Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 45

Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 45
Lækkandi hitatölur Við lögðum af stað að kvöldi 31. mars. Bíllinn var drekkhlaðinn af veiðigræjum og mat. Það er jú nauðsynlegt að hafa nóg af góðum mat í veiðiferðum. Þegar illa gengur þá getur maður alltaf hlakkað til að borða svera steik. Eftir því sem við nálguðumst Tungufljót lækkuðu tölurnar á hitamælinum í bílnum og þegar við komum í veiðihúsið var hitinn kominn niður í 0 gráður. Bjartsýnin var ennþá mikil þegar við bárum draslið inn í hrörlegt veiðihúsið og um leið og við fengum okkur sæti og slökuðum á fór Bjarni Róbert fluguhnýtingameistari að skipuleggja vopnabúrið. Við vorum allir sammála um að tækin skiptu sköpum við þessar aðstæður. Þungar línur sem helst sökkva meira en 8 tommur á sekúndu og stórar, þungar flugur. Það er okkar reynsla að í svona vorslarki gerir þetta gæfumuninn. Eftir heitar umræður um veiða og sleppa án þess að fá nokkra niðurstöðu aðra en þá að öllum vorfiski ætti að sleppa var farið að sofa. Klukkan er átta að morgni 1. apríl og allir komnir á fætur. Fæstir höfðu náð góðum svefni. Einhver kenndi rúmunum um en flestir viðurkenndu að þetta væri spenningur vegna fyrsta veiðidagsins. Úti var glæsilegt veður. Logn, sól og tveggja stiga frost en við vissum að þetta var besta hugsanlega veðrið, það sagði Stefán að minnsta kosti, bjartsýnn að vanda. Um leið og sólin verður búinn að lyfta sér hærra á himininn og hita vatnið með hjálp kolsvarts botnsins þá gætu ævintýrin gerst. Við píndum okkur til að vera inni til klukkan tíu en þá héldu okkur enginn bönd, við klæddumst herskrúðanum og þræddum stangirnar með þungum línum. Á taumana settum við svo þungu flugurnar. "Niður skal það fara, drengir," sagði Helgi fasteignasali og hnýtti tveggja og hálfs tommu túpu á. Stórskotaliðið var tilbúið. Kalt, kalt, kalt... Ég og Bjarni skutluðum Helga og Stebba niður í Syðri-Hólma en Bjössi ætlaði að koma úr bænum seinna um daginn. Ég og Bjarni ætluðum okkur stórvirki uppi við brú. Enn var skítakuldi úti og hitinn rétt að skríða upp undir frostmarkið. Við börðum allt í kringum brúna án þess að sjá nokkurt merki um líf. Ég ætlaði ekki að trúa þessu. "Við erum fyrstir í sprænuna og við hreyfum ekki fisk." Bjarni stakk upp á að Bjarni Róbert Jónsson sleppir fallegum fiski sem tók viö Syðri-Hólma. Þessi birtingur mældist 84 sentimetrar og tók 2ja tommu Black Ghost túpu. við færum upp í Fitjabakka og þangað var reykspólað. Mér leið eins og "kóara" í rallýi alla leiðina og við vorum komnir á veiðistaðinn á mettíma og byrjaðir að kasta. Allt kom fyrir ekki. Við hreyfðum ekki fisk. Ég leit á Bjarna. "Hvað er í gangi? Sjóbirtingurinn hlýtur að vera farinn," bætti ég við. Hitastigið var komið vel upp fyrir frostmarkið og sólin farin að hlýja okkur og Bjarni stakk upp á að við færum að hitta félagana og vita hvort þeir hefðu náð einhverjum stórum. Þegar við komum niður eftir voru þeir að veiða Flögubakka og viti menn Stefán var með þennan glæsilega birting á. Hann var rétt að ná honum á land þegar við stöðvuðum bílinn. Við mynduðum dýrið og slepptum því. Stebbi sagði okkur að þeir hefðu orðið aðeins varir við Syðri-Hólma og náð að landa einum. "Drífið ykkur upp eftir. Það er bara spurning um tíma hvenær hann fer að taka fyrir alvöru," skipaði Stebbi. Við rukum inn í bíl og á meðan við vorum Júni 2005 Veiðimaðurinn 45
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Veiðimaðurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Veiðimaðurinn
https://timarit.is/publication/1774

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.