Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 12
Allt er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Guðmundur
Hilmarsson, gummih@frettabladid.is s. 550 5766 | Jóhanna María Einarsdóttir jme@frettabladid.
is, s. 550 5769 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 |
Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf.
Ábyrgðarmaður:
Jón Þórisson
Sölumenn:
Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656,
Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@frettabladid.is, s. 550 5654,
Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103.
Thelma Aðalsteinsdóttir varð
Íslandsmeistari í fjölþraut annað
árið í röð og í keppni á einstökum
áhöldum vann hún til þrennra
verðlauna.
Spurð fyrst um árangurinn og
hvort hún hafi ekki verið ánægð
með uppskeru sína á Íslands
mótinu segir hún: „Ég var mjög
ánægð með árangurinn. Það var
mikil samkeppni um sigurinn í
fjölþrautinni og ég held að þetta
hafi bara verið spurning um
dagsformið þar sem mér tókst að
standa uppi sem sigurvegari. Ég
var svo sem ekkert að hugsa um
Íslandsmeistaratitilinn, sem ég
vann í fyrsta sinn í fyrra, áður en
mótið hófst heldur var ég meira að
sjá hvort ég gæti náð markmiðum
mínum um að verða Íslandsmeist
ari, mæta til leiks með jákvætt
hugarfar og gera mitt besta. Það
var frábær tilfinning að fá að upp
lifa það aftur að verða meistari í
fjölþrautinni,“ segir Thelma.
Eins og áður segir fór hún þrí
vegis á verðlaunapall þegar keppt
var á einstökum áhöldum. „Ég
vann gullverðlaunin á slánni,
varð önnur á tvíslánni þrátt fyrir
að gera mistök og ég hreppti
svo bronsverðlaunin fyrir gólf
æfingarnar,“ segir Thelma. Um
hvaða grein í fimleikunum sé í
mestu uppáhaldi hjá henni segir
Thelma: „Ætli ég verði ekki að
segja tvísláin.“
Tímabilið í fyrra var eftirminni
legt hjá Thelmu. En auk þess að
vinna Íslandsmeistaratitilinn í
fjölþraut í fyrsta sinn vann hún
Norðurlandameistaratitilinn á slá
og var í liði Íslands, sem hafnaði í
3. sæti á mótinu. Þá keppti hún á
Evrópumótinu sem fram fór í Mün
chen þar sem hún stóð sig það vel
að hún fékk keppnisrétt á heims
meistaramótinu sem haldið var í
Liverpool á Englandi í október. Það
kom því ekki á óvart að hún skyldi
verða útnefnd fimleikakona ársins
af Fimleikasambandi Íslands.
Thelma var í vikunni valin í
landsliðshóp Íslands en hann
tekur þátt í Evrópumótinu sem
haldið verður í Antalya í Tyrklandi
í næsta mánuði. Í kvennalands
liðinu auk hennar eru þær Agnes
Suto, Hildur Maja Guðmundsdóttir
og Margrét Lea Kristinsdóttir.
Langar að upplifa þá gleði aftur
„Það er heldur betur farið að stytt
ast í Evrópumótið og við höldum
utan á föstudaginn langa. Ég er
ógeðslega spennt fyrir þessu móti
og er spenntari fyrir því en Íslands
mótinu. Það var svo gaman að
taka þátt í Evrópumótinu á síðasta
ári og mig langar svo sannarlega
að upplifa þá gleði aftur,“ segir
Thelma.
Spurð um væntingar hennar til
mótsins segir hún: „Stefnan er að
tryggja mér sæti á HM eins og ég
gerði í fyrra en það geri ég með því
að ná góðum árangri á Evrópumót
inu. Það eru eitthvað um 24 stelpur
sem eiga möguleika á að komast
á HM. Það var mikil upplifun og
gaman að keppa á Evrópumótinu
og heimsmeistaramótinu á síðasta
ári. Ég er í toppformi og ég tel mig
eiga góða möguleika á að vinna
mér sæti á HM. Markmiðið hjá mér
var að vera komin í gott form fyrir
Íslandsmótið. Það tókst og nú er
stefnan að vera í enn betra formi
þegar Evrópumótið hefst,“ segir
Íslandsmeistarinn í fjölþraut.
