Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 6

Mosfellingur - 08.12.2022, Blaðsíða 6
Upplestur á Gljúfra- steini á aðventunni Á aðventunni lesa höfundar upp úr nýjum bókum á Gljúfrasteini. Jólabókaflóðið er aldeilis spenn- andi í ár og Gljúfrasteinn fer ekki varhluta af því. Upplestrar fara fram á hverjum sunnudegi á að- ventunni klukkan 15. Dagskráin stendur í klukku- tíma. Aðgangur er ókeypis og öll innilega velkomin. Sunnudaginn 11. desember koma fram Elísabet Jökulsdóttir - Saknaðarilmur, Guðrún Eva Mínervudóttir - Útsýni, Jón Kalman - Guli kafbáturinn, Kristín Eiríksdóttir - Tól. Sunnudag- inn 18. desember koma fram Elín Edda Þorsteinsdóttir - Núningur, Gerður Kristný - Urta, Guðni Elísson - Brimhólar, Meistaranemar í ritlist - Takk fyrir komuna. - Frítt, frjálst og óháð bæjarblað í 20 ár6 Heklurnar og Varmár- kórinn með tónleika Heklurnar og Varmárkórinn, tveir kvennakórar úr Mosfellsbæ, halda saman jólatónleika í Guðríðarkirkju þann 11. desember kl. 16. Á tónleik- unum syngja kórarnir klassísk jóla- lög í bland við nýrri tónlist. Þetta verður hugguleg aðventustund sem öll fjölskyldan getur notið saman. Boðið verður upp á léttar veitingar í hléi. Miðaverð er 2.500 kr en frítt fyrir börn yngri en 16 ára. Út er komin, á vegum Sögu- félags Kjalarnesþings, bókin Hersetan í Mosfellssveit og á Kjalarnesi 1940-1944 eftir Friðþór Eydal. Friðþór hefur ritað fleiri bækur um hernámsárin á Íslandi og þekkir mjög vel til aðbúnaðar hermanna á þess- um tíma. Mosfellssveit og Kjalarnes voru vettvangur mikilla um- svifa erlends herliðs á árum síðari heimsstyrjaldar. Herlið hafði með höndum strandvarnir og skyldi reiðubúið til sóknar gegn óvinaliði sem freistaði land- göngu á Vestur- eða Suðurlandi. Víða um svæðið voru reistar búðir með fjölda bogaskála sem á ensku nefndust „barracks“ en landsmenn kölluðu bragga. Fáeinir braggar eru enn í notkun í Mosfells- sveit og víða í sveitinni má sjá minjar um hersetuna. Í bókinni er litið inn í vistarverur hermanna og aðbúnaði þeirra lýst; enn fremur eru verkstæði, spítalar og birgðageymslur skoðaðar. Einnig er komið inn á samskipti Íslendinga og hermanna. Í bókinni er dregin upp skýr mynd af umsvifum hersetunnar þegar um 10.000 hermenn höfðu aðsetur í Mosfellssveit. Bókina prýða liðlega 170 ljósmyndir og nákvæm kort af herskála- svæðum. Margar ljósmyndanna hafa aldrei komið fyrir almenningssjónir. Bókin varpar skýru ljósi á byggðir her- manna og skipulag varna landsins á þess- um tíma. Bygging herskála hafði nokkur áhrif á skipulag Mosfellssveitar, ekki síst á Reykjalundarsvæðinu. Bókin verður til sölu í Bónus og í Héraðs- skjalasafninu. Ný bók eftir Friðþór Eydal • Heimild um horfinn tíma • Sögufélag Kjalarnesþings gefur út Gefa út bók um hersetuna í Mosfellssveit og á Kjalarnesi Söng- og leikkonan Marlene Dietrich kom til landsins í september 1944 til að skemmta hermönnum, og söng m.a. í Trípólíbíó sem stóð þar sem nú stendur Árnagarður Háskóla Íslands. Marlene heimsótti einnig sjúklinga Helgafells- spítala sem var um tíma stærsti spítali landsins. Bandarískir hermenn gera við hitaveitulögn Helgafellsspítala við rætur Helgafells. Lögnin stóð á stöplum og var einangruð með sérsniðn- um vikursteini sem bundinn var með vírneti. Kolabirgðir í Camp Lambton Park við Reykjaveg. Lengst til hægri sjást liðsforingjaskálar herbúðanna og fjær glittir í Álafoss Dump við Hafravatns- veg. Hvíta húsið á miðri mynd er Sólvellir og fjær til vinstri sér í húsin að Reykjahvoli. Stekkjarlækur til hægri við kolapokana. Vorboðar, kór eldri borgara, heldur úti öfl- ugu starfi og hefur stækkað og eflst ótrú- lega síðustu mánuði. Félagar teljast núna rúmlega 60. Kórinn mun syngja við opnun Jólaskóg- arins í Hamrahlíð laugardaginn 10. desem- ber, á opnu húsi í Hlégarði 12. desember og á Eir í Grafarvogi 13. desember. Mikil ánægja er með söngstjóra kórsins, hana Hrönn Helgadóttur, en kórinn æfir einu sinni í viku. Þá fer kórinn í ferðalög og gerir sér margt til skemmtunar. Vorboðar halda úti öflugu starfi • Koma víða fram í desember • Félagar nú 60 talsins Kór eldri borgara eflist til muna vorboðar í sumarferð MOSFELLINGUR jólablaðið KeMur út 22. des. mosfellingur@mosfellingur.is

x

Mosfellingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mosfellingur
https://timarit.is/publication/1311

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.