Ægir

Årgang

Ægir - 01.09.2022, Side 33

Ægir - 01.09.2022, Side 33
33 Bátur til sölu Vélbáturinn Súlutindur í Ólafsvík 4.8 smálestir að stærð er til sölu nú þegar. Í bátnum er 16 hestafla Lister-dieselvél. All- ar nánari uppl. gefnar í síma 6 Ólafsvík. Morgunblaðið - 21. júní 1963 „Stofustáss“ um tíma Þá kaupir Þórður Hjaltason á Hellissandi bátinn og gaf honum nafnið Víkingur. „Síðan varð nafnið Víkingur háð einkaleyfi og þá fékk hann nafnið Rúna. Þá stóð hann lengi fyrir utan hjá Þórði og var eins og nokkurs konar stofustáss. Honum var ekkert róið í mörg ár. Svo kaupir Ársæll Jónsson bátinn og fer að gera hann út undir Rúnunafninu. Þessi Ársæll var faðir Jóhanns Ársælssonar, skipasmiðs og þing- manns. Ársæll gerði bátinn út til 1976, þegar við keyptum hann. Við gáfum hon- um nafnið Kári og rérum á honum til 1994,“ segir Lúðvík Smárason. Litlar fregnir eru af bátnum eftir þetta nema hans er auðvitað getið í opinberum aflatölum. Árið 1986 ræddi Sigurdór Sig- urdórsson, blaðamaður á Þjóðviljanum við Lúðvík: Eitt það algengasta sem ber fyrir augu manns í sjávarþorpunum um þessar mundir eru litlar trillur uppá þurru landi sem er verið að lagfæra, mála og dytta að fyrir vor- og sumarvertíðina. Þannig var það, þegar tíðindamaður Þjóðviljans var á ferð um Snæfellsnes fyrir skömmu. Inní miðju þorpi á Hellissandi stóð trillan Kári SH og um borð var Lúðvík Smárason kennari að dytta að. Lúðvík sagðist í mörg sumur hafa stundað sjó á trillu frá Rifi. „Ég er kennari og sá möguleiki að geta stundað sjó héðan yfir sumarið gerir mér kleyft að leyfa mér þann munað að vera kennari. Ég gerði mér þetta ljóst þegar ég fór í kennaranámið og ég hefði áreiðanlega ekki farið í kennarastarfið ef ég gæti ekki bætt mér upp léleg laun með því að róa á trillu yfir sumarið,” sagði Lúðvík. Hann sagði að þeir hefðu verið tveir á Kára SH með fjórar handfærarúllur í fyrra- sumar og gengið mjög vel, fengu 33 tonn á tveimur og hálfum mánuði. Lúðvík sagði að helgarstoppin sem sett voru á í fyrra hefðu dregið úr aflanum, þeir hefðu getað farið í 40 tonn eða meira ef þau hefðu ekki verið. Trillan Kári SH er elsta trillan sem gerð er út frá Rifi, byggð árið 1954 og var þá happdrættisvinningur hjá DAS og var þá nefnd Súlu tindur. Lúðvík sagði að trillan væri í mjög góðu ásigkomulagi þótt gömul væri. Við spurðum Lúðvík hvað hann hefði þénað á sumarvertíðinni í fyrra og sagðist hann hafa haft á milli 200-250 þúsund krónur fyrir þessa rúma tvo mánuði. Helgarstoppið? „Mér líkaði það bara vel, það er ágætt að eiga frí frá föstudagskvöldi fram á sunnudags- kvöld. Það er nú einu sinni svo að veiðimenn stoppa ekki um helgar, þótt þá langi til þess, nema með svona valdboði. Þess vegna líkaði mér þetta bara vel,” sagði Lúðvík. Þjóðviljinn 20. apríl 1986 Eins og áður sagði stendur bátur- inn uppi á Hellissandi og hefur verið haldið við að nokkru leyti, til dæmis verið málaður reglulega. Hann er þó ekki sjófær. Saga þessa báts kom í fangið á undirrituðum, þegar hann tók viðtal við Lúðvík Smárason fyrir tíma- ritið Ægi. Það vill svo til að eiginkona mín er Helga Þórarinsdóttir, barna- barn vinningshafans á sínum tíma og þegar bátsnafnið Súlu-tindur kom upp í spjallinu við Lúðvík, vaknaði forvitn- in og grúskið hófst. Höfundur er Hjörtur Gíslason, blaðamaður og ritstjóri sjávarút- vegsvefsíðunnar Auðlindarinnar.  Súlutindur er nú á vagni á þurru landi á Hellissandi.

x

Ægir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.