Fréttablaðið - 31.03.2023, Blaðsíða 20
www.malbik.is - Sævarhöfði 6-10 & Álhella 34 - Sími 587 5848 - Netfang: hofdi@malbik.is
OKKAR VEGIR, YKKAR VELFERÐ
Malbiksframleiðsla - Útlagning - Viðgerðarmalbik - Steinefnasala
Unnið að malbikun á Kringlumýrar-
braut. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON BRINK
gummih@frettabladid.is
Það ber stundum á því að rætt sé
um malbik og klæðningu sem eitt
og sama fyrirbærið. Svo er þó alls
ekki þótt báðar gerðirnar séu svo-
kölluð bikbundin slitlög.
Nauðsynlegt er að gera greinar-
mun á klæðningu og malbiki enda
er klæðning ódýrt bundið slitlag
sem tekur til 90 prósenta alls
bundins slitlags á landinu, mest á
umferðarminni vegum.
Malbik er blanda þriggja þátta,
steinefna, biks og íblöndunarefna.
Steinefnið gegnir því hlutverki
að bera þunga umferðarinnar en
bikið bindur steinefnið saman og
myndar heild. Því er mikilvægt
að bikið gefi góða bindingu og að
styrkur steinefna sé nægur, meðal
annars til að bera þungaumferð og
þola þá síendurteknu áraun sem
fylgir notkun nagladekkja.
Malbik er hins vegar tiltölulega
dýrt efni, enda framleitt í sér-
stökum hátæknivæddum blönd-
unarstöðvum. Algengasta fram-
leiðsluaðferðin er að hita bikið og
steinefnin hvort í sínu lagi fyrir
blöndun og svo er þessum efnum
blandað saman í nákvæmum hlut-
föllum með íblöndunarefnum. n
HeImILd: vegAgeRdIN.Is
Malbik ekki sama
og klæðning
Ísland er í 105. sæti á lista yfir stærstu
vegakerfi heims. FRÉTTABLAÐIÐ/vILHeLm
jme@frettabladid.is
Bandaríkin eru efst á lista yfir
stærstu vegakerfi heims en af
64.285.009 kílómetrum alls eiga
Bandaríkin 6.803.479 kílómetra.
Af þeim eru 63% malbikaðir vegir
og 38% malarvegir. Tölurnar eru
frá árinu 2019 svo ýmislegt gæti
hafa breyst síðan þá. Næst á eftir
Bandaríkjunum á listanum kemur
Indland með 6.372.613 kílómetra.
Indland stendur sig þó ívið betur í
að malbika og eru 70% af veg-
unum malbikuð á meðan 30% eru
malarvegir. Tölurnar eru frá þessu
ári. Frændur okkar í Danmörku
eru í sextugasta sæti á listanum
með 73.574 kílómetra. Tölurnar
eru frá 2010.
Ísland lendir svo í 105. sæti á
listanum með 12.898 kílómetra
miðað við upplýsingar frá árinu
2012. Af þeim eru 44% malbikaðir
og 56% malarvegir. n
Stærstu vegakerfi
heimsins
elín@frettabladid.is
Eins og margir hafa tekið eftir eru
miklar framkvæmdir við Hlemm.
Verulegar breytingar eru fyrir-
hugaðar á svæðinu og markmiðið
að gera nýja torgið að svæði fyrir
hjólandi og gangandi vegfarendur.
Áætluð verklok á framkvæmdinni
eru á seinni helmingi ársins 2025.
Torgið er hannað með aðgengi
allra í huga, eftir því sem segir á
heimasíðu Reykjavíkurborgar.
Þarna verða hágæða upphitaðar
biðstöðvar almenningssamgangna
með nútíma tæknilausnum og
þægindum fyrir notendur. Svæðið
á að ramma inn fjölbreytt mannlíf
þar sem verður fallegur gróður.
Nýta á vatn sem upplifun eins og
gufuna tengdum ferðum þvotta-
kvenna og minna á Rauðará.
„Við enda Laugavegar og Rauðar-
árstígs þar sem torgsvæðið opnast
er gufusvæðið sem er minni um
þvottalaugarnar í Laugardal, en
Laugavegur var lagður þangað til
að auðvelda þvottakonum burðinn
að laugunum. Stöpullinn með
burðarjálknum á Torginu hefur
verið lækkaður og bekkur er nú
hluti af útfærslu stöpulsins. Gufan
mun fá nýja vídd í myrkri með
lýsingu sem dregur fram litróf sem
minnir á regnboga eða norðurljós,“
segir á vef Reykjavíkurborgar. n
Hlemmur tekur breytingum
Árið 2025 verður Hlemmur nýr og
breyttur staður.
8 kynningarblað 31. mars 2023 FÖSTUDAGURMalbik