Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Qupperneq 17
Skipulagsgjöld
Planning
charges
í núgildandi skipulagslögum frá 1964 er heimilað að innheimta sérstakt
gjald, skipulagsgjald, til þess að standa straum af kostnaði ríkisins við
framkvæmd skipulagsmála. Gjald þetta má nema 3°/oo af brunabótaverði
hverrar nýbyggingar. Árið 1975 var ennfremur ákveðið, með breytingu á
skipulagslögunum, að til viðbótar þessu gjaldi skyldi, "árlega greiða úr
ríkissjóði til framkvæmdar skipulagsmála eigi lægri fjárhæð en nemur helmingi
skipulagsgjalda liðins árs".
Grundvöllur skipulagsgjalda hefur verið töluvert til imiræðu að xmdanförnu.
Bent hefur verið á að skipulagsgjald sem reiknað er sem hluti af brunabóta-
mati nýbygginga sé að ýmsu leyti hæpinn grundvöllur til að standa straum
af nauðsynlegri skipulagsvinnu. Dæmi hafa verið tekin af vegaframkvæmdum,
jarðefnavinnslu og skipulagi gamalla bæjarhverfa, sem krefjast oft mikillar
skipulagsvinnu, án þess að um nýjar byggingar sé að ræða. Svipuðu máli
gegnir um breytingar á notkun bygginga, sem þurfa óft töluverðrar athugunar
við.
Englendingar hafa um langt árabil haft þann hátt á þessum málum, að nauð-
synlegt hefur verið að fá skipulagsleyfi fyrir framkvæmdxmi (þ.m.t. ákveðnum
breytingum á notkun bygginga, jarðefnavinnslu o.fl.) aiok byggingarleyfis
fyrir byggingar. Með skipulagsleyfi veita skipulagsyfirvöld formlegt sam-
þykki til ákveðinnar framkvæmdar fyrir sitt leyti, en byggingaryfirvöld
veita síðan byggingarleyfi á svipaðan hátt og tíðkast hér á landi. Algengt
er einnig að menn fái bráðabirgða-skipulagsleyfi fyrir fyrirhuguðum fram-
kvæmdum áður en lagt er út í kostnaðarsama undirbúningsvinnu, en með bráða-
birgðaleyfi taka skipulagsyfirvöld afstöðu í meginatriðum til fyrirhugaðrar
framkvæmdar, jafnvel þótt hún sé ekki fullmótuð.
í byrjun apríl s.l. tóku Englendingar upp sérstakt gjald fyrir skipulags-
leyfi og fer gjaldskrá þeirra hér á eftir (sterlingspund = 16.00 ísl. kr.)
Bráðabirgða-skipulagsleyfi ("outline planning permission") 640 kr. / a 0.1 ha. - hámark
íbúðir 640 kr. á íbúð - hámark 32. i
aðrar byggingar (nema yfir framl. vélar og tæki) 320 kr. á 75 m2 að 40 m2 - hámark - yfir það 32.000 kr.
framleiðsluvélar og tæki 640 kr. á 0.1 ha. - hámark
námugröftur 320 kr. / a 0.1 ha. - hámark
umskráning íbúða 320 kr.
bílastæði og aðkoma 640 kr.
aðrar framkvæmdir 320 kr. / a 0.1 ha.
breyting á notkun 640 kr.
breyting á húsum í fleiri íbúðir 640 kr. á hverja íbúð
ýmis leyfi 640 kr.
auglýsingaskilti við fyrirtæki 160 kr.
önnur auglýsingaskilti 640 kr.