinni snemma auk þess að afla sér auka tekna með námi. „Þetta var al- gengt í sjávarplássum í eina tíð. Krakk- ar fóru snemma að vinna við sjávarút- veginn og fengu þá innsýn í þessa skemmtilegu atvinnugrein,“ segir hún. Lifandi atvinnugrein og mikil gerjun Margrét hefur um skeið stjórnað gæða- málum hjá Vísi, kom inn í verkefni fyrir nokkrum árum til að innleiða alþjóð- legan gæðastaðal í fyrirtækið en hún er lærður líftæknifræðingur. Hún hefur komið víða við í gegnum tíðina, en allt- af komið til baka í sjávarútveginn þrátt fyrir nokkra útúrdúra. „Þetta er minn heimavöllur, það er svo gaman að fást við þessa grein, hún er svo lifandi og mikil gerjun í gangi. Hér eru nóg af verkefnum og engir tveir dagar eins.“ Margrét hefur starfað hjá fyrirtæk- inu síðan innleiðingarferlið var klárað. Hún sér um að gæðin standist allar kröfur sem gerðar eru til framleiðsl- unnar, hvort sem það er frá eftirlits- stofnunum eða kaupendum. „Þessi at- vinnugrein er svo heillandi, hún er fjölbreytt og margt skemmtilegt að ger- ast. Það hafa miklar framfarir orðið í greininni á liðnum árum og mikil ný- sköpun í gangi. Gæðamálin hafa tekið miklum breytingum í gegnum tíðina, regluverkið er orðið meira og markaðir eru almennt meðvitaðri um gæði og umhverfismál. Það leiðir af sér kröfur um vottanir varðandi allt vinnsluferlið og sjálfbæra nýtingu. Mikil áhersla hefur verið á fullnýtingu og mikil tæknivæðing hefur verið í greininni. Kröfur um menntun hafa aukist og við það verður atvinnugreinin faglegri og það má líka segja að fyrirtækin séu al- mennt öflugri en þau voru fyrr á tíð. Það hefur margt jákvætt gerst í sjávar- útvegi og æ fleiri konur hafa séð tæki- færi til að hasla sér völl innan þessarar atvinnugreinar,“ segir hún. Konum hefur fjölgað í atvinnugreininni Margrét hefur verið félagi í Konum í Sjávarútvegi frá árinu 2017 og gleðst yfir hversu kraftmikill félagsskapurinn er þegar nú hillir undir að fyrsti ára- tugurinn sé að baka. Í félaginu eru konur úr ýmsum áttum, m.a. úr sjávar- útvegsfyrirtækjum, háskólasamfélag- inu, fjármálastofnunum, þjónustu- greinum, hátækni- og sprotafyrirtækj- um. Félagið hefur verið að rannsaka stöðu kvenna í greininni og á að baki tvær rannsóknir sem gerðar voru með fimm ára millibili af Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri „Þar má sjá að konum í fullu starfi hefur fjölgað í þessum geira. Við höfum hægt en ör- ugglega verið að styrkja okkar stöðu og fleiri konur gegna nú stjórnunar- stöðum. Það skiptir miklu fyrir okkur konur að hafa góðar fyrirmyndir í þessari grein,“ segir hún. Félagið stendur fyrir ýmsum við- burðum frá hausti fram á vor þar sem félagskonur koma saman, fræðast um ýmis málefni tengd sjávarútvegi og gera sér glaðan dag. Margt áhugavert hefur verið í boði í haust og verður fram á vor en starfsárinu lýkur þá með árlegri vorferð sem að þessu sinni verður um sunnanverða Vestfirði. Á ferðum sínum um landið hafa félags- konur litið í heimsóknir til sjávarút- vegsfyrirtækja og segir Margrét að ávallt sé vel tekið á móti þeim. „Þetta hafa verið góðar og mjög fróðlegar ferðir. Það má segja að með þessum heimsóknum höfum við kynnst greininni betur og þeim nýjungum sem í henni eru. Einnig hafa viðburðirnir sem KIS stendur fyrir gefið okkur færi á að kynnst hvorri annarri betur með því að hittast og spjalla saman. Það er mjög mikilvægt fyrir okkur sem störf- um í þessari grein að eiga gott og öfl- ugt tengslanet.“ Konur sjá tækifæri innan sjávarútvegsins  Margrét Kristín Pétursdóttir nýr formaður félagsins Konur í sjávarútvegi.. Mynd: Þórkatla Albertsdóttir.

x

Ægir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.