Fréttablaðið - 08.03.2023, Page 28
Ég er
vitaskuld
ánægð
með árang-
ur minn á
mótinu og
það var
mjög stórt
að ná að
synda 200
metrana á
undir
tveimur
mínútum.
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Sundkonan Snæfríður Sól
Jórunnardóttir gerði það
heldur betur gott á Vestur-
Danmerkurmótinu í sundi
um nýliðna helgi.
Snæfríður setti tvö glæsileg
Íslandsmet í skriðsundi í 50 metra
laug á mótinu. Hún bætti 14 ára
gamalt met Ragnheiðar Ragnars-
dóttur í 100 metra skriðsundi.
Hún synti vegalengdina á 55,61
sekúndu en Snæfríður sló metið
þegar hún synti fyrsta sprettinn
í 4x100 metra boðsundi. Sveit
hennar vann gullverðlaunin í
greininni.
Þá bætti Snæfríður eigið met í
200 metra skriðsundi. Sigurtími
hennar var 1:59,75 mínútur en
eldra met hennar var 2:00,20 mín-
útur sem hún setti á Ólympíuleik-
unum í Tókýó árið 2021. Þetta er í
fyrsta sinn sem íslensk sundkona
syndir á undir tveimur mínútum í
50 metra laug í þessari grein.
Snæfríður á einnig Íslandsmetin
í 100 og 200 metra baksundi í 25
metra laug en þau setti hún á HM
í Melbourne í Ástralíu í desember
síðastliðnum.
„Ég er vitaskuld ánægð með
árangur minn á mótinu. Þetta
var mjög stórt að ná að synda 200
metrana á undir tveimur mínútum
en það var eitthvað sem ég var
búin að reyna að ná í langan tíma,“
segir Snæfríður þegar Fréttablaðið
slær á þráðinn til hennar til Dan-
merkur.
„Ég reiknaði ekki með því að slá
metið í 100 metra skriðsundinu
og ég vissi hreinlega ekki af því að
ég hefði slegið það fyrr en talsvert
eftir sundið. En það var ansi góð
tilfinning þegar ég áttaði mig á
því að hafa slegið þetta met sem
hafði staðið svo lengi. Þetta var því
mjög góð helgi og ég er bara stolt af
sjálfri mér.“
Þetta var mjög stórt
Snæfríði dreymir um að komast á Ólympíuleikana í París á næsta ári. MYND/SSÍ
Átti ekki von á þessu núna
Snæfríður segist ekki hafa búist
við því að ná að synda svona hratt
eins og raun bar vitni á þessum
tímapunkti.
„Ég átti alls ekki von á því að
þetta myndi gerast núna. Ég er
búin að vera í þungum æfingum
og er nýkomin úr tveggja vikna
æfingabúðum. En ég var vel upp-
lögð frá fyrsta keppnisdegi og ég
hafði trú á sjálfri mér,“ segir Snæ-
fríður.
Snæfríður er 22 ára gömul og
hefur verið búsett í Danmörku
frá því hún var níu ára gömul
en hún hóf sundferil sinn með
Hamri í Hveragerði. Hún syndir
fyrir sundlið Álaborgar og varð
danskur bikarmeistari með því
í nóvember. Snæfríður sló fimm
Íslandsmet á síðasta ári og var
útnefnd sundkona ársins 2022 af
Sundsambandi Íslands og það í
annað sinn.
Snæfríður á ekki heimangengt á
Íslandsmótið í sundi í 50 metra laug
sem haldið verður í Laugardalslaug-
inni í byrjun næsta mánaðar.
„Mér var auðvitað boðið að
koma heim til Íslands og keppa
en þar sem opna danska mótið
fer fram á sama tíma kem ég ekki.
Liðið sem ég æfi og keppi með
verður allt með á þessu móti í
Danmörku. Það er mikil samstaða
í liðinu og samkeppnin hörð og ég
ætla að standa mig vel á mótinu,“
segir Snæfríður.
