Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 9
Karl Th. Birgisson n Í dag Orkuskipti eru í tízku. Vinsæl og endurþulin mantra þar er að framleiða þurfi meiri orku, í stað þess að beina henni í annað en nú er gert. Hætta til dæmis að grafa eftir rafmyntum, sem eru ein skýrasta birtingarmynd sýndarveruleikans. Þeirri hugsun mætti beita víðar. Nota orkuna í annað. Nefnum fáein dæmi. Fólið Kennari í Garðabæ var nýlega dæmdur fyrir að ljúga glæpum upp á saklausa blaðamenn. Ég ætla ekki að nefna hann – gervigreindin í tölvunni minni myndi rísa upp til varnar almennu velsæmi í veröldinni. Hann hefur hins vegar ítrekað verið staðinn að því að lifa í hliðarveruleika og spinna þaðan fantasíur, auk þess náttúrlega að kunna ekki skil á réttu og röngu, staðreyndum og lygum, fyrir utan að skorta almenna dómgreind og mannasiði. Samt vill ágætasta fólk gera þennan mann að umræðuefni, rétt eins og Lísa í Undralandi væri efni til samræðna um alvörumál. Sú orka væri betur notuð í annað. Lygarinn Á dögunum kom í ljós að fjölmiðla- maður hafði logið frekar alvarlega um feril sinn og fyrri störf. Ekkert svona einu sinni tilfall- andi úps og óvart, heldur aftur og ítrekað. Í ósannindunum var ekki síður lýst upplifun viðkomandi í þessum upplognu störfum. Þær meintu upplifanir urðu svo reyndar grunnurinn að ferlinum í fjöl- miðlum. Þá vill svo til að ólíklegasta fólk vill verja ósannindin. Segir þau skipta litlu eða engu máli, af því að viðfangsefni fjölmiðlamannsins sé svo mikilvægt. Ekki dreg ég úr því, en bið við- komandi að staldra við. Ég gæti vitaskuld farið með frasana um að tilgangurinn helgi ekki meðalið, en þetta tilvik er flóknara. Við gerum þá sjálfsögðu kröfu að fjölmiðlafólk segi satt og rétt frá. Á því byggist trúverðugleiki þess. Til dæmis þess vegna treystum við Ríkisútvarpinu betur en Útvarpi sögu. Fréttablaðinu betur en Reykjavíkurbréfum Moggans. Þegar fjölmiðlamaður verður aftur og ítrekað uppvís að ósann- indum opinberlega, þá er trú- verðugleiki hans horfinn. Hann gufar upp í móðu ósann- indanna. Við gerum öll mistök og sjálfsagt að fyrirgefa þau, en það nægir ekki að biðjast afsökunar á síendur- tekinni „missögn.“ Viðkomandi ætti að finna sér annað starf og við ættum að eyða orku okkar í annað en að verja endurteknar lygar. Sannleikurinn er miklu betri málstaður. Maðurinn Bezta fólk eyðir tilfinningaorku í að halda því fram að konur séu ekki menn. Ég sem hélt að Vigdís Finnboga- dóttir hefði afgreitt það mál árið 1980, þegar hún var spurð hvort kjósa ætti hana sem forseta af því að hún er kona. „Nei, það á að kjósa mig af því að ég er maður.“ Þarna hélt ég í einfeldni minni að málið væri útrætt, en svo virðist hreint ekki vera. Ég nenni ekki að rifja hér upp nýleg delludæmi, en þetta vits- munaofbeldi hlýtur að stríða gegn einhverjum ákvæðum fólksrétt- indasáttmála Evrópu. Prívatskýring mín er að þessi misskilningur sé óberminu honum Jóni Thoroddsen að kenna. Hann skrifaði skáldsöguna Maður og kona, og festi þar með í sessi þessa sérkennilegu vitleysu. Bókin hefði betur heitið Karl og kona, eða bara Kall og kelling, sem aldalöng hefð er fyrir. Á meðan breytist ekkert Á meðan við þrösum um ýmis sér- kennilegheit tilverunnar gengur lífið áfram sinn vanagang. Jón Gunnarsson dómsmála- ráðherra heldur áfram að ljúga og dylgja, og selja líkkistur vitaskuld. Þegar þetta er skrifað er ekki ljóst um afdrif vantrauststillögu á hann, en ég treysti mér til að fullyrða að Vinstri græn styðji áfram sinn uppáhaldsráðherra. Bjarni Benediktsson fjármála- ráðherra (eða ráðuneyti hans að minnsta kosti) heldur áfram að skrökva um Lindarhvol og hann vill auðvitað selja fleiri hluta- bréf í