Fréttablaðið - 08.03.2023, Qupperneq 14
Kjartan Long hóf að stunda utan-
vegahlaup árið 2015. Hann segir
ótrúlega nærandi fyrir líkama og
sál að hlaupa í íslenskri náttúru.
„Á fjallastígum og slóðum verður
tíminn og kílómetrar afstætt. Þú
ert frekar að njóta í stað þess að
þjóta og missa ef þeim perlum sem
við eigum hér á landi. Brekkurnar
eru styrkjandi, nýtt landslag er
fræðandi og hlauparar eru skæl-
brosandi á moldarstígum og á
fjöllum.“
Fjallahlaup eru einnig upplögð
æfing fyrir götuhlaup ef mark-
miðið er til dæmis að æfa fyrir
maraþonhlaup. „Það er mun auð-
veldara að hala inn kílómetra á
mjúkum stígum en hörðu malbik-
inu. Tíminn líður líka mun hraðar
á stígum en malbiki auk þess sem
mjúkir stígar fara mun betur með
skrokkinn.“
Þegar nær dregur keppni í
götuhlaupi segir Kjartan gott að
færa sig að hluta frá stígunum og
láta vöðva, liði og sinar venjast
malbikinu. „Þessi aðferð hefur
virkað vel fyrir mig og hef ég á
síðustu sex árum tekið þátt í fimm
maraþonhlaupum og æft að mestu
á mjúkum stígum fyrir keppni.
Þannig hef ég haldið mig alveg frá
meiðslum og eymslum (7-9-13).“
Fjallahlaupin náðu honum
Upphafið að hlaupaferli Kjartans
má rekja til erfiðra bakmeiðsla
sem hann hlaut árið 2007. Í kjölfar
þeirra hóf hann að stunda alls
kyns fjallabrölt á eigin vegum og
einnig með Hjálparsveit skáta í
Reykjavík ásamt því að ferðast um
hálendið á fjallahjóli á sumrin og
ferðaskíðum yfir veturna. „Þessi
áhugi á að ferðast um fjöll og
firnindi í gönguskóm með bak-
poka leiddi mig út í það að ferðast
létt og hratt á hlaupaskóm. Þegar
ég byrjaði í utanvegahlaupi árið
2015 skráði ég mig í ekkert minna
en Laugavegshlaupið sem er 55
kílómetra hlaup frá Landmanna-
laugum og niður í Þórsmörk. Eftir
það varð ekki aftur snúið.“
Hann segir fjallahlaupin hafa
náð sér alveg og að hann hafi tekið
þátt í f lestum þeim keppnum sem
utanvegahlaupasamfélagið heldur
úti um allt land. „Ásamt þessu hef
ég þjálfað Laugavegshóp og Land-
vættahópa þar sem utanvegahlaup
spila stóran þátt og mikilvægt er að
undirbúa sig og æfa vel til að njóta
sem mest hlaupsins.“
Mörg hlaup standa upp úr
Sá hlaupaviðburður sem stendur
upp úr á hlaupaferli Kjartans er
fyrsta Dyrfjallahlaupið sem haldið
var árið 2017 í yfir 20 stiga hita og
logni. „Einnig má nefna Vestur-
götuna, sem er hlaup úr Arnarfirði
yfir í Dýrafjörð um Svalvog. Þar
er hlaupið á stórbrotnum fjalla-
vegum fram hjá eyðibýlum, vaðið
ár og læki ásamt því að sæta lagi
og hlaupa í f læðarmálinu undir
Skútabjörgum. Einnig stendur
Laugavegshlaupið alltaf fyrir sínu
sem einn allra skemmtilegasti
hlaupaviðburður landsins ásamt
The Puffin Run í Vestmannaeyjum
sem er sambland af götu-, stíga- og
hraunhlaupi kringum Heimaey.“
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir,
sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Starri Freyr Jónsson starri@frettabladid.is,
s. 550 5767 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Kjartan Long veit fátt betra en að hlaupa úti í náttúrunni, hvort sem það er á stígum eða fjöllum.
Sandarnir á milli Hvanngils og Emstra virðast endalausir en taka alltaf enda að lokum.
Með Cat Bradley (önnur f.h.), einni fremstu utanvega-
hlaupakonu heims en hún hljóp Laugaveginn árið 2021.
