Ægir

Árgangur

Ægir - 01.09.2022, Blaðsíða 15

Ægir - 01.09.2022, Blaðsíða 15
15 Hann segir að ekki sé tímabært að tala um breytingar á rekstri Vísis hf. í Grindavík. Síldarvinnslan sé nýbúin að taka við fyrirtækinu en vissulega séu tækifæri í samstarfi þessara félaga. Sérstaklega í botnfiskveiðum og -vinnslu. Vísir sé gamalgróið fyrirtæki og flott félag í bolfiski. Því sjái hann tækifæri í að samþætta rekstur Vísis og Síldarvinnslunnar. Félagið er orðið öflugt bolfisk- og uppsjávarfélag þar sem fjárfestingar Vísis í bolfiskvinnslu munu nýtast til aukinnar verðmæta- sköpunar. Óvissa vegna stríðs í Úkraínu En hvað er almennt framundan í ís- lenskum sjávarútvegi? „Það er búið að vera ágætis árferði í sjávarútvegi. Við erum með stoðir í nokkrum fiskistofnum þar sem oft eru miklar sveiflur í afla á einstökum teg- undum. Við byggjum á íslenskri síld, norsk-íslenskri síld, kolmunna, makríl og loðnu auk botnfisks og þannig jafn- ast sveiflurnar nokkuð á heildina litið. Oft þegar samdráttur er í einni tegund kemur önnur upp á móti. Það sama á í rauninni gjarnan við úti á mörkuðun- um. Vissulega stöndum við frammi fyrir töluverðri óvissu vegna stríðsins í Úkraínu. Úkraína, og áður Rússland, hafa verið þýðingarmiklir markaðir fyrir Síldarvinnsluna í Austur-Evrópu þegar kemur að uppsjávarafurðum eins og síld, loðnu og makríl. Auk þess stöndum við frammi fyrir stórauknum olíukostnaði, sjáum vexti hækka og víða er mikil verðbólga sem veldur miklum hækkunum á öllum aðföngum. Það er því ekki rétt að gera lítið úr þessari óvissu og framvindan er óljós. En ógnunum fylgja líka tækifæri þar sem mun reyna á fyrirtækin að auka framleiðni og gera betur.“ Eðlileg leiðrétting veiðigjalda Hvernig lýst þér á þær breytingar sem Svandís Svavarsdóttir, matvælaráð- herra, hefur boðað á veiðigjöldum og hækkun þeirra? „Ég held að þetta sé bara eðlileg leiðrétting sem er tilkomin út af ákveðnum atriðum í reiknireglu veiði- gjalda. Annars staðar í kringum okkur er ekki verið að borga veiðigjöld. Þannig er það hjá þeim þjóðum sem við erum að keppa við á mörkuðum eins og til dæmis Norðmönnum og fleiri þjóðum. Vilji menn fá samanburð er einfalt að skoða muninn þar á milli á útgjaldahlið útgerðarinnar.“ Skapa þessar breytingar einhvern frið um sjávarútveginn? „Það er búin að vera ólga í kringum sjávarútveginn í áratugi, sem við þekkjum sem höfum tengst atvinnu- greininni. Þessi ólga tekur gríðarlega orku út úr fyrirtækjunum og frá  Gunnþór B. Ingvason, forstjóri Síldarvinnslunnar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Ægir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.