Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Page 15
15
Eftirfarandi ákvæði sýna kvaðir, sem lagðar eru á notendur frárennslis-
kerfisins í Reykjavík (tekið úr reglugerð um holræsi í Reykjavík):
28. gr.
Frárennslis frá sjúkrahúsum má ekki leiða út í holræsakerfi bæjarins,
fyrr en það hefur verið hreinsað. Borgarlæknir og bæjarverkfræðingur
skulu samþykkja hreinsunaraðferð.
29. gr.
Þar sem skolp inniheldur mikið magn af fitu (sbr. 14. gr.), skal það
leitt í loftræstan fitubrunn.
Fitubrunnum skal að jafnaði komið fyrir utanhúss, og þannig að auðvelt
sé að hreinsa þá.
Frárennsli frá salemum má ekki tengja fitubrunnum.
í húsum, þar sem ekki hefur verið séð fyrir sérstökum lögnum fyrir vaska
og önnur tæki, sem mikil fita fer í, má koma fyrir fitugildrim á lögnum
innanhúss. Fitugildrur skulu gerðar úr málmi, sem tærist ekki, og settar
eins nærri tæki því, sem um ræðir, og unnt er.
Gerð og frágangur fitubrunna og fitugildra eru háð samþykki bæjar-
verkfræðings.
30. gr.
Á skolplagnir frá bensinsölustöðvum, smurstöðvum, verkstæðum og öðrum
þeim stöðum, þar sem olía eða bensín kann að berast út í holræsakerfi
bæjarins, skal setja bensín- og olíugildru. Gildrur þessar skulu
hljóta samþykki bæjarverkfræðings og slökkviliðsstjóra, áður en þær
eru teknar í notkun.
31. gr.
Eigi er heimilt að veita gufu, t.d. frá efnalaugum og þvottahúsum, beint
út í holræsakerfið. Skulu ráðstafanir gerðar til að þétta gufuna, áður
en henni er veitt gegnum vatnslás út í holræsi.
Töluverður misbrestur virðist vera á því að farið sé eftir ofangreindum
reglum. Auk þess má benda á, að ofangreindar reglur taka ekki til
ýmissa hættulegra eða miður æskilegra efna, sem geta verið í frárennsli
frá iðnaði.