Íslandsbanka. Það er eins og honum þyki listinn af ósann- indum ekki orðinn nógu langur. Aldrei of seint að bæta við og það er engin leið að hætta, eins og skáldið orti. Sigurður Ingi Jóhannsson samgönguráðherra áformar enn að leggja vegaskatta á tiltekna landsmenn, eftir búsetu. Þótt hann segðist fyrir kosningar aldrei myndu gera slíkt. Og áfram halda vextirnir að hækka af því að landvættur okkar, Íslandskrónan, hættir aldrei að koma okkur til bjargar þegar mikið liggur við. Vonandi hafa sem flestir bróderaðan milljónkrónu- seðil innrammaðan uppi á vegg hjá sér. En þetta er allt í lagi. Við eigum næga orku. Þyrftum bara að muna að beina henni ekki í sýndarveru- leikann. n Hin orkuskiptin Og áfram halda vext- irnir að hækka af því að landvættur okkar, Íslandskrónan, hættir aldrei að koma okkur til bjargar þegar mikið liggur við. FERÐAFÉLAG ÍSLANDS www.fi.is Sjáumst á fjöllum Það er ekki lengur þannig að negld vetrardekk séu öruggari eða betri en ónegld dekk. Af 7 bestu vetrar- dekkjunum, að mati Bäst i testet, eru 4 ónegld og 3 negld, og þá erum við að tala um bestu dekkin fyrir skand- inavískar aðstæður. Það á þá einnig við um Danmörku, Skán og vestur- strönd Noregs þar sem almennt er sama skítaveðrið og á Íslandi. Bestu nagladekkin eru talin eilítið betri á ís, en verri við aðrar aðstæður. Þau eru samt ekki það miklu betri á ís, heldur þannig að aka þarf um 10% hægar á ónegldum fyrir sömu hemlun á ís! Það upplifa sig samt flestir örugg- ari á nöglum, en öryggistilfinningin er langt umfram aukið öryggi. Veg- gripið á nöglum er best þegar lítið reynir á, en mun síðra þegar meira reynir á og naglarnir fara að skauta. Tilfinningin á ónegldu er hins vegar lausari í byrjun, en er það veggrip sem þú hefur allan tímann. Nagladekk slíta vegum á við rúm- lega 20 bíla á ónegldum dekkjum, þannig að kostnaður okkar hinna er a.m.k. tífalt það sem þú sparar fyrir þína öryggistilfinningu. Þegar þú ekur á nöglum eru 1.000 meitlar að meitla upp úr götunni fyrir hvern hring sem dekkin snúast, og eftir því sem malbikið er betra, með harðara grjóti, verður rykið fínna og á greið- ari leið inn í lungu og út í blóðrás. Þetta ryk er að ræna um 300 lífár- um af Íslendingum árlega þá helst af viðkvæmari hópum eins og börnum og gamalmennum. Hér er miðað við áhrif af fínu ryki í Evrópu, en staðan hér er ekki betri (https://www.eea. europa.eu/is/themes/air/intro) Algeng viðbrögð við svona grein eru mótbárur á við þær að hægt sé að draga úr svifryki með því að sópa göturnar, eða að rykið komi mest allt af hálendinu. Með sömu rökum mætti segja að almennt sé betra að missa ekki í buxurnar í stað þess að krefjast þess að einhver þvoi þær, og að einhvern veginn virðist rykið af hálendinu bara falla í þéttbýli á mest eknu götunar. Einnig mætti benda á hversu augljóst þetta er í Hvalfjarðargöngunum, með besta malbikinu, sem breytast í myrkan rykmökk seint á haustin. Mig langar að biðja fólk að bregð- ast ekki við með krókódílaheilanum og fara strax í vörn þegar minnst er á að hætta notkun nagladekkja, heldur nota framheilann með rökhugsun og samkennd og spyrja sig hvort for- sendur einhvers sem það taldi rétt fyrir 15–20 árum gætu hafa breyst. Spyrja sig hvort nagladekk séu virkilega ennþá málið. Einnig vil ég biðja þá sem ráða lögum og reglum að rukka a.m.k. 20 þúsund krónur á hvern bíl í byrjun vetrar fyrir notkun nagladekkja, til að gera það ekki fjár- hagslega hagkvæmt að vera sofandi sóði, sem án nokkurrar umhugsunar veldur öðrum heilsutjóni. n Öryggistilfinning á kostnað annarra Lárus Elíasson verkfræðingur Fréttablaðið skoðun 931. mars 2023 FÖsTuDAGuR

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.