Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Qupperneq 3
3
I INNGANGUR
Árið 1970 rannsakaði danska fyrirtækið Isotopcentralen gerlamengun
sjávar á höfuðborgarsvæðinu. Síðan hafa frárennslismál á þessu svæði
verið ofarlega á baugi.
Árið 1973 kom út "Greinargerð um holræsamál Reykjavíkurborgar með til-
liti til umhverfisverndunar" frá gatnamálastjóranum í Reykjavík. í
þessari greinargerð er gerð tillaga um lausn á vandamálum vegna mengunar
sjávar við Reykjavík og hjá sveitarfélögunum sunnan Reykjavíkur. Gert
var ráð fyrir sameiningu allra holræsaútrása í 3 til 4 meginútrásir
(Grótta, Laugarnes, Álftanes og hugsanlega Geldinganes), sem lægju
tiltölulega langt út fyrir fjöruborð. Tillagan gerði ráð fyrir 2
kostum í sambandi við hreinsun:
a) gróf (mekanisk) hreinsun
b) fín (líffræðileg, efnafræðileg) hreinsun.
Bent var á að kostur a) væri eðlilegur áfangi i síðari kost b).
Lauslegur kostnaðarsamanburður gaf til kynna, að kostur b) væri mun
dýrari (mörgum tugum milljóna króna dýrari miðað við verðlag í dag).
Þar eð ljóst var, að þessi mál yrðu ekki leyst nema með samstarfi
allra sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, var árið 1974 komið á fót
"Samvinnunefnd um frárennslismal á höfuðborgarsvæðinu". I henni áttu
sæti fulltrúar frá Reykjavík, KÓpavogi, Seltjarnarnesi og Garðabæ.
Síðan hafa fulltrúar frá Hafnarfirði og Mosfellshreppi bætst við.
Nefndin hefur haldið marga fundi og látið rannsaka rnengxm sjávar á
svæðinu.
Árið 1974 lögðu borgarlæknir og heilbrigðismálaráð Reykjavíkurborgar
fram svohljóðandi tillögu:
"Stefnumörkun um hreinleika sjávar við strendur og voga vegna holræsa-
útrása.
1. Áður en skólp er leitt til sjávar skal grófhreinsa það og for-
hreinsa í hreinsistöð (m.a. með fitu-, bensín- og olíugildrum).
2. Innan við 100 m fjarlægð frá strönd (flóðborð) skal coligerla-
fjöldi í sjó hvergi vera meiri að jafnaði en 1.000 pr. 100 ml.
(B-flokkur).
3. Á baðströnd, eða þar sem útivistarsvæði eru við fjörur, ellegar
matvælaiðnaður í grennd, skal coligerlafjöldi í sjó, í 100 m
fjarlægð frá strönd, vera að jafnaði minni en 100 pr. 100 ml.
(A-flokkur).
4. Þegar staðsetning holræsaútrása hefur verið ákveðin, skal fram-
kvæma líffræðilega rannsókn á botnsvæði í umhverfi þeirra, eftir
því sem nauðsynlegt verður talið."
Enn hefur ekki verið gerð sameiginleg áætlun sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu um lausn á vandamálum vegna mengunar sjávar. Hins vegar
hafa einstök sveitarfélög komið fram með ákveðnar hugmyndir um lausn
vandamálsins, að því er þau sjálf varðar.