Ægir - 01.09.2022, Blaðsíða 32
Sökk skammt frá landi
Sneru þeir þá tafarlaust við, en lekinn
ágerðist mjög strax eftir að þeir urðu hans
varir. – Stefndu þeir félagar til Höskulds-
eyjar og skipti engum togum að þar stöðv-
aðist vél bátsins vegna lekans og sökk Sú-
lutindur þar skammt frá landi. Björguðust
mennirnir nauðuglega á land.
Dreginn til Stykkishólms
Ekkert var hægt að aðhafast um björgun
bátsins í Höskuldsey vegna þess að vita-
vörðurinn þar kom ekki bát sínum fram,
sökum skorts á mannafla. Var þess vegna
hringt til Stykkishólms og leitað aðstoðar.
Kom þegar á vettvang bátur þaðan og tveir
menn. Tókst að ná Súlu tindi úr sjó og var
komið með hann hingað til Stykkishólms
kl. 7 í gærkveldi.
Miklar skemmdir
Ekki er búið að athuga skemmdir bátsins
til fulls, en þegar kom í ljós, að hann er
mikið skemmdur og meðal annars að kjöl-
síðan er rifin frá kili á stóru svæði. Þarfn-
ast báturinn mikilla viðgerða. Súlutindur
kom til Stykkishólms síðastliðið vor og er
einn af happdrættisbátum Dvalarheimilis
aldraðra sjómanna.
Morgunblaðið miðvikudagur
26. október 1955.
Snarræði bjargaði manni og bát
Frá fréttaritara Tímans í Stykkishólmi: Til
leiðréttingar á frétt hér í blaðinu fyrir
nokkrum dögunum um það, er vélbátnum
Súlutindi var rennt á land í Höskuldsey,
skal þess getið, að það var ekki flóabátur-
inn Baldur, sem fór til að bjarga honum,
heldur vél báturinn Gísli Gunnarsson, for-
maður Eggert Björnsson. Þegar vélbátur-
inn var að draga Súlutind út úr vognum
munaði minnstu að illa færi. Slitnaði Sú-
lutindur aftan úr, er farið var út úr vogn-
um og var hann í þann veginn að reka upp
í brimgarðinn með einn mann innan
borðs, en formanninum á Gísla Gunnars-
syni tókst með snarræði að koma beint á
hlið Súlutinds, svo að maðurinn gat stokk-
ið um borð, og um leið tókst að slöngva
vír í Súlutind og festa og draga bátinn út.
Ef hann hefði farið upp í brimið, hefði
hann vafalaust brotnað og líf mannsins
verið í bráðri hættu.
KG - Tíminn 02.22.1055
V.b. Guðmundur frá Stykkishólmi
strandaði við Andey
Vélbáturinn Guðmundur frá Stykkishólmi
strandaði í gærkveldi á rifi við Andey SV af
Stykkishólmi. Súlutindur frá Stykkishólmi
fór bátnum til aðstoðar og bjargaði áhöfn-
inni en ekki hefur tekizt að ná bátnum út
ennþá.
Guðmundur fór í róður í fyrrakvöld og
lagði SV af Höskuldsey. Þegar báturinn
var að enda við að draga kom leki að hon-
um og varð hann að halda til lands.
Vélin stöðvaðist
Er báturinn var kominn á móts við Andey,
var svo mikill sjór kominn í hann, að vél-
arnar stöðvuðust. Rak bátinn upp á rif við
Andey og strandaði þar sem fyrr segir.
Kyntu bál
Á bátnum voru þrír menn. Kyntu þeir bál
á eynni og sást það þegar úr landi. Voru
tveir bátar sendir frá Stykkishólmi til að-
stoðar, þeir Súlutindur og Arnfinnur.
Bjargaði Súlutindur mönnunum.
Reynt að ná bátnum út
Reynt var að ná bátnum út á flóðinu í nótt
sem leið, en það tókst ekki. Er ætlunin að
reyna aftur í nótt og kanna þá, hversu
skemmdir eru orðnar miklar á bátnum.
Fyrsta ferð eftir viðgerð
Guðmundur er 14 lestir að J stærð. Var
hann keyptur til Stykkishólms fyrir tveim
árum frá Hellissandi. Hafði báturinn þá
fyrir skömmu strandað svo að fara varð
fram á honum mikil viðgerð. Var þetta
fyrsti róður bátsins eftir þá viðgerð.
Alþýðublaðið laugardagur
10. desember 1955
Saga bátsins er tíðindaminni næstu
árin. Báturinn var seldur úr Hólminum
til Ólafsvíkur og auglýstur til sölu árið
1963.
Sigurður Þorleifsson umboðsmaður
DAS í Grindavík og Helga Þórarins-
dóttir við bátinn Súlutind.
Lúðvík Smárason um borð í Súlu-
tindi sumarið 1986.
Súlutindur var smíðaður 1954 og var happdrættisvinningur hjá DAS árið eftir.
Þarna er hann undir nafninu Kári og gerði Lúðvík Smárason hann út frá 1976
til 1944.
32