Ægir

Ukioqatigiit

Ægir - 01.09.2022, Qupperneq 19

Ægir - 01.09.2022, Qupperneq 19
19 aukningu sem íslenskur sjávarútvegur er að skila. Í bolfiskinum erum við líka að sjá mikla breytingu, þegar kemur að vinnsluþættinum. Íslensk fiskvinnsla stendur framar öðrum í nýtingu og gæðum afurðanna. Það stafar líka af því að bolfiskveiðiskip koma með ferskara og betra hráefni að landi en áður tíðkaðist. Þar hefur líka verið fjárfest í skipum og búnaði sem gerir vinnslunni kleift að skapa meiri verð- mæti en áður.“ Bjartsýnn á loðnuvertíð Hvernig lýst þér á komandi loðnuver- tíð? „Ég er bjartsýnn. Ungloðnumæling síðasta haust var mjög góð. Ef hún hefur verið rétt þá hljótum við að fá aukningu á þeim kvóta sem gefinn hefur verið út nú. En allavega er það miklu betra að hafa þennan kvóta framundan, þó lítill sé, en að hafa eng- an kvóta upp á skipulagningu á veið- um og viðræður við kaupendur að gera. Áttu von á því að þorskkvótinn verði aukinn? „Auðvitað eru vonbrigði að við skulum ekki vera komin lengra í þorsk- veiðinni en raun ber vitni, en veiðun- um hefur verið stjórnað með aflareglu og aðhaldi í langan tíma. Í sögulegu samhengi erum við að veiða minna af þorski en ætla mætti. Auðvitað vonum við að það komi sá dagur að við sjáum betri árangur af veiðistjórnuninni og að hún skili sér í sterkum stofni og aukinni veiði,“ segir Gunnþór B. Ingvason. Til hamingju Fjarðabyggðarhafnir senda björgunarsveitinni Geisla innilegar hamingjuóskir með nýtt og glæsilegt bjögunarskip! Fjarðabyggðarhafnir  Vestmannaey VE og Bergur VE mætast í innsiglingu Vestmannaeyjahafnar. Mynd: Arnar Berg Arnarsson

x

Ægir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.