Veiðimaðurinn - 01.06.2005, Blaðsíða 60
SVFR-punktar
V Samantekt
Þorsteinn Ólafs
Veiðibækur á Netinu
f sumar verða veiðibækur yfir veiði í Norðurá, Hítará og
Laxá í Kjós færðar daglega rafrænt á Netinu. Þegar þetta
er skrifað er einnig verið að athuga hvort sé hægt að færa
veiðibækur annarra veiðiáa yfir á Netið.
Veiðibókin á Netinu verður að formi til eins og venjuleg
veiðibók að öllu leyti nema því að nöfn veiðimanna munu
ekki koma fram.
Þessi þjónusta skiptir máli fyrir veiðimenn sem eru að leggja
í 'ann. Þeir sjá nýjustu tíðindi af veiði og hafa upplýsingar
um hvar fiskur hefur veiðst, hvað hann tók og geta búið sig
undir veiðiferðina eftir því.
í Norðurá, Hítará og Laxá í Kjós mun staðarhaldari á hverjum
stað skrá daglega í veiðibókina. Stjórn SVFR opnaði sem
kunnugt er Norðurá þann 1. júní s.l. en þá reyndi ekki á
staðarhaldarann því engann laxinn þurfti að skrá! Laxinn
var þá ekki mættur og er það í annað sinn sem það gerist.
Hitt skiptið var 1989. í þéssum skrifuðum orðum er laxinn
hins vegar mættur í Norðurá, skráning er hafin og gengur
vel.
SVFR eykur þjónustuna enn frekar við veiðimenn með
bættri tækni. í sumar munu veiðimenn sem dveljast í
veiðihúsunum við Norðurá, Hítará og Laxá í Kjós geta
vafrað um Netið þar sem þráðlaus nettenging mun standa
veiðimönnum til boða.
Bætt tækni í þessum efnum þýðir einnig að upplýsingar til
félagsins berast hraðar og hægt er að senda nýjar myndir til
birta að á vefnum www.svfr.is.
María Anna Clausen með fyrsta laxinn í ár úr Norðurá.
Ljósmynd Ólafur Vigfússon.
Laxinn lét bíða eftir sér í opnun íNorðurár. F.v. Geir Ólafsson Ijósmyndari á Heimi, Eggert
Skúlason ritstjóri Veiðimannsins og Bjami Júlíusson formaður SVFR.
Ljósmynd Þorsteinn Ólafs.
María Anna Clausen
veiddi fyrsta laxinn
Veiði í Norðurá hefst ár hvert 1. júní.
Norðurá er skipt í tvö veiðisvæði,
Norðurá I og Norðurá II.
Stjórn SVFR hóf veiðarnar í Norðurá
I en við veiðar í Norðurá II voru
hjónin María Anna Clausen og Ólafur
Vigfússon. í Norðurá II er veitt í
neðri hluta Norðurár, Stekknum
og Munaðarnesi. Meira líf var á
þessum slóðum en í Norðurá I fyrstu
veiðidagana og veiddi María Anna
fyrsta laxinn þetta árið í Norðurá þegar
hún landaði grálúsugri átta punda
hrygnu í Raflínustreng neðan við
orlofshúsabyggðina í Munaðarnesi að
kvöldi 1. júní.
60 Fréttapunktax SVFR - samantekt Þorsteinn Ólafs