Thelma segist eiga sér þann
draum að keppa á Ólympíuleikun
um í París á næsta ári. „Það er alveg
raunverulegt markmið að setja sér
að komast á Ólympíuleikana og
vitaskuld er það draumur hjá mér
að keppa í París 2024. En fyrst er
að standa sig vel á Evrópumótinu
og ná þar að vinna sér keppnisrétt
á heimsmeistaramótinu,“ segir
Guðmundur
Hilmarsson
gummih
@frettabladid.is
Thelma með Elsu ömmu í föðurætt eftir sigurinn á Íslandsmótinu í fjölþraut.
Með ömmu og afa í móðurætt á
heimsmeistaramótinu í München.
Með ömmu og afa í föðurætt á
heimsmeistaramótinu í München.
Í æfingum á
jafnvægisslá á
heimsmeistara-
mótinu í Þýska-
landi.
MyndiR/AðSEndAR
Thelma en heimsmeistaramótið
verður haldið í Antwerpen í Belgíu
um mánaðamótin september
október.
Thelma er 22 ára gömul og hefur
æft og keppt í fimleikum frá unga
aldri með íþróttafélaginu Gerplu í
Kópavogi.
„Ég byrjaði að æfa fimleika
fjögurra ára gömul. Það lá beinast
við að ég færi í þessa íþrótt. Pabbi
minn kemur úr mjög mikilli fim
leikafjölskyldu. Amma er einn af
stofnendum Gerplu og er einn af
brautryðjendum fimleika á Íslandi.
Pabbi og öll hans systkini voru í
fimleikum og það var eiginlega
aldrei nein spurning um að henda
mér í fimleikana líka. Ég hef ekki
stundað neina aðra íþrótt.“
Datt út úr vinkonuhópnum
Að vera í fremstu röð í fimleikum
fylgir mikil vinna, blóð, sviti og tár.
Það veit Thelma upp á hár.
„Þetta er mikil vinna og
árangurinn kemur ekki af sjálfu
sér. Ég legg mikið á mig og er að æfa
svona í kringum 26–27 klukku
tíma á viku árið um kring og svo
heldur vinnan áfram þegar heim
er komið. Ég þarf að passa upp á að
borða vel og innbyrða hollan mat,
taka inn vítamínin, vera dugleg
að fara í sund og hugsa vel um
líkamann almennt. Maður þarf að
halda aga þegar maður er í þessu
sporti,“ segir Thelma.
Hefur ekki komið fyrir að þú
þurfir að sleppa hinu og þessu eins
og að fara út að skemmta þér með
vinkonunum þar sem þú ert upp-
tekin við æfingar eða keppni?
„Jú, það er mjög mikið svo
leiðis. Ég datt eiginlega strax út
úr vinkonuhópnum. Ég er enn þá
inni í honum að nafninu til en ég
er ekki spurð þegar vinkonurnar
eru að fara að gera eitthvað. Þær
halda bara að ég sé á æfingu. En ég
á margar góðar vinkonur sem eru
í fimleikunum og félagsskapurinn
er mjög góður þótt við séum í
samkeppni. Hún verður að vera til
staðar svo maður geti sett sér hærri
markmið.“
Er í krefjandi námi
Líf Thelmu snýst að miklu leyti um
fimleikaíþróttina en það kemur
ekki í veg fyrir að hún stundi
krefjandi nám.
„Ég er á öðru ári í námi í lyfja
fræði við Háskóla Íslands en þetta
er fimm ára nám. Valið hjá mér
stóð á milli þess að fara í tann
læknafræði eða lyfjafræði og ég
er mjög sátt með að hafa valið
lyfjafræðina. Ég fann að þetta nám
er algjörlega fyrir mig. Fyrsta árið
var rosalega krefjandi og ekki síst
þar sem ég var í bakmeiðslum.
Meginástæða þess að ég dreif mig í
nám var til þess að geta hugsað um
eitthvað annað og dreift huganum
í stað þess að líða illa þegar ég fór
inn í fimleikasalinn,“ segir hún.
Thelma segist hafa ætlað að
hætta í fimleikunum eftir síðasta
ár. „Ég hugsaði um það en þegar
ég leiddi hugann að því að ég ætti
kannski möguleika á að vera með
á Ólympíuleikunum þá ákvað ég
að halda ótrauð áfram. Þetta er svo
gaman og gefandi en krefjandi um
leið og ég lít bara björtum augum á
komandi verkefni.“ n
Það er alveg raun-
verulegt markmið
að setja sér að komast á
Ólympíuleikana og
vitaskuld er það draum-
ur hjá mér að keppa í
París 2024.
Thelma Aðalsteinsdóttir
2 kynningarblað A L LT 31. mars 2023 FÖSTUDAGUR