Fréttablaðið - 08.03.2023, Qupperneq 21
Með því að endur-
hanna hugbúnað
tvinnkerfisins er það
orðið enn notenda-
vænna en áður.
Með 1,8 lítra vélinni og nýjum tvinnbúnaði fæst nú talsvert meira afl sem
skilar sér í því að hann er næstum tveimur sekúndum fljótari í hundraðið.
Farangursrými er aðeins minna en í Golf í 1,8 lítra bílnum en þar sem raf-
hlaðan fyrir tvinnkerfið er frammí kemur það ekki að sök.
Sama lag er á framljósum og áður en þó fer aðeins meiri virkni í díóðurnar.
Loks var stjórnbúnaður kerfisins
endurforritaður með meiri
akstursánægju í huga. Til dæmis
vinnur hugbúnaðurinn mjög vel
með CVT-skiptingunni, eins og að
halda við bílinn við akstur niður
brattar brekkur, svo að segja má að
tími leiðinlegra CVT-skiptinga sé
liðinn. Eins skiptir máli í því sam-
bandi að hljóðeinangra bílinn sem
tekst ágætlega í þessum bíl. Það
eina sem mætti kvarta yfir í því
sambandi er veghljóð frá dekkjum.
Bíllinn kemur með tveimur
gerðum véla, 1,8 og 2,0 lítra bensín-
vélum. Búið er að auka afl þeirra
talsvert og hefur til dæmis afl 1,8
lítra vélarinnar verið aukið um
14% upp í 140 hestöfl, án þess að
það komi niður á mengun bílsins
eða eyðslu. Samt er bíllinn með
1,8 lítra vélinni nú 1,8 sekúndum
sneggri í hundraðið. Stærri vélin
er mun öflugri í hestöflum og líka
um tveimur sekúndum sneggri í
hundraðið. Sá munur finnst aðal-
lega við millihröðun bílsins en
báðir eru snöggir úr kyrrstöðu,
þökk sé tvinnkerfinu. Óhætt er að
mæla jafn vel með 1,8 lítra bílnum
þótt hann sé ekki eins snöggur því
að hann er líka ívið skemmtilegri
í akstri. Báðir eru léttir í stýri og
Skortur á plássi fyrir aftursætisfarþega er dæmigert fyrir þennan flokk bíla
en í Corolla er fótarýmið með betra móti.
nákvæmir en aðeins vottar fyrir
undirstýringu og minna gripi að
framan í tveggja lítra bílnum.
Toyota Corolla er væntanleg
snemma í vor og mun kosta frá
5.850.000 krónum sem hlaðbakur
en langbakurinn er aðeins 100.000
krónum dýrari. Helstu keppi-
nautar eru Ford Focus, Volkswagen
Golf og Kia Ceed sem dæmi. Það er
kannski tímanna tákn að erkióvin-
urinn Ford Focus er ekki einu sinni
í boði lengur á Íslandi ef marka má
heimasíðu Brimborgar. Volks-
wagen Golf kostar frá 5.790.000
krónum beinskiptur en bæta þarf
hálfri milljón við til að fá sjálf-
skiptinguna sem kemur þá í mildri
tvinnútfærslu. Kia Ceed er aðeins
fáanlegur í Sportwagon-útfærslu
og þá sem tengiltvinnbíll og kostar
frá 6.390.777 krónum en Touring
Sport-útfærslan frá Toyota kostar
frá 5.950.000 krónum. Toyota
Corolla er því á vel samkeppnis-
hæfu verði en samkeppnin hefur
þó það fram yfir að geta boðið upp
á tengiltvinnútgáfur. Í heildina
kemur ný útgáfa Corolla því vel
út sem vel búinn og sparneytinn
fólksbíll á góðu verði, með nýju
tvinnkerfi sem gefur honum aukið
afl og betri aksturseiginleika. n
Mickey Thompson Baja Boss
All-terrain og Mud-terrain
Icetrack ehf 773-4334
mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is
Stærðir á lager:
285/70R17 Baja Boss AT „E“ load............ 59.500 kr
285/60R20 Baja Boss AT „E“ load............ 88.500 kr
315/70R17 Baja Boss AT „E“ load............ 77.800 kr
37x12.50R17 Baja Boss AT „D“ load......... 105.500 kr
35X12.50R17 Baja Boss MT „D“ load........ 93.900 kr
37X12.50R17 Baja Boss MT „D“ load....... 108.900 kr
37X12.50R20 Baja Boss MT..................... 104.800 kr

Mickey T pson Baja Boss
All-terrai g Mud-terrain
Icetrack ehf 773-4334
mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is
Stærðir á lager:
285/70R17 Baja s AT „E“ load ..... . 59.500 kr
285/60R20 Baja Boss AT „E“ load............ 88.500 kr
315/70R17 Baja Boss AT „E“ load............ 77.800 kr
37x12.50R17 Baja Boss AT „D“ load......... 105.500 kr
35X12.50R17 Baj o s MT „D“ load........ 93.900 kr
37X12.50R17 Baja Boss MT „D“ load....... 108.900 kr
37X12.50R20 Baja Boss MT..................... 104.800 kr
Mickey Thompson Baja Boss
All-terrain og Mud-terrain
Icetrack ehf 773-4334
mtdekk@mtdekk.is www.mtdekk.is
Stærðir á lager:
285/70R17 Baja Boss AT „E“ load............ 59.500 kr
285/60R20 Baja Boss AT „E“ load............ 88.500 kr
315/70R17 Baja Boss AT „E“ load............ 77.800 kr
37x12.50R17 Baja Boss AT „D“ load......... 105.500 kr
35X12.50R17 Baja Boss MT „D“ load........ 93.900 kr
37X12.50R17 Baja Boss MT „D“ load....... 108.900 kr
37X12.50R20 Baja Boss MT..................... 104.800 kr
BÍLABLAÐIÐ 7MIÐVIKUDAGUR 8. mars 2023