Ægir - 01.09.2022, Page 41
41
stjóri Ísfells á Akureyri. Starfsmönnum
verður fjölgað í þrjá strax í upphafi
nýs árs.
„Ísfell kemur víða við sögu í þjón-
ustu við atvinnulífið en við ætlum í
kjölfar flutninganna að efla verulega
þjónustu okkar á sviði fallvarna- og
öryggisbúnaðar, sem og lögbundinna
skoðana á hífingarbúnaði fyrir við-
skiptavini á Norður- og Austurlandi.
Þetta er þjónustusvið sem snýr að
bæði skipum og fjölþættri starfsemi í
landi, verktakastarfsemi og ýmsum
öðrum sviðum en Ísfell er eitt öflugsta
fyrirtæki landsins í þessari þjónustu,“
segir Þorvaldur en önnur stór breyt-
ing með tilkomu nýja húsnæðisins er
stærri og fjölbreyttari verslun. Þar
býðst fatnaður, öryggisbúnaður og
ýmis konar rekstrarvara sem tengist
sjávarútvegi og öðrum greinum at-
vinnulífsins.
Veiðarfæraþjónusta fyrir
norðlensku togarana
Þekktast er Ísfell fyrir þjónustu sína á
veiðarfærasviðinu og segir Þorvaldur
að nýi vinnusalurinn við Hjalteyrar-
götu auðveldi vinnu við veiðarfærin.
„Okkar áhersla í veiðarfæraþjónust-
unni snýr mest að botnfiskveiðarfær-
um og togskipum hér á Akureyri og í
nágrannabyggðum. Hér setjum við
upp veiðarfæri, lagfærum veiðarfæri
og setjum upp varastykki, splæsum
víra og leysum önnur verkefni fyrir
skipin. Síðan vinnum við með starfs-
stöðvum Ísfells á Ólafsfirði og Sauðár-
króki eftir því sem við á. Þannig erum
við öflug heild í þjónustu við við-
skiptavini og sjáum bara tækifæri til
að efla okkur enn frekar,“ segir Þor-
valdur.
Þjónusta
Dömurnar í starfsmannahópi Ísfells fögnuðu með samstarfsmönnum sínum á Akureyri og viðskiptavinum. Frá vinstri:
Stefanía Malen Halldórsdóttir, netaverkstæði, Erna Kristjánsdóttir, markaðsstjóri, Hrafnhildur Guðbjartsdóttir, stefnu-
mótun og ferlastýringar og Ásdís Sigurðardóttir, viðskiptaþróunarstjóri.
Hátt er til lofts og vítt til veggja í netagerðarsalnum.