Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Side 36

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins - 01.06.1981, Side 36
36 Af þessu sést að hægt er að nota Gauss-Kruger vörpun um 21. lengdarbaug til kortagerðar fyrir kerfisbundna kortagerð, yfirlitskort og tæknileg kort, allt að mælikvarða 1:10000, sumstaðar jafnvel 1:500, af öllu landinu vestcin við 18 lengdarbaug. Sama gildir um 6 beltið með miðju 15 lengdarbaug W.GR. Þegar um tæknilegar mælingar er að ræða er ráðlegt að skipta 6* beltunum í 3' belti. Alþjóðlega skiptingin er þannig að 6* beltunum er skipt í tvent. Miðbaugar beltanna verða samkv. þessu 24, 21, 18, 15 gráður W.GR. Það er alveg sama hvaða vörpun er valin, það er alltaf munur á landfræðilegu (geografisku) norðri og norðurstefnu hnitakerfisins á staðnum. Þessi mismunur er eftir breidd, (fjarl. í gráðum frá miðbaug) og fjarlægð í gráðtim frá lengdarbaug svæðisins. Mism.: fer eftir reglunni C = dl • sin fi C = Konvergens dl = mismunur lengda fi = landfræðileg breidd Blaðskipting: Um blaðskiptingu hér á landi hafa ekki gilt neinar ákveðnar reglur, enda eru hnitakerfi ekki samræmd. Blaðstærðir og þar með teikniflötur er mis- munandi ekki aðeins hér heldur einnig á öðrum löndum. ÞÓ virðist tilhneigingin vera að stefna að Din-stærðum blaða og á hentugan teiíiriiflöt innan marka blaósins. Til greina gæti komið að nota blaðstærðina A1 og kortavíddirnar 500x700 mm. Al er 594x841 mm. Lokaoró. Hvað svo sem verður ákveðið í þessum málum ætti ekki að leggja neinar skyldur á bæja- eða sveitarfélög. Æskilegar breytingar, gætu komið við nýkorta- gerð og endurskoðun eldri korta eða við undirbúning skipulags af stærri svæðum. Nútíma tölvutækni auðveldar útreikninga, sem voru tímafrekir og kostnaðar- samir áður. Breyting blaðskiptingar er einnig hægt að gera með öruggari og auðveldari aðferðiam en áður. Héma hefur einnig orðið ör þróun og hér á landi eru til bæði tæki til þessa, og menn, sem hafa kunnáttu til þess að geta framkvæmt umrædd atriði: Það verður aldrei lögð nóg áhersla á nauðsyn og gagnsemi þess að samræma mælingar, gagnasöfnun og varðveislu. gagna í einu og sama kerfi þannig að sem flestir, allir, hafi vitneskju þar um og gagn af. Landmælingar Islands mæla eindregið með því að eitt og sama kerfi verið tekið í notkun og mun veita alla þá aðstoð sem stofnunin getur veitt og efni standa til. Bragi Guðmundsson Landmælingar Islands. Forsíáumynd Forsíðumynd er eftir Sigrúnu Harðardóttur. Sigrún er fædd 1954 í Reykjavík. Nám í tækniteiknun 1972 - 1973. Hóf nám í Mynd- lista og handíðaskóla Islands haustið 1978 og lýkur námi úr grafikdeild skólans vorið 1981. Heimilisfang: Lyngás 12, Garðabæ, sími 52648.

x

Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skipulagsmál höfuðborgarsvæðisins
https://timarit.is/publication/1782

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.