Fréttablaðið - 08.03.2023, Qupperneq 18
Ný Kona fær stærri afturenda með meira plássi fyrir farangur. MYNDIR/HYUNDAI
Innan í káetunni er meiri áhersla á betra efnisval og komnir eru tveir 12,3
tommu upplýsingaskjáir.
Stutt er síðan Hyundai Kona var
frumsýnd en von er á bílnum á
markað næsta sumar. Þrátt fyrir
að hönnunin hafi verið miðuð við
rafútgáfu verður ný Kona einnig í
tvinnútfærslum.
Ný Kona er stærri en áður og
hönnuðir Hyundai hlustuðu
greinilega á eigendur fyrri kyn-
slóðar og bættu við afturendann.
Meira fótarými verður í nýja
bílnum ásamt meira plássi fyrir
farangur, en farangursrýmið fer
úr 332 lítrum í 466 lítra. Bíllinn
er líka lengri á alla kanta en hann
hefur lengst um 175 mm og hjól-
hafið um 60 mm sem er nú 2.660
mm. Óhætt er að segja að útlitið er
mun kraftalegra og ljósahönnun-
in er framúrstefnuleg. Innandyra
er breytingin sú að komnir eru
tveir 12,3 tommu upplýsingaskjáir
eins og í Ioniq 5. Bíllinn kemur á
sama undirvagni og ný Kia Niro
en það þýðir að rafhlaðan er 65,4
kWst og 215 hestafla rafmótor
fyrir framhjólin. Drægið verður
allt að 490 kílómetrar en þar
sem rafkerfið er 400 volt er það
hægvirkara í hleðslu en 800 volta
rafkerfi Ioniq. n
Stærri og betri Kona kemur í sumar
Ytri línur bílsins eru vel sýnilegar á nýju myndunum og einnig afturljósið sem nær kringum afturgluggann.
MYNDIR/FISKER
Ákveðinn svipur tvöföldu ljósarandarinnar leynir sér ekki í Fisker Pear.
Talsvert hefur verið skrifað
um næsta bíl Fisker sem á að
vera rafbíll fyrir almenning
og kosta undir 30 þúsund
dollurum, en nú hillir
loksins undir það að hann
fari í framleiðslu.
Fisker-rafbílaframleiðandinn
hefur staðfest enn og aftur að Pear-
jepplingurinn verði undir 30.000
dollurum í verði þegar hann
kemur á markað. Sagt var frá því á
degi fjárfesta hjá Fisker en bíllinn
verður frumsýndur við slíka við-
höfn seinna á árinu. Merkið sýndi
við tilefnið tvær nýjar myndir af
bílnum.
Myndirnar sýna ytra útlit bílsins
nokkuð vel og þá einnig form
ljósanna. Að framan er tvöföld
ljósarönd með hugbúnaði fyrir
díóðuljósin en að aftan ljósarönd
sem nær í kringum afturglugg-
ann. Að sögn Fisker verður bíllinn
með nýrri hönnun stjórnbúnaðar
sem notar færri tölvur en rafbílar
nútímans. Einnig var sagt að drægi
bílsins myndi fara yfir 500 kíló-
metra. Engin dagsetning er komin
á frumsýningu bílsins en búast
má við að merkið frumsýni einnig
Ronin-sportbílinn og Alaska-pall-
bílinn við sama tækifæri. n
Fisker Pear-jepplingurinn
frumsýndur á þessu ári
Að framan eru opnanleg loftinntök auk kæliraufa fyrir frambremsur bílsins.
MYND/AUTO EXPRESS
Eftir að hafa kynnt tvo nýja rafbíla,
Evija-sportbílinn og Eletre-jepp-
linginn, er von á nýjum fjögurra
dyra rafdrifnum fjölskyldubíl
frá Lotus-merkinu. Bíllinn er
aðeins kallaður Type 133 eins og
er og ljósmyndarar náðu njósna-
myndum af bílnum nýlega við
vetrarprófanir.
Bíllinn mun keppa við Tesla
Model S og Porsche Taycan til að
mynda og mun nota tækni og
undirvagn Eletre-bílsins. Ekki var
að sjá að bíllinn væri í miklum
felubúningi en framendi hans er
greinilega mikið líkur framenda
Eletre-jepplingsins. Þar má sjá
sömu opnanlegu loftinntök sem
opnast og lokast eftir því hvort
þörf er á meiri kælingu eða minni
loftmótstöðu. Framljósin eru tví-
skipt og er neðri hluti þeirra L-laga.
Að aftan mun koma vindskeið sem
hækkar upp með meiri hraða. Bíll-
inn mun fá Hyper OS hugbúnað
Lotus sem notar 5G-farsímatækni.
Í R-útgáfu Eletre sem kemur með
tveimur rafmótorum er aflið 893
hestöfl svo búast má við svipuðum
tölum í Type 133. Sá bíll er með 112
kWst rafhlöðu og 600 kílómetra
drægi en Type 133 mun líklega fá
meira drægi vegna minni loftmót-
stöðu. n
Þriðji rafbíll Lotus á leiðinni
Tengiltvinnútgáfan fær hvassari stuðara en Performente-útgáfan.
MYND/AUTO EXPRESS
Lamborghini Urus-sportjeppinn
kemur í nýrri kynslóð á næsta ári
og kemur þá í fyrsta skipti í tengil-
tvinnútgáfu. Nýlega náðust njósna-
myndir af þeim bíl við vetrarpróf-
anir og þykir líklegt að bíllinn verði
því frumsýndur seint á þessu ári.
Tengiltvinn útgáfan er svipuð og
finna má í Porsche Panamera Turbo
S og er um 4 lítra V8-vél að ræða
með tveimur forþjöppum ásamt
18 kWst rafhlöðu. Samtals mun
V8-vélin og rafbúnaðurinn skila
690 hestöflum sem er 33 hestöflum
meira en í núverandi útgáfu. Drægi
Panamera-bílsins á rafhlöðunni
eingöngu er aðeins tæpir 50 kíló-
metrar og þar sem Urus er þyngri
bíll má búast við enn minna drægi
í honum. Fjögurra stúta pústkerfi
Urus fær að halda sér en línurnar
mýkjast nokkuð frá fyrri gerð. n
Njósnamyndir af nýjum Urus
Einhvern veginn
svona gæti
Volkswagen-
sportbíll fram-
tíðar litið út.
MYND/MOTOR1
Með þróun MEB-undirvagnsins og
þeirri staðreynd að Volkswagen
þróar nú sínar eigin rafhlöður og
rafmótora gæti sportbíll verið í
kortunum fyrir merkið, segir í
fréttatilkynningu frá framleiðand-
anum.
Fréttin er reyndar falin undir til-
kynningu um að Volkswagen hafi
nú einnig hafið þróun
á eigin straum-
breytum og kæli-
kerfum fyrir
rafbíla en
það gegnir
lykil-
hlutverki við þróun og framleiðslu
sportlegri bíla. Að sögn VW gæti
bíll með yfir 670 hestöfl verið á
teikniborðinu en það er svipað og
Porsche Taycan Turbo býður upp
á. Líklega má þó búast við að fram-
leiðandinn leggi áherslu á að koma
GTX-útgáfum fleiri bíla eins og
ID.3 og ID.Buzz á markað áður en
af því verður, en engu að síður
er gaman að sjá að hönnuðir
Volkswagen séu farnir að
horfa í þessa átt aftur. n
VW gæti átt einn sportbíl í framtíðinni
Öflugasta útfærslan
verður með tveimur
rafmótorum sem skila
893 hestöflum.
4 BÍ L A BL A ÐI Ð 8. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR