Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2022, Side 28

Ægir - 01.09.2022, Side 28
28 Nýliðun í þorskstofninum á landgrunni Færeyja breytist mikið ár frá ári. Frá árinu 2005 hefur nýliðun verið mjög léleg. Það tengist að miklu leyti framboði á hæfilegu æti fyrir þorsklirfur og seiði áður en þau færa sig niður á botninn. Færeyski þorskstofninn hefur verið rannsakaður reglulega í 60 ár. Í júní 1983 hóf Havstovan reglulega leið- angra til að kanna vöxt og viðgang þorskseiða og í apríl 1997 hófust leiðangrar til að kanna þorsklirfur. Á nokk- urra ára tíma var magainnihald 5.000 lirfa og seiða kann- að með það í huga að fá upplýsingar um það hvaða áhrif ætisframboð hafi á nýliðunina. Nú hafa niðurstöður þessara rannsókna verið kynntar í tveimur vísindagreinum í tímaritinu Marine Biology. Í fyrri greininni, sem var birt 2020, er farið yfir fæðu þorsklirfa og -seiða. Á fyrstu stigum nærast lirfurnar mest á mjög smárri dýraátu og eftir því seiðunum vex fiskur um hrygg taka þau til sín stærri átu. Rannsóknin sýnir að lirfurnar eru matvandar. Þær velja tegund átu og stærð. Þegar þær stækka og þroskast eftir 1-2 mánuði geta þær átt erfitt með að fá næga fæðu. Éta ofursmáa dýraátu Í seinni greininni, sem er nýkomin út, er sýnt að fjöldi þorsklirfa strax að lokinni hrygningu tengist stærð hrygningarstofnsins. Því skiptir miklu máli að hrygning- arstofninn sé sjálfbær. Stór hrygningarstofn er þó ekki trygging fyrir því að nýliðun verði mikil. Afföll eru mikil á lirfu- og seiðastigi og sveiflast mikið. Nýja greinin sýnir að nýliðunin tengist afkomunni frá lirfu til seiða og ræðst hún af magni hæfilegrar fæðu. Það er gróðurinn að vori sem ræður því hve mikið fæðuframboð er fyrir lirfurnar.  Fyrstu þrjá mánuði ævinnar lifa þorsklirfur- og seiði ofarlega í sjónum. Eftir að kviðpokatímabilinu lýkur éta lirfurnar ofursmáa dýraátu eins og hrogn marflóa (vatnsloppa), síðan lirfur þeirra, loks flærnar sjálfar og að lokum smáar krabbalirfur. Þar sem lirfurnar eru lélegar að synda, þurf þær helst að vera í námunda við eða inni í átuflekkjum. Æti fyrir þorsklirfur ræður nýliðun  Þorsklirfur.  Þorskseiði. ICES leggur til að veiðar á ýsu á landgrunninu fari ekki yfir 11.853 tonn á næsta ári. Þetta er vöxtur um 37% frá þessu. Ýsustofninn var á árabilinu 2008 til 2017 undir varúðarmörkum. Ýsustofninn komst yfir varúðarmörkin 2018 og hefur verið í vexti síðan. Nýj- ustu gögn benda þó til þess að vöxtur- inn í framtíðinni verði ekki eins hrað- ur og hann hefur verið síðustu árin. Ráðið mælir með því að ufsaafli fari ekki yfir 17.843 tonn sem er 52% sam- dráttur frá þessu ári. Ástæðan er sú að ufsastofninn mælist nú minni en áður var talið, með öðrum orðum að stærð stofnsins hafi verið ofmetin.  Ráðlegging ICES fyrir árið 2022 var að þorskafli færi ekki yfir 2.206 tonn, sem var 65% lækkun frá árinu 2021. Þess má geta að það er litlu minna en þorskkvóti Færeyja við Ísland, sem er 2.400 tonn. Þá ráðlagði stofnunin að ýsuafli færi ekki yfir 8.639 tonn, sem var lækkun um 24%. Ráðlegging í ufsa var að hámarki 37.444 tonn, sem var aukning eða um 37%. Afli þessara þriggja tegunda á Fær- eyjamiðum það sem af er þessu ári er 3.890 tonn af þorski, 5.890 tonn af ýsu og 13.000 tonn af ufsa. Niðurstaðan er því sú að líklega verður þorskaflinn þar í ár tvöfalt meiri en ICES taldi ráð- legt. Fiskveiðisamningar við aðrar þjóðir Færeyingar eru með fiskveiðisamn- inga við þjóðirnar nyrst í Atlantshafi sem færa þeim töluverðar þorskveiði- heimildir. Mest fá þeir frá Rússum, 12.285 tonn, frá Norðmönnum fá þeir 4.945 tonn, frá Grænlandi 2.500 tonn og frá Íslandi 2.400 tonn. Auk þess eru þeir með heimildir í öðrum botnfisk- tegundum í þessum löndum. Á móti láta þeir að mestu leyti heimildir í upp- sjávarfiski eins og kolmunna, síld og makríl. Auk þessa hafa færeysk skip sótt þorskafla á Flæmska hattinn við Nýfundnaland. Heimildirnar hér við land sækja þeir á línubátum en heim- ildirnar frá Rússum og Norðmönnum í Barentshafi sækja þeir á frystitogur- um. Gutted H&G fishQuality control FilletingSkinning Valuable enzymes Pinbone Cheeks and tongue Swin bladder 1. grade bacteria free mince Pinbone cutting Heading Collarbone cutting Vélfag ehf. // Baldursnes 2 // 603 Akureyri ICELAND // 466 2635 // sales@velfag.com velfag.com

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.