Nesfréttir - 01.12.2022, Page 8
8 Nesfrétt ir
og farsælt komandi ár
Bæjarstjórn og starfsmenn Seltjarnarnesbæjar senda
bæjarbúum jólakveðjur með þökkum fyrir ánægjuleg
samskipti á árinu sem er að líða.
Gleðileg jó�
Litaveita er nýtt veggverk eftir Þórdísi Erlu Zoëga á hitaveituhúsinu
við Gróttu. Þórdís Erla er Bæjarlistamaður Seltjarnarness 2022 og er
veggverkið hennar framlag til Seltjarnarnesbæjar.
Listaverkið Litaveita nefnist Litaveita er undir áhrifum frá náttúrufegurðinni
í Gróttu og hinu mikla sjónarspili sem að himininn býður upp á þessum
útsýnisstað. Verkið er m.a. unnið úr litbreytimálningu og litbreytifilmu sem
breytist mikið eftir veðráttu og tíma dags. Sitt hvor hringurinn, sem minnir
á sól eða tungl, er á hvorum gafli hússins og geta vegfarendur speglað sig og
náttúruna í þeim auk þess að fylgjast með litbreytingum sem þeir bjóða upp
á eftir því hvaða tíma dags horft er á þá. Lita- og skuggaspil verksins gerir
áhorfandann meðvitaðan um hringrás sólarinnar og líðandi stund.
Litaveita á hitaveituhúsinu.
Vill byggja raðhús
við Steinavör
Óskað hefur verið eftir breytingu á deiliskipulagi vegna lóðanna við
Steinavör 8 og 12.
Ósk lóðarhafa er um að heimilað verði að reisa raðhús með fimm íbúðum
í stað einbýlishúsa. Skipulags- og umferðarnefnd tekur jákvætt í erindið og
felur skipulagsfulltrúa að vinna málið áfram.
Frá Steinavör.
Litaveita er nýtt
útilistaverk á Nesinu