Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 23
Amalia
Hallvík
Hallvík er lítil vík nálægt Hlíðarkróki.
Sunnan megin í Hallvíkinni er lítið neí
sem er góður veiðistaður. Um miðjan
júní fer bleikjan að láta sjá sig oftar í
Hallvíkinni og minna á stöðum eins og
Öfugðsnáða. Veiðistaðurinn í Hallvíkinni
ber ekki marga veiðimenn í einu, í mesta
lagi tvo.
Leirutá
Leirutáin er einnig staður sem er vel virkur
í júní og júlí. Leirutá er úti í Lambhaga og
þar eru veiðistaðir sem nefnast Suðurdýpi,
Nösin, Stallar, Kverkin,_ Vesturbrún og
Norðurbakki. Bleikjan sýndir inn og út
um litlu víkina sunnanmegin á tánni.
Júníflugur í Þingvallavatni
Veiðimaðurinn falaðist einnig eftir því
að Þór nefndi tvær uppáhaldsflugur til
notkunar í Þingvallavatni í júní. Þær eru:
Killer m/kúlu
Killerinn var hannaður af Þór fyrir 36
árum, hann átti þá bara tvær flugur,
Black Zulu og Alexöndru. Hann vildi
nteiri tilbreytingu og settist því niður og
hannaði nýja flugu sem sprottin er úr
lífríki Þingvallavatns. Killerinn er sérlega
góð fluga í vorveiðinni og gefur vel allt
veiðitímabilið. Allar upplýsingar og efni í
flugurnar er hægt að fá í Arkó veiðivörum
á Krókhálsi.
Þór Nielsen gefur
veiðimönnum góð ráð
Þór Nielsen er fremstur meðal jafningja þegar kemur að fluguveiði á silungi. Hann
stundar Þingvallavatn grimmt og fáir þekkja þetta magnaða vatn betur en Þór.
Hann stóð nýverið að útgáfu bæklings um Þingvallavatn og er ritið gefið út af
Nielsen Group og Arkó veiðivörum. Þar er finna kort með merktum veiðistöðum
og margvíslegar gagnlegar upplýsingar fyrir veiðimenn. Þór hefur fallist á að
gefa fluguveiðimönnum sem halda í Þingvallavatn góð ráð hér í blaðinu. í þessu
tölublaði Veiðimannsjns miðar Þór við veiði í*úní.
"Það er frekar erfitt að alhæfa hvaða veiðistaðir séu á hverjum tíma bestir í
vatninu. Þetta eru þó þeir staðir sem ég myndi reyna fyrst þegar komið er að
Þingvallavatni í júní," segir Þór.
Krókur: Kamasan B-175 nr. 8.
Búkur: Svart áróragarn, meðalsver
silfurvír.
Bak: Hvítt áróragarn.
Haus: Flúorappelsínugulur með gullkúlu
3mm.
Amalía
Amalía er skírð í höfuðið á barnabarni
Þórs og hefur verið einstaklega gjöful
síðustu árin. Þetta er mjög einföld fluga
sem áuðvelt er að hnýta. Hún gefur vel
yfir hásumarið og Þór telur stærð 8 gefa
best.
Krókur: Kamasan Gruber nr. 8.
Búkur: Svart, meðalsvert vinyl rib.
Haus: Flúorappelsínugulur með gullkúlu
3 mm.
Þór Nielsen meö mjöggóða veiðiur Þmgvallayatni. fíleikjur affmsum stœrðum sem flestartóku annað hvort Killerinn eða Amaliu.