Hún segist stefna á að tryggja
sér þátttökurétt á HM sem fram
fer í Fukuoka í Japan í júlí og þá
dreymir hana um að taka þátt í
sínum öðrum Ólympíuleikum en
þeir verða haldnir í París á næsta
ári.
„Það lítur vel út núna að ég nái að
tryggja mér sæti á HM og ég stefni
að sjálfsögðu á að komast þangað.
Ég ætti að ná að synda hraðar í
apríl samkvæmt æfingaáætlun
minni og vonandi tekst mér að ná
lágmarkinu. Draumurinn er svo að
keppa á Ólympíuleikunum í París
en ég stilli þessu þannig upp að
taka eitt skref í einu og vera ekki að
stressa mig of mikið.“
Snæfríður hefur búið meira en
helming ævi sinnar í Danmörku og
líkar dvölin vel þar. Hún flutti með
fjölskyldu sinni til Árósa en er nú
búsett í Álaborg.
„Ég er ekkert á heimleið. Það er
í nógu að snúast hjá mér. Ég er í
háskólanámi og er á öðru ári í sál-
fræði og svo eru stífar æfingar og
keppni með sundliðinu mínu,“ segir
Snæfríður, sem byrjaði feril sinn í
sundlauginni í ungbarnasundi. n
Þorbjörg Svana byrjaði að
nota Protis® kollagen fyrir
rúmu ári og hefur fundið
fyrir miklum jákvæðum
breytingum á húðinni og
hárinu. Einnig hafa liðverkir
minnkað til muna. Þessar
breytingar hafa hjálpað
henni við bata eftir slys sem
sendi hana í veikindaleyfi
fyrir rúmum þremur árum.
Þorbjörg Svana Gunnarsdóttir er
lærð hárgreiðslukona, útstillinga-
hönnuður og hundaþjálfari, en
hún hefur verið í veikindaleyfi
vegna slyss sem olli henni vægum
heilaskaða fyrir rúmum þremur
árum. Hún er að vinna í bata og
segir að kollagenið frá Protis hafi
hjálpað sér gríðarlega við að jafna
sig á ýmsu sem misfórst eftir slysið.
„Vinkona mín benti mér á að
prófa kollagenið og ég byrjaði að
taka það inn fyrir rúmu ári síðan.
Hún talaði ofboðslega vel um
þetta og ég hafði séð þetta hjálpa
henni mikið og sjálf er ég búin að
leita allra ráða til að verða aftur ég
eftir slysið, þannig að ég prófaði,“
segir Þorbjörg. „Ég er rosa þakklát
fyrir ábendinguna, því ég er búin
að prófa ýmislegt sem hefur verið
mælt með án teljandi árangurs og
margt af því er miklu dýrara, en
fæðubótarefnin frá Protis eru æði.
Ég er mjög þakklát fyrir að finna
svona gæðavöru á góðu verði.“
Áhrifin komu á óvart
„Ég finn rosalegan mun á mér og
satt að segja kom það mér á óvart
hvað þetta breytti miklu, því ég hef
prófað kollagen frá öðrum fram-
leiðendum sem hjálpaði mér ekki
eins mikið,“ segir Þorbjörg. „Eftir
slysið fór allt kerfið mitt í klessu
en ég finn núna mikinn mun á
hárinu, húðinni og er mun betri,
finn ég, af liðverkjum.
