Ægir - 01.09.2022, Page 20
20
Björgunarsveitin Geisli á Fáskrúðs-
firði tók fyrir skömmu í notkun nýj-
an björgunarbát, Hafdísi, sem smíð-
aður var fyrir sveitina hjá báta-
smiðjunni Rafnari. Báturinn er af
gerðinni Leiftur 1100 og er 11 metra
langur og 3,2 metra breiður, búinn
tveimur 300 hestafla utanborðsmót-
orum og getur við bestu aðstæður
náð yfir 40 sjómílna siglingarhraða.
Það sem gerir bátinn einstakan í
framleiðslu Rafnar bátanna er að
hann er yfirbyggður framan stýris-
húss en þetta var gert samkvæmt
hugmyndum félaga í Björgunar-
sveitinni Geisla. Þessi útfærsla segir
Hans Óli Rafnsson, gjaldkeri björg-
unarsveitarinnar, að breyti miklu
fyrir þau sjóbjörgunar- og sjóað-
stoðarverkefni sem Hafdís verður
notuð í.
Öflugur björgunarbátur
til Fáskrúðsfjarðar
Nýr björgunarbátur
Björgunarbáturinn Hafdís er af gerðinni Leiftur 1100 frá íslensku bátasmiðjunni
Rafnari. Myndir: Þorgeir Baldursson