Fréttablaðið - 08.03.2023, Qupperneq 24
Þrátt fyrir minnk-
andi flóru smábíla á
markaði verður áherslan
áfram á i10, i20 og i30
hjá Hyundai.
Fyrir þann sem skrifar um
bíla er góð skemmtun að
skoða bílasöfn með lausan
tíma erlendis og segja frá því
sem þar bar fyrir augu.
njall@frettabladid.is
Sá sem fékk þá snilldarhugmynd að
blanda saman sýningu á gömlum
bílum og búningum tengdum aldri
þeirra ætti eiginlega að fá orðu, svo
góð er hún. Bílablaðamaður Frétta-
blaðsins notaði tækifærið til að
skoða þessa sérstöku sýningu á leið
gegnum Malaga á dögunum. Safnið
er á besta stað í borginni við suður-
strönd Spánar og á sýningunni er
blandað saman bílum og bún-
ingum gegnum tímabil tuttugustu
aldarinnar ásamt listmunum þar
sem bílhlutir eru notaðir. Sýningin
hefur fengið mjög góða dóma og
fær til dæmis fjórar og hálfa stjörnu
á TripAdvisor.
Gengið er um sýninguna í þret-
tán sölum sem hver er tileinkaður
sínu tímabili. Má þar nefna tímabil
eins og Art Deco, Belle Époque-
tímabilið fyrir fyrri heimsstyrjöld-
ina, annan áratuginn og jafnvel er
sérstakur salur fyrir enskar hefðir
en einnig er áhersla á hönnunar-
bíla, draumabíla og jafnvel spyrnu-
kagga. Á meðan bílanöfn eins og
Bugatti, Bentley, Ferrari, Jaguar,
Cadillac og Rolls-Royce ber fyrir
augu má sjá búninga frá frægum
hönnuðum eins og Dior, Chanel,
Yves Saint Laurent, Givenchy og
Prada svo eitthvað sé nefnt. Rétt er
að gera ráð fyrir alla vega tveimur
klukkustundum til að skoða safnið
svo vel sé og auðvitað að taka betri
helminginn með. n
Bíla- og tískusafnið í Malaga
Í forgrunni er Peugeot 402 Eclipse Coupe Cabriolet 1937 þar sem þakið fellur ofan í skottið en fyrir aftan er Auburn af
1936-árgerð sem notaður var í kvikmyndinni Indiana Jones and the Temple of Doom. MYNDIR/NJÁLL GUNNLAUGSSON
Þessi Jagúar
1961 hefur oft
verið valinn
fallegasti bíll
í heimi meðal
annars af The
Daily Telegraph
árið 2008.
Þessi litfagri jakki frá hippatímabilinu er í stíl við þennan Rolls-Royce Phan-
tom V frá 1968 sem kallaður er Flower Power af eðlilegri ástæðu.
Bílasafnið er stórt og geymir yfir 100 verðmæta bíla í yfir 6.000 fermetrum,
en það er í gamalli tóbaksverksmiðju frá byrjun tuttugustu aldarinnar.
Þessi Citroen DS 19 í sjaldgæfri Cabrio-útgáfu frá sjöunda áratugnum kom
með tveggja lítra V4-vél sem skilaði 83 hestöflum.
njall@frettabladid.is
Hyundai i10 er nú á sinni þriðju
kynslóð og hálfnaður með líftíma
sinn en það þýðir venjulega að
kominn sé tími á andlitslyftingu.
Nýtt útlit hans var frumsýnt
nýlega en Hyundai sagði nýlega í
viðtali við Autocar að þrátt fyrir
minnkandi flóru smábíla yrði
áherslan áfram á i10, i20 og i30
bílana fram yfir næstu kynslóð.
Þrátt fyrir að útlitsbreytingin
sé ekki mikil fær hann sportlegra
útlit með nýjum ljósum, stuðurum
og 15 tommu álfelgum. Komin er
díóðulýsing í innanrýmið og nýr
ökumannsskjár ásamt átta tommu
margmiðlunarskjá í miðjustokki.
Apple CarPlay og Android Auto
er nú staðalbúnaður. Einnig hefur
öryggisbúnaður verið aukinn með
árekstrarvara og veglínuskynjara.
Búast má við sömu vélum áfram
en sú öflugasta er þriggja strokka
vél með forþjöppu sem skilar 99
hestöflum. n
Hyundai i10 fær andlitslyftingu
Endurhannaður framendi ásamt stærri álfelgum og nýjum litum eru aðal-
áherslur nýrrar gerðar i10. MYND/HYUNDAI
njall@frettabladid.is
Samkvæmt motor.no er rafbílaeign
í Noregi komin yfir 600.000 öku-
tæki og er hvergi meiri í heiminum.
Þar í landi kaupa átta af hverjum tíu
kaupendum nýrra bíla rafbíl frekar
en bíl með brunahreyfli vegna hag-
stæðari gjalda á rafbílum.
Að sögn Christina Bu, formanns
rafbílafélagsins í Noregi, eru með-
limir þess komnir yfir 120.000
talsins. „Það er land með kulda og
langar vegalengdir sem nær þessum
árangri og því ætti þetta að vera
mögulegt fyrir hvaða land sem
er,“ segir Christina í samtali við
motor.no. Á Íslandi var sala rafbíla í
febrúar rétt tæp 40% af heildarsölu
fólksbíla. n
Rafbílar í Noregi yfir 600 þúsund
Í Noregi hefur
fjölgun rafbíla
verið hraðari en
annars staðar
vegna ívilnana
og meiri inn-
viða.
MYND/JON TERJE
HELLGREN HANSEN
10 BÍ L A BL A ÐI Ð 8. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR