Ægir - 01.09.2022, Side 46
46
„Nýtt ár leggst ágætlega í mig og ég
held að það sé ekkert dimmt yfir
þessu þannig séð. Þetta verður alveg
þokkalegt ár. Ég er að keyra frá
Grænlandi þar sem við vorum að
veiða þorsk í þessum túr og sé að
það er komið dálítið af þorski djúpt
inn á Íslandsmið. Það er mikið af
þorski á leiðinni upp á landgrunnið
hjá okkur. Það fer ekki á milli mála.
Þetta er 5-6 kílóa fiskur, bara alvöru
vertíðarfiskur. Þetta lítur vel út á
dýptarmælinum, þorsklóðið 300 til
400 föðmum út af grálúðuslóðinni.“
Þetta segir Jóhannes Ellert Eiríks-
son, skipstjóri á togaranum Viðey RE,
þegar hann er spurður hvernig honum
lítist á veiðarnar og komandi ár. Þegar
rætt var við hann nú í byrjun desemb-
er var skipið á leiðinni inn til Grundar-
fjarðar með 180 tonn. Ekið var með
megnið af fiskinum til vinnslu í Reykja-
vík. Jóhannes Ellert gengur undir nafni
Elli að öllu jöfnu og notum við það hér.
Minna af þorski á grunnslóðinni
í sumar
„Það var ívið minna af þorski á grunn-
slóð í sumar en sumarið 2021 fannst
mér vera óvenjulega mikið af honum á
grunnslóðinni. Mér finnst haustið hins
vegar ekki hafa verið eins tregt og oft
áður en veðrið spilar alltaf inn í þetta
hér úti fyrir Vestfjörðum. Það hefur
verið fiskur fyrir norðan og austan í
haust og svolítið af smáfiski í uppvexti,
sem er líka jákvætt. Gott að vita af hon-
um einhvers staðar. Mér finnst líka að
ég hafi orðið meira var við síld hérna
við landið en aftur á móti ekki eins
mikið vart við loðnu,“ segir Jóhannes.
Hann segist þo ekki hafa miklar
áhyggjur af komandi loðnuvertíð.
„Ég held að loðnan sé ekki farin neitt
alvarlega niður. Þetta leggst þannig í
mig að það verði góð vertíð í vetur. Við
höfum orðið varir við loðnu þarna úti
en ekki í neinu magni. Við höfum séð
eina og eina torfu en það vantar mikið
á að þetta verði eins og á árum áður.
Þá var var maður að toga undir loðnu-
torfum í fleiri sjómílur. Í dag sér maður
eina og eina torfu og það hefur verið
loðna í þorskinum í kantinum hér djúpt
út af Patreksfirði,“ segir Elli.
Erfitt að forðast karfann
Aðspurður um tilfinningu sína gagn-
vart stöðunni á öðrum fisktegundum
segist Jóhannes hafa aðra sýn á stöðu
karfastofnsins en Hafannsóknastofnun.
„Ég er þá að miða við hvernig geng-
ur að finna veiðanlega karfa. Þeir tala
um um seiðin og það lítur ekki vel út ef
marka má það sem þeir eru að segja. En
þannig horfir þetta ekki við okkur. Það
verður snúið á vertíðinni í vetur að
veiða aðrar tegundir þegar búið er að
skera heimildirnar svona mikið niður.
Það er víða karfi hérna út af Víkuráln-
um. Við höfum verið að draga með 135
millimetra möskva í poka og höfum orð-
ið að stækka möskvann upp í 200 milli-
metra til að losna við karfann áður en
híft er,“ segir Elli og víkur talinu að
ufsanum.
„Ég veit ekki alveg hvað maður á að
Elli í brúnni á Viðey við komu skipsins til landsins.
Fiskurinn að færa sig norðar
rætt við Jóhannes Ellert Eiríksson, skipstjóra á Viðey RE