Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Page 55
Veiðisvæði 1
Almennt um veiðisvæðið
Neðsta veiðisvæði Fnjóskár er veiðisvæði eitt og er það
yfirleitt besta svæðið frá byrjun veiðitíma og fram í seinni
hluta júlímánaðar en þá getur farið að hægjast um þar og
efri svæðin fara að taka við sér. Merktir veiðistaðir eru frá
1-20 og eru þeir allir neðan laxastigans nema veiðistaðir
18-20. Á veiðistöðunum neðan við stigann stansar allur
fiskur á leiðinni upp ána, enda margar hindranir og mikill
straumþungi snemma veiðitímabils.
Til að veiða veiðistaðina vestan megin árinnar er bílnum lagt
á vesturbakkanum við gömlu brúna í Dalsmynni og þaðan
er gengið upp með ánni þar til að laxastiganum er komið.
Þaðan eru veiðistaðirnir Hellan, Bjarghorn, Skúlaskeið og
Hríslubreiða veiddir niður eftir ánni þar til aftur er komið
niður að brú. Austan megin er lagt á bílastæði við veginn
og þaðan farið beint niður að ánni til að komast að bestu
veiðistöðunum. Veiðimenn ákveða skiptingu á svæðinu
sjálfir. Flestir skipta svæðinu milli sín á þann veg að hvor
stöng er helming vaktarinnar á hvorum bakka, þannig ná
báðar stangirnar að veiða alla veiðistaðina.
73 laxar veiddust á fyrsta svæði sumarið 2004. Þá var bætt
við veiðistöðum ofan við laxastigann og sett upp sleppitjörn
við Skarðsbreiðu sem er nú efsti veiðistaðurinn. Er þetta gert
til að halda svæðinu betur inni þegar líða fer á sumarið og
bjóða upp á fleiri skemmtilega fluguveiðistaði.
Nr. 1 Hríslubreiða
Hér stansar lax og bleikja frekar stutt við og hefur þessi
veiðistaður ekki gefið mikla veiði síðustu árin. Þó má
stundum rekast á fiska í göngu og helst nálægt bakkanum
að vestan, utan í eða ofan á klöppunum sem eru þar. Einnig
geta þeir verið neðarlega á breiðunni, um það bil þriðjung
úti í ánni.
Nr. 3 Skúlaskeið
Veiði í Skúlaskeiði hefur farið minnkandi síðustu ár en það
gefur alltaf nokkra laxa á sumri og töluvert af bleikju. Þarna
liggja laxarnir frekar ofarlega í og við straumskilin þar sem
aðalstrengurinn er í ánni. Hægt er að vaða út á klöppina
ofarlega þar sem brýtur á grjótum við landið og veiða þaðan.
Bleikjan getur verið alveg upp, í hvítfyssinu en einnig rétt
neðan við þar sem vaðið er út, um það bil hálfa vegu að
straumskilunum.
Nr. 4 Bjarghorn
Farið er niður stiga milli Bjarghorns og Hellunnar og gengið
þangað sem stórt bjarg hefur brotnað úr klettaveggnum. Út
af þessu bjargi, bæði ofan og neðan við það má oftast finna
bæði bleikjur og laxa, sérstaklega á göngutíma. Best er að
vaða á brotinu sem er nokkrum metrum ofan við bjargið
og fara svo niður náttúrulegar tröppur og veiða niður
straumskilin og klöppina. Þó er þetta ekki alltaf hægt sökum
vatnsmagns en þegar komið er fram um miðjan júlí er það
yfirleitt auðvelt.
Nr. 6 Hellan
Hellan er eingöngu veidd af vesturbakka, ásamt Bjarghorni
og Skúlaskeiði. Sé gott vatn í ánni má yfirleitt finna töluvert
af laxi og bleikju á Hellunni. Ofan af berginu eru fiskarnir
vel sjáanlegir og ber að varast að ganga á brúninni, heldur
gægjast aðeins fram af henni og þá helst ofarlega. Yfirleitt
styggjast fiskarnir ekki ef farið er varlega út á klöppina efst á
staðnum. Best er að fara niður á klöppina fyrir ofan staðinn
og veiða þaðan og gott er að láta veiðifélagann segja sér
til að ofan. Einnig er gott að kasta kúluhausum upp fyrir
bleikjurnar, láta þá sökkva og koma til þeirra á dauðareki.
Nr. 7-8 Brúarlagshylur
og Kolbeinspollur
Brúarlagshylur er rennan sem myndast út úr þrengslunum í
gljúfrinu og nær niður í Kolbeinspoll en mjög óljós mörk eru
á milli þessara veiðistaða. Kolbeinspollur tekur svo við og er
neðri hluti veiðistaðarins og grynnri hlutinn að austanverðu.
Þarna veiða menn frá austurbakka og eru oft tugir fiska
sjáanlegir á göngutíma og fiskur stökkvandi um allt. Best er
að byrja frekar ofarlega, ofan við vik í rennunni, enda oftast
laxar í þessu viki og einnig á grynningunum neðan við það,
veiða þetta tiltölulega vel áður en farið er að einbeita sér af
neðri hlutanum þar sem gott er að vaða út að vikinu til að
veiða rennuna og brotið. Neðarlega í rennunni liggur alltaf
lax ef hann er kominn í ána á annað borð og þegar mikið er
af fiski á svæðinu er hægt að sjá raðirnar alveg niður á brot.
Helst er að fiskurinn sem er í vikinu og ofan á klöppinni
neðarlega fáist til að taka.
Nr. 9 Efra-Lækjarvik
Að austanverðu er smápyttur neðan við útfallið úr
Kolbeinspolli. Þarna má yfirleitt finna nokkrar bleikjur og
jafnvel lax á göngutíma.
Nr. 10 Malareyri
Malareyrin er að austanverðu neðan við Efra-Lækjarvik og
gefur góða veiði flest ár. Þegar horft er niður að staðnum má
sjá klöpp skaga út í ána. Fyrir framan þessa klöpp liggja oft
fiskar þegar komið er þarna að morgni eða eftir hvíld. Hægt
er að vaða aðeins út ofan við þá og kasta flugunni á þá. Þarna
er gott að nota hraðsökkvandi línu og túpu, kasta aðeins
upp í strauminn og láta sökkva vel fyrir framan klöppina.
Neðan við þessa klöpp geta einnig legið fiskar. Nauðsynlegt
er að fara þarna með gát og byrja frekar ofarlega, rétt neðan
við Efra-Lækjarvik.
Nr. 15 Rauðhylur
Mjög stór veiðistaður sem heldur alltaf töluverðu af bleikju,
enda hefur veiðst mikið af bleikju þarna undanfarin sumur.
Best er að veiða að austanverðu en einnig má einstaka sinnum
sjá bleikjur og laxa að vestanverðu ofan af klettunum. Þarna
er bleikjuna að finna alls staðar, alveg frá horninu efst og
niður að klöppum sem ná lítið eitt út í ána að austanverðu
og mynda dálítið brot. Út af þessum klöppum halda laxarnir
sig ef þeir eru þarna á annað borð en þessi staður gefur helst
lax snemma sumars.
Nr. 17 Borgargerðisbreiða
Veiðistaðurinn hefur breyst mikið og gefur ekki sömu veiði
og áður. Hann var veiddur af austurbakka á horninu þar
sem áin skiptir sér. Helst er hér að reyna við sjóbleikjuna að
vestanverðu og vel getur verið von á einum laxi í leiðinni.
Júní2005 Veiðimaðurinn 55