Ég hef alltaf verið íþróttakona
en eftir slysið varð ég mjög veik og
liðirnir veiktust svo mikið að ég
gat ekkert gert. En síðasta ár hef ég
getað byrjað að hreyfa mig aftur,“
segir Þorbjörg. „Nú get
ég stundað líkamsrækt
aftur, ekki mikið að vísu,
en ég finn mun, sem er
frábært.“
Húðin ekki lengur
eins þurr
„Ég hef alltaf glímt við
exem og verið með
mjög þurra húð svo
ég hef þurft að bera
á mig krem, body
lotion og skrúbba
hælana, en eftir að
ég byrjaði að nota
kollagenið þarf ég
ekki lengur body
lotion og finn mun
á hælunum líka, því
ég er ekki lengur eins
þurr í húðinni,“ segir
Þorbjörg. „Núna finnst mér hún
hafa miklu meiri gljáa og hreinlega
glansa, án þess að vera feit. Húðin
er miklu meira lifandi, ferskari og
hún bara glóir. Þannig að ég finn
hvað þetta hjálpar henni mikið.“
Hárið þykkara og heilbrigðara
„Ég vann sem hárgreiðslukona
fyrir slysið svo ég spái mikið í hári.
Ég hef tekið eftir því að það kemur
rosamikill gljái í
hárið og mér finnst
það síkka hraðar,
það er þykkara
og það er falleg
hreyfing og miklu
meira líf í því,“ segir Þorbjörg. „Það
er bara algjör snilld. Allir vilja hafa
fallegt hár og konur sækjast sér-
staklega eftir því að fá gljáa í hárið
og þetta er undraefni fyrir það.
Ég hef líka séð mikinn mun á
hári vinkonu minnar sem benti
mér á þetta. Hárið hennar var í
vondu ástandi áður en hún byrjaði
að nota kollagenið, það var mjög
fíngert og síkkaði aldrei því það
brotnaði svo auðveldlega,“ útskýrir
Þorbjörg. „En nú er það orðið fal-
legt og heilbrigt og ég hef aldrei séð
hana með svona sítt hár.
Það er magnað hvað álag, áföll
og streita hefur mikil áhrif á hárið.
Eftir slysið tók ég eftir miklum
neikvæðum áhrifum á hárið mitt
en eftir að ég byrjaði á kollageninu
hefur það lagast mikið. Þetta
er bara geggjuð vara og algjört
töframeðal, enda er ég í hálfgerðri
áskrift,“ segir Þorbjörg að lokum.
Um Protis® kollagen
Kollagen er náttúrulegt prótín og
eitt helsta byggingarefni líkamans.
Gott að vita um Protis® kollagen:
n Mikið magn virkra efna
n Engin aukefni
n Sýnilegur árangur á 30 dögum
n Íslenskt hugvit og framleiðsla
n Ekkert gelatín eða sykur
Protis® kollagen er framleitt úr
íslensku fiskroði. Varan er einstök
blanda af bestu innihaldsefnum
sem öll styðja við styrkingu á húð,
hári og nöglum. Kollagen úr fiski
er áhrifaríkara en kollagen úr
landdýrum þar sem upptaka úr
meltingarvegi er betri.
Helstu innihaldsefni:
n SeaCol® er blanda af vatns-
rofnu kollageni úr íslensku
fiskroði og vatnsrofnu
þorskprótíni úr íslenskum
þorski. SeaCol® tekur þátt í
að styrkja vefi líkamans og
viðhalda teygjanleika
n C-vítamín tekur þátt í myndun
kollagens í líkamanum
n Hýaluron-sýra er eitt mest
rakagefandi efni náttúrunnar
og viðheldur meðal annars
raka húðarinnar
n Kóensím Q10 er að finna í nær
öllum frumum líkamans. Það
er mikilvægt fyrir endurnýjun
fruma eins og húðfruma
n B2- og B3-vítamín, sink, kopar
og bíótín fyrir hárvöxt, endur-
nýjun húðar og vöxt nagla
Protis® Kollagen fæst í næsta
apóteki, heilsuvöruverslun og
stórverslun. Nánar á protis.is.
Protis kollagen gaf húðinni og hárinu gljáa
Þorbjörg Svana Gunnarsdóttir segir að kollagenið frá Protis
sé algjört töframeðal. FRÉTTABLAÐIÐ/EYÞÓR
Kolla-
genið frá
Protis er komið
í nýjar umbúðir
með nýtt og
ferskt útlit.
4 kynningarblað A L LT 8. mars 2023 MIÐVIKUDAGUR