Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 29

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Side 29
t; Jóhannes Kristjánsson er án efa mesti stórlaxabani sem uppi er á Islandi. Stórfiskalisti Jóhannesar: 31 pund 1 lax 30 pund 2 laxar 29 pund 0 28 pund 1 lax 27 pund 0 26 pund 2 laxar 25 pund 0 24 pund 2 laxar 23 pund 6 laxar 22 pund 2 laxar 21 pund 14 laxar 20 pund 20 laxar Samtals. 20 pund og yfir = 50 laxar Þess má til gamans geta að Jóhannes hefur skráð hjá sér 18 nítján punda laxa og hvorki fleiri né færri en 48 átján punda laxa. Mesti núlifandi stórlaxabani á íslandi Fimmtíu laxar 20 pund og yfir Hann á þrjá laxa á 30 + listanum og hann hefur sett í fleiri stórlaxa en nokkur annar núlifandi íslendingur. Þetta er fullyrðing Veiðimannsins og ef einhver vill hrekja hana væri okkur heiður að því að nafngreina þann sem slegið hefur þetta met. Eitt af því sem menn hljóta að velta fyrir sér er hversu nákvæm vog var notuð á þessa fiska í "gamla daga". Jóhannes segir að hann hafi Iátið kaupa bestu fáanlega vigt fyrir veiðihúsið þegar hann réð ríkjum við Laxá. "Það giltu alveg sérstakar reglur þegar stórfiskar voru vegnir. Þeir voru ekki skráðir til bókar nema ráðskonan staðfesti þyngdina. Þetta var tekið mjög alvarlega," segir Jóhannes. Hvernig stendur á því að þessir fiskar virðast ekki lengur til? Jóhannes telur raunar að netaveiði víða við strendur landsins hafi tekið sinn toll og geri það enn. "Það eru nú bara tvö ár síðan að ég var að veiða í Laxá og var staddur fyrir neðan fossa þegar ég sá þrjá netabáta lóna úti fyrir ósnum. Það var talsverð þoka þennan morgun og maður sá þessa báta af og til. Þegar þokunni létti voru þeir horfnir." Jóhannes segist hafa kært þetta en viti ekki til þess að nokkuð hafi komið út úr þeirri rannsókn og efast raunar um að rannsókn hafi farið fram. Hann nefnir fleiri dæmi og vitnar í fyrrverandi formann Laxárfélagsins, Helga heitinn Bjarnason. "Helgi sagði mér að eitt árið vissi hann til þess að yfir 300 laxar hefðu verið teknir í net fyrir utan Húsavík. Hann var klökkur þegar hann sagði mér þetta," segir Jóhannes. Það er ekki gott að segja nákvæmlega til um það segir hinn þrautreyndi stórlaxabani. "Mér koma þó í huga tvö orð. Þverðmóðska og skammsýni. Þvermóðska vegna ræktunarmála. Hér á árum áður pöruðum við alltaf saman stórar hrygnur við stóra hænga þegar við vorum að kreista. Nú virðist meira lagt upp úr fjöldanum. Skammsýnin liggur í græðginni og hún kemur best fram í netaveiðinni. Ég hef nýlega farið að velta því fyrir mér hvort rekja megi þetta að hluta til þess tíma þegar byrjað var að nota nylonnet til veiða á ýsu. Það voru stórriðin net og hafa hiklaust fangað allan þann stóra lax sem í þau synti, smærri laxinn slapp í gegn." 30 pundari í sumar? Ef listinn yfir stærstu stangveiddu laxana er skoðaður þá má glögglega sjá að á bilinu 1950 - 1955 veiðast nokkrir 30 punda fiskar. Það bólar svo aftur á slíkum fiski um 1970 eða eftir fimmtán til tuttugu ár. Næstu 30 pundarar veiðast á árunum 1984 - 1987, eftir rúmlega fimmtán ára hlé. Nú eru átján ár liðin og það skyldi þó aldrei vera að einhver 15-20 ára náttúruleg sveifla sé hér að verki? Það kemur í ljós í sumar. Júní 2005 Veiðimaðurinn 29

x

Veiðimaðurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.