Kjartan og félagar spenntir við upp-
haf Laugavegshlaupsins árið 2022.
Hópur sem hljóp maraþon í Kaupmannahöfn 2022.
Leiðin frá Herðubreiðarlindum að
Herðubreið er góð skemmtun.
Hlaupið um Kristnitökuhraun rétt
austan við Bláfjöll í fallegu veðri.
Starri Freyr
Jónsson
starri
@frettabladid.is
Best að byrja rólega
Kjartan mælir svo sannarlega
með utanvegahlaupum fyrir fólk
á öllum aldri. „Það eru til dæmis
fjölmargir hópar sem bjóða upp á
byrjendanámskeið í fjallahlaupum
og kynna stíga og slóðir í kringum
höfuðborgarsvæðið og aðra þétt-
býlisstaði fyrir þátttakendum.“
Annars má bara reima á sig
skóna og byrja rólega. „Fyrir fólk
sem býr á höfuðborgarsvæðinu má
til dæmis ganga upp á Úlfarsfell
og skokka rólega niður. Eða velja
einhvern af stígum Heiðmerkur
eða Hólmsheiðar og skiptast á að
ganga og skokka þar til úthald og
styrkur býður upp á að hlaupa
lengri vegalengdir.“
Hann mælir þó alltaf með að
byrja rólega og vinna sig hægt og
bítandi upp í lengri vegalengdir.
„Að byrja of geyst getur verið
ávísun á álagsmeiðsl sem geta
verið þrálát og tekið langan tíma
að jafna sig á.“
Skemmtileg hlaup í vændum
Í ár ætlar Kjartan að leggja áherslu
á stóra þríþrautarkeppni (Iron-
Man) í Hamborg í Þýskalandi í
byrjun júní. Eftir það verður Ísland
kannað á göngum með bakpoka og
einnig með léttum hlaupum inni
á milli. „Ég stefni á að taka þátt í
hálfmaraþoni í Ríga í maí, Fimm-
vörðuhálshlaupinu 12. ágúst ásamt
Berlínarmaraþoni í lok septem-
ber. Einnig stefni ég á þátttöku í
einhverjum styttri vegalengdum
eins og Hólmsheiðarhlaupinu og
7 tinda hlaupinu í Mosfellsbæ.
Báðir eru þetta stórskemmtilegir
viðburðir sem fara fram á fallegu
svæði rétt við rætur höfuðborgar-
innar.“
Metnaðarfullur hlaupahópur
Til stendur að setja saman hlaupa-
hóp utan um þessi verkefni enda
mun skemmtilegra að æfa saman
í hópi að hans sögn, frekar en einn
úti í horni. Hlaupahópurinn er enn
nafnlaus en gengur undir vinnu-
heitinu XLIICC (42,2 km). „Þetta
er stór hópur fólks sem ætlar að
taka meðal annars þátt í mara-
þonhlaupi í Berlín í september á
vegum Bændaferða. Við ætlum að
hittast og æfa saman fram að þeim
viðburði og hlaupum þá bæði á
stígum og malbiki til skiptis.“
Á næstu árum stefnir svo hluti
af hópnum að því að klára Abbott
World Marathon Majors sem eru
sex stærstu maraþonviðburðir í
heimi, haldnir í Tókýó, Boston,
Berlín, London, Chicago og New
York.
„Bændaferðir hafa boðið upp
á aðgöngumiða í þessi maraþon.
Margir Íslendingar hafa notið
þess að klára þessa mögnuðu sexu
enda fátt betra til að kanna borgir
en í vel skipulögðu maraþoni þar
sem helstu götur eru lokaðar og
fá þannig sjaldgæft tækifæri til að
hlaupa um bíllausar stórborgir.
Annars er vorið á næsta leiti og fátt
skemmtilegra en að þræða stíga
og ókannaðar lendur, hlaupandi
með lítinn bakpoka með nesti og í
góðum félagsskap.“ n
Það er mun auð-
veldara að hala inn
kílómetra á mjúkum
stígum en hörðu mal-
bikinu.
Það eru til dæmis
fjölmargir hópar
sem bjóða upp á byrj-
endanámskeið í fjalla-
hlaupum og kynna stíga
og slóðir í kringum
höfuðborgarsvæðið og
aðra þéttbýlisstaði fyrir
þátttakendum.
2 kynningarblað A L LT